Árni Oddur í greiðslustöðvun

Arion banki hefur leyst til sín um fjórð­ung af bréfum Árna Odds Þórð­ar­sonar Í Eyri Invest. Sú aðgerð hefur leitt til þess að hann hefur fengið sam­þykkta greiðslu­stöðvun „til að fá tíma og rúm til að vinna að far­sælli og sann­gjarnri lausn.“

Árni Oddur í greiðslustöðvun
Hættur Áður en Árni Oddur Þórð­ar­son sett­ist í for­stjóra­stól­inn hjá Marel var hann stjórn­ar­for­maður félags­ins í átta ár. Mynd: Marel

Árni Oddur Þórð­ar­son, sem hætti í gær sem for­stjóri Marels eftir að hafa setið sem slíkur í ára­tug, hefur fengið sam­þykkta greiðslu­stöðvun. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá honum. Þar segir hann að greiðslu­stöðv­unin sé vegna „þeirrar réttaró­vissu sem skap­ast hefur vegna aðgerða Arion banka, sem leyst hefur til sín hluta hluta­bréfa minna í Eyri Invest, leið­andi fjár­festis í Marel, þrátt fyrir að ákvæðum lang­tíma­lána­samn­ings við bank­ann hafi verið full­nægt.“ 

Alls átti Árni Oddur 18,1 pró­sent í Eyri Invest þangað til nýverið og var næst stærsti eig­andi félags­ins, sem er stærsti hlut­hafi Marel með tæp­lega fjórð­ungs­hlut. Eini hlut­haf­inn sem á stærri hlut í Eyri Invest er Þórður Magn­ús­son, faðir Árna Odds, með 20,7 pró­sent.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands um við­skipti stjórn­enda í Marel sem send var út í gær kom fram að 31. októ­ber síð­ast­lið­inn hafi Arion banki, sem lán­veit­andi og veð­hafi, til­kynnt Árna Oddi „að bank­inn hefði ákveðið að taka til sín 44.000.000 hluti í Eyri Invest hf., eða sem nemur 4,87 pró­sent hluta­fjár í Eyri Invest hf., sem stóðu til trygg­ingar láni Árna Odds Þórð­ar­sonar hjá bank­anum.“ 

Eigna­til­færslan á hluta­bréf­unum í Eyri fór fram á geng­inu 34,2 kr. á hlut. Í til­kynn­ing­unni segir að ágrein­ingur sé á milli Árna Odds og Arion banka um lög­mæti og útfærslu á þess­ari ráð­stöfun bank­ans. Eftir við­skiptin á Árni Oddur, beint og óbeint, 13,03 pró­sent hluta­fjár í Eyri Invest hf.

Árni Oddur telur að aðgerð bank­ans sé hvorki í sam­ræmi við samn­inga, lög né við­teknar venjur. „Fyrir liggur að eignir eru vel umfram skuld­bind­ingar þrátt fyrir lækkun á mark­aðs­verði hluta­bréfa Marel að und­an­förnu. Ég hef nú fengið sam­þykkta greiðslu­stöðvun til að fá tíma og rúm til að vinna að far­sælli og sann­gjarnri lausn.“

Markaðsvirðið lækkaði mikið í dag

Rekstur Marel hefur verið undir vænt­ingum á síð­ustu árum og mark­aðsvirði félags­ins lækk­aði um 43,9 pró­sent á árinu 2022, þegar það fór úr 663,5 millj­örðum króna í tæp­lega 367 millj­arða króna. Mark­aðsvirðið hefur lækkað um 23,4 pró­sent það sem af er árinu 2023 og var 264,5 millj­arðar króna við lok við­skipta í dag eftir 6,4 pró­sent lækkun frá því að við­skipti hófust í morgun. Það þýðir að mark­aðsvirðið lækk­aði um rúm­lega 18 millj­arða króna í dag og hefur alls lækkað um 399 millj­arða króna frá byrjun árs í fyrra. 

Árni Oddur hefur verið einn hæst laun­aði for­stjóri lands­ins und­an­farin ár. Laun hans voru um 11,2 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra að með­al­tali og lækk­uðu um 14 pró­sent milli ára. Þar munar mestu um 30 millj­óna króna bón­us­greiðslu sem hann fékk á árinu 2021, en Árni Oddur fékk enga slíka í fyrra. Til við­­bótar við þessi laun þá vann Árni Oddur sér inn umtals­verða kaup­rétti sem metnir voru á 426 þús­und evr­­­ur, um 64,3 millj­­ónir króna, á síð­­asta ári.

Neikvætt eigið fé

Eftir veð­kallið á Árni Oddur um 13,2 pró­sent hlut í Eyri Invest. Eign­ar­hlutir hans í félag­inu hafa verið í hans eigin nafni og í einka­hluta­fé­lagi sem ber nafn hans, Árni Oddur Þórð­ar­son ehf. Það félag hélt á 1,3 pró­sent hlut í Eyri Invest í lok síð­asta árs en virði þess hlutar var bók­fært á um 703 millj­ónir króna. Það hafði þá rýrnað um rúm­lega einn millj­arð króna á einu ári. Miðað við lækkun á virði bréfa í Marel það sem af er þessu ári má gera ráð fyrir að virði þess hlutar sé nú um hálfur millj­arður króna. 

Í síð­asta birta árs­reikn­ingi félags­ins segir að skuld þess við lána­stofnun, sem var upp á 936 millj­ónir króna, væri í íslenskum krónum með einni afborgun höf­uð­stóls á árinu 2025. „Vextir eru breyti­legir og greið­ast árlega. Eigandi félags­ins hefur sett trygg­ingar fyrir lán­inu með hand­veði í eign­ar­hlutum í öðru félagi og sjáfs­skuld­ar­á­byrgð.“

Fall á virði Marels í fyrra gerði það að verkum að eigið fé félags­ins fór frá því að vera jákvætt um 529 millj­ónir króna í lok árs 2021 í að vera nei­kvætt um 593 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Sú staða hefur versnað á þessu ári. 

Árni Oddur sagði í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér í gær að Arion banki hafi gripið til veð­kalls, og leyst til sín eign­ar­hluti sem eru umfram þá sem vistaðir voru inni í ofan­greindu félagi, þrátt fyrir að ákvæðum lang­tíma­lána­samn­ings hans við bank­ann hafi verið full­nægt. „Ég hef átt í við­ræðum við bank­ann síð­ustu vikur, sem ég taldi vera í fullu trausti, og gekk svo langt að leggja allar mínar eigur undir til að tryggja að veð­hlut­fall láns­ins næmi tvö­faldri fjár­hæð í lána­samn­ingi. Á síð­ustu stundu bætti bank­inn við óað­gengi­legum kröfum umfram skil­mála lána­samn­ings, hafn­aði inn­á­greiðslu upp á 335 millj­ónir króna og kaus að leysa bréfin til sín frekar en að efna lána­samn­ing­inn. Bréfin leysti bank­inn til sín á und­ir­liggj­andi virði eigna skv. lána­samn­ingi 31.októ­ber, gjald­felldi lánið en hefur enn ekki skilað umfram­virði eigna.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Gudmundsdottir skrifaði
    Það er von að vesalings maðurinn þurfi langtímabankalán.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár