Laufey Lín tilnefnd til Grammy-verðlaunanna

Laufey Lín Jóns­dóttir og Ólafur Arnalds eru til­nefnd til Grammy-verð­laun­anna. Bruce Springsteen er til­nefndur í sama flokki og Laufey.

Tveir Íslend­ingar eru til­nefndir til Grammy-verð­laun­anna 2024. Laufey Lín Jóns­dóttir er til­nefnd fyrir plötu sína Bewitched í flokki hefð­bundna popptón­listar, sungin tón­list (e.Tra­diti­onal Pop Vocal Alb­um) og Ólafur Arnalds fyrir plöt­una Some Kind of Peace (Piano Reworks) í flokknum nýald­ar­stemmn­ings­tón­list (e. Best New Age, Ambient, or Chant Album).

Þetta er fyrsta til­nefn­ing Lauf­eyjar en Ólafur hefur tvisvar áður hlotið til­nefn­ingu.„Ég trúi þessu ekki!“ segir Laufey Lín í færslu á Instagram. Engir aukvisar eru til­nefndir í sama flokki og hún, en þar má meðal ann­ars finna Bruce Springsteen. 

„Hvað er eig­in­lega í vatn­inu hér á landi hljóta margir að spyrja sig?“ skrifar Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra í við­brögðum við til­nefn­ing­unum á Facebook. Hún segir þær enga til­viljun. „Þrotlaus vinna og metn­aður skili sér í þessum frá­bæru til­nefn­ingum.“  

„Við Íslend­ingar getum verið stolt af þeim sem og okkar öfl­uga tón­list­ar­lífi. Það skiptir máli að halda áfram að hlúa að því eins og þessi nýju og glæsi­legu dæmi sanna. Það munum við svo sann­ar­lega gera!“

Dr. Gunni fer fögrum orðum um Laufeyju í dómi um Bewitced í Heim­ild­inni: 

„Hún er að „alþýðu­skapi“ og hefur notað mögu­leika inter­nets­ins til hins ítrasta, alsjóuð í öllum Tiktok-töktum, mímum og gervi­greindar-töfra­brögðum. Hún er sölu­hæsti jazzlistamaður sam­tím­ans, Norah Jones okkar tíma, og sú sem þykir hafa „bjargað jazzinum“ frá hægum dauða. Það hnussar nátt­úr­lega í hrein­trú­ar­mönnum – Þetta er ekki alvöru jazz! – en yfir það heila er jazzgeggjurum vel við Laufeyju og vona að ungir aðdá­endur hennar muni feta sig lengra inn á víð­erni jazzins.“

Ólafur Arnalds er fullur þakk­lætis fyrir til­nefn­ing­una og þakkar þeim sem unnu að plöt­unni sem er til­nefnd.

Grammy-verð­launin verða afhent 4. febr­úar 2024. Hér má sjá allar til­nefn­ing­arnar en flestar hlýtur tón­list­ar­konan SZA. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Gaman þegar svona ung kona er að fást við tónlist sem er gamallar gerðar og nær eyrum fólks með því. Góður listamaður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár