Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Kvikugangurinn kominn undir bæinn og fólk flutt á brott

Skjálfta­virkn­in hef­ur fært sig beint und­ir byggð­ina í Grinda­vík. Stór kviku­gang­ur er kom­inn und­ir bæ­inn. All­ur bær­inn rýmd­ur á tveim­ur til þrem­ur tím­um.

Kvikugangurinn kominn undir bæinn og fólk flutt á brott
Eldri borgarar flýja dvalarheimilið í Grindavík. Mynd: Golli

Almannavarnir hafa boðað rýmingu á öllum íbúum í Grindavík. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, kynnti rýminguna á blaðamannafundi almannavarna rétt í þessu. 

Stór kvikugangur er talinn teygja sig frá Sundhnúkagígum og undir byggðina í Grindavík. „Þarna er á ferðinni mjög mikil kvika,“ segir Víðir.

„Ég ítreka það að þetta er ekki neyðarrýming. Það er ekki bráð hætta yfirvofandi og rýmingin er fyrst og fremst fyrirbyggjandi öryggisráðstöfun. Akið varlega, það er dimmt, og margir verða á ferðinni. Förum okkur í engu óðslega.“

Hann ítrekaði að fólk ætti að gæta að nágrönnum sínum og merkja heimili sín rýmd. „Takið upp gangandi fólk ef rými er í bílnum.“

Atburður sem þessi hefur ekki átt sér stað síðan í Vestmannaeyjagosinu 1973.

Eins og Heimildin greindi frá fyrr í kvöld hafði skjálftavirknin á Reykjanesskaganum færst beint undir fæturna á fólki í Grindavík og var henni lýst sem öldugangi. Fyrir skemmstu voru eldri borgarar á dvalarheimilinu Miðgarði fluttir burt í snatri.

Uggvænleg mynd af skjálftasíðu Veðurstofu Íslands sýnir hvernig jarðskjálftavirkni hefur smám saman flust undir byggðina í Grindavík síðasta sólarhringinn. Síðustu fjórar klukkustundir hafa skjálftar yfir 3 að stærð fyrst og fremst mælst beint undir bænum.

Ekki hafa borist svör frá almannavörnum um merkingu þess. Samkvæmt fréttum Vísis hefur verið tekin ákvörðun um að rýma Grindavík í heild sinni.

Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands sagði að neyðarstigi hefði verið lýst yfir, sem síðar var staðfest.

„Vísbendingar eru um að kvikugangurinn sé kominn undir Grindavík. Neyðarstigi hefur verið lýst yfir og rýming er að hefjast.“

Fyrr í kvöld sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins að „ef það verður gripið til rýminga þá mun það ekki fara á milli mála“.

Loftmynd af svæðinuKvikugangurinn liggur frá Sundhnúkagígum og undir Grindavík.

Skjálftar færast undir byggðinaKortið sýnir skjálfta yfir 3 að stærð síðustu tólf tíma. Blái liturinn táknar skjálfta fyrir 10 til 12 tímum en sá rauði nýlegustu skjálftana, frá tveimur til fjórum tímum. Á kortinu sjást þeir beint undir byggðinni í Grindavík.

Almannavarnir greindu frá því fyrr í kvöld að kvikugangur væri að brjóta sér leið í átt að yfirborðinu nærri Sundhnúkagígum, sem liggja um 3 kílómetrum frá byggðinni. Sprungan liggur í átt að bænum.

Björgunarsveitin Þorbjörn sendi fá sér eftirfarandi tilkynningu á Facebook rétt í þessu. 

Aðstæður í Grindavík þessa stundina eru ekki eðlilegar. Það er gríðarlega löng og öflug jarðskjálftahrina í gangi núna sem sér ekki fyrir endan á.

Okkar fólk ásamt öflugum hópum frá öðrum björgunarsveitum á Suðurnesjum eru til taks í Grindavík og hafa verið að sinna minniháttar verkefnum. Mikill fjöldi fólks hefur yfirgefið heimili sín en sem stendur er engin rýming í gangi og fólki óhætt að snúa til baka eins og þeim hentar.

Íþróttahúsið í Grindavík er opið og þar getur fólk safnast saman.

Ef fólk situr heima í Grindavík og getur ekki yfirgefið heimili sitt vegna einhvers en vill komast í burtu þá er fólk beðið að hafa samband við 112 og óska eftir aðstoð. Fjöldahjálparstöðvar hafa verið opnaðar í Reykjanesbæ, Kópavogi og á Selfossi og hvetjum við fólk til þess að leita þangað ef því vantar samastað.

Að lokum hvetjum við alla Grindvíkinga til þess að kanna ástandið á sínu nánasta fólki og nágrönnum.“

Rýmingaráætlun fyrir GrindavíkAthugið að norðurleiðin eftir Grindavíkurvegi er lokuð.
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbú­um leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­regl­an mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­in­um verð­ur íbú­um og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækj­um í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæ­inn og dvelja þar næt­ur­langt. Í ný­legri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um er greint frá þessu. Íbú­ar eru þó var­að­ir við að inn­við­ir bæj­ar­ins séu í lamasessi og sprung­ur víða. Bær­inn sé því ekki ákjós­an­leg­ur stað­ur fyr­ir fjöl­skyld­ur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tíma­bært að verja Reykja­nes­braut

Þor­vald­ur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ing­ur seg­ir að það sé tíma­bært að huga að vörn­um fyr­ir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesj­um. At­burða­rás­in á fimmtu­dag, þeg­ar hraun rann yf­ir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi ver­ið sviðs­mynd sem bú­ið var að teikna upp. Hraun hafi runn­ið eft­ir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þeg­ar mað­ur vel­ur sér það sjálf­ur, hvað þá þeg­ar mað­ur neyð­ist til þess. Og hvernig vel­ur mað­ur hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þeg­ar mað­ur yf­ir­gef­ur stórt ein­býl­is­hús með tvö­föld­um bíl­skúr fyr­ir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyld­an á Blóm­st­ur­völl­um 10 í Grinda­vík stóð frammi fyr­ir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Margeir fær milljónir í bætur – Hafði áreitt samstarfskonu hjá lögreglunni
4
Fréttir

Mar­geir fær millj­ón­ir í bæt­ur – Hafði áreitt sam­starfs­konu hjá lög­regl­unni

Ís­lenska rík­ið þarf að greiða Mar­geiri Sveins­syni að­stoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni miska­bæt­ur fyr­ir að hafa færð­ur til í starfi eft­ir að sam­starfs­kona hans sak­aði hann um of­beldi og áreitni. Lög­reglu­stjóri til­kynnti hér­aðssak­sókn­ara um hugs­an­lega refsi­verða hátt­semi Mar­geirs en mál­inu var vís­að frá.
Lifum á tímum mikilla upplýsinga en aldrei verið óupplýstari
6
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Lif­um á tím­um mik­illa upp­lýs­inga en aldrei ver­ið óupp­lýst­ari

Geir Gunn­ar Markús­son nær­ing­ar­fræð­ing­ur seg­ir að auk­in tíðni lífs­stíls­sjúk­dóma kalli á heil­næm­ara fæði, meiri hreyf­ingu, næg­an svefn og streitu­minni lífs­stíl. Hann tel­ur að fæða okk­ar í dag sé að mörgu leyti verri en fyr­ir um 30 ár­um og að við höf­um flækt mataræð­ið. Þrátt fyr­ir mik­ið magn upp­lýs­inga þá gæti mik­ill­ar upp­lýs­inga­óreiðu þeg­ar kem­ur að nær­ingu. Geir Gunn­ar vill að fólk borði morg­un­mat til að stuðla að jafn­ari blóð­sykri og orku út dag­inn en morg­un­mat­ur­inn er á veru­legu und­an­haldi.

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
3
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár