Arion banki tekur til sín um fjórðung af hlut Árna Odds í Eyri Invest – Hann hættir sem forstjóri Marel

Árni Oddur Þórð­ar­son er hættur sem for­stjóri Marel vegna per­sónu­legra aðstæðna. Á sama tíma og til­kynnt var um starfs­lokin var greint frá því að Arion banki hefði leyst til sín rúm­lega fjórð­ung eignar hans í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel.

Arion banki tekur til sín um fjórðung af hlut Árna Odds í Eyri Invest – Hann hættir sem forstjóri Marel
Hættur Árni Oddur Þórð­ar­son hefur misst frá sér hluta af eign sinni í Marel og er lætur af störfum sem for­stjóri eftir ára­tug á þeim stóli. Mynd: Marel

Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel, hefur óskað eftir því að láta af störfum frá og með deg­inum í dag vegna per­sónu­legra ástæðna. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að stjórn félags­ins hafi fall­ist á starfs­lokin og að Árni Sig­urðs­son, sem gegnt hefur starfi aðstoð­ar­for­stjóra Marel, taki við starfi for­stjóra tíma­bundið á meðan stjórn mun finna félag­inu for­stjóra til fram­tíðar.

Árni Oddur, sem hefur verið for­stjóri Marel í tíu ár, og á meðal stærstu hlut­hafa Marel, í gegnum eign­ar­hlut sinn í Eyri Invest sem á 24,7 pró­sent í félag­inu. Alls átti Árni Oddur 18,1 pró­sent í Eyri Invest og var næst stærsti eig­andi félags­ins, sem er stærsti hlut­hafi Marel. Eini hlut­haf­inn sem á stærri hlut í Eyri Invest er Þórður Magn­ús­son, faðir Árna Odds, með 20,7 pró­sent.

Staða Árna Odds í Eyri Invest breytt­ist hins vegar í dag. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands um við­skipti stjórn­enda í Marel kemur fram að 31. októ­ber síð­ast­lið­inn hafi Arion banki, sem lán­veit­andi og veð­hafi, til­kynnt Árna Oddi „að bank­inn hefði ákveðið að taka til sín 44.000.000 hluti í Eyri Invest hf., eða sem nemur 4,87 pró­sent hluta­fjár í Eyri Invest hf., sem stóðu til trygg­ingar láni Árna Odds Þórð­ar­sonar hjá bank­anum.“ 

Eigna­til­færslan á hluta­bréf­unum í Eyri fór fram á geng­inu 34,2 kr. á hlut. Í til­kynn­ing­unni segir að ágrein­ingur sé á milli Árna Odds og Arion banka um lög­mæti og útfærslu á þess­ari ráð­stöfun bank­ans. Eftir við­skiptin á Árni Oddur, beint og óbeint, 13,03 pró­sent hluta­fjár í Eyri Invest hf.

Í til­kynn­ingu sem Árni Oddur sendi frá sér undir kvöldd sagði að ástæðan fyrir því að hann stígi til hliðar sem for­stjóri Marels á þessum tíma­punkti sé sú réttaró­vissa sem skap­ast hafi vegna aðgerða Arion banka sem eru að hans mati hvorki í sam­ræmi við samn­inga, lög né við­teknar venjur. „Arion­banki greip til þeirra aðgerða þrátt fyrir að ákvæðum lang­tíma­lána­samn­ings míns við bank­ann hafi verið full­nægt af minni hálfu, en ég hef átt í við­ræðum við bank­ann síð­ustu vikur, sem ég taldi vera í fullu trausti, og gekk svo langt að leggja allar mínar eigur undir til að tryggja að veð­hlut­fall láns­ins næmi tvö­faldri fjár­hæð í lána­samn­ingi. Á síð­ustu stundu bætti bank­inn við óað­gengi­legum kröfum umfram skil­mála lána­samn­ings, hafn­aði inn­á­greiðslu upp á 335 millj­ónir króna og kaus að leysa bréfin til sín frekar en að efna lána­samn­ing­inn. Bréfin leysti bank­inn til sín á und­ir­liggj­andi virði eigna skv. lána­samn­ingi 31.októ­ber, gjald­felldi lánið en hefur enn ekki skilað umfram­virði eigna.“

Árni Oddur segir að aðgerð Arion banka hafi verið mót­mælt af lög­mönnum mínum og málið kynnt Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. „Ásamt lög­mönnum mínum mun ég nú ein­beita mér að því að fá skýr­leika í málið og að leysa úr þess­ari réttaró­vissu.“

Markaðsvirðið dregist mikið saman

Rekstur Marel hefur verið undir vænt­ingum á síð­ustu árum og mark­aðsvirði félags­ins lækk­aði um 43,9 pró­sent á árinu 2022, þegar það fór úr 663,5 millj­örðum króna í tæp­lega 367 millj­arða króna. Mark­aðsvirðið hefur lækkað um 23,4 pró­sent það sem af er árinu 2023 og var 282,6 millj­arðar króna við lok við­skipta í dag. Það þýðir að mark­aðsvirðið hefur lækkað um 381 millj­arð króna frá byrjun árs í fyrra. 

Árni Oddur hefur verið einn hæst laun­aði for­stjóri lands­ins und­an­farin ár. Laun hans voru um 11,2 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra að með­al­tali og lækk­uðu um 14 pró­sent milli ára. Þar munar mestu um 30 millj­óna króna bón­us­greiðslu sem hann fékk á árinu 2021, en Árni Oddur fékk enga slíka í fyrra. Til við­­bótar við þessi laun þá vann Árni Oddur sér inn umtals­verða kaup­rétti sem metnir voru á 426 þús­und evr­­­ur, um 64,3 millj­­ónir króna, á síð­­asta ári.

Segist vilja lágmarka skaðann fyrir Marel

Árni Oddur sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins nú undir kvöld.

Hún er eft­ir­far­andi í heild sinni:

„Við faðir minn, Þórður Magn­ús­son, komum inn í hlut­hafa­hóp Marel fyrir tæpum tutt­ugu árum og höfum verið leið­andi fjár­festar í Marel sem stærstu hlut­hafar í Eyrir Invest. Á þessum tíma hefur veg­ferð Marel verið ævin­týri lík­ust, félagið er heims­leið­togi á sviði lausna, hug­bún­aðar og þjón­ustu í mat­væla­iðn­aði. Marel hefur vaxið frá því að vera með 700 starfs­menn og 130 millj­ónir evra í árlegar tekjur yfir í alþjóð­legt fyr­ir­tæki með starfs­stöðvar um allan heim, 7.500 starfs­menn og 1,7 millj­arða evra í árlegar tekjur. Á sama tíma hafa þjón­ustu­tekjur farið úr 10% í yfir 40% af heild­ar­tekjum. Marel er í far­ar­broddi í nýsköpun og sjálf­bærni og hefur lagt lóð á vog­ar­skál­arnar til að umbylta mat­væla­fram­leiðslu í heim­inum. Marel hefur verið fyr­ir­mynd í við­skipta- og sprotaum­hverfi á Íslandi og hefur stutt íslenskan sjáv­ar­út­veg til auk­innar sjálf­bærni og arð­semi.

 Hlut­hafar félags­ins hafa notið góðs af þeim árangri sem náðst hefur, en árleg með­al­á­vöxtun, þar á meðal hjá íslenskum líf­eyr­is­sjóðum og almenn­ingi, hefur verið yfir 10 pró­sent. Þó að síð­asta ár hafi verið við­skipta­vinum krefj­andi vegna ytri aðstæðna, þá var unnið að öfl­ugri við­spyrnu innan félags­ins og sáust þess skýr merki í nýjasta upp­gjöri félags­ins þar sem kostn­að­ar­grunnur hefur lækkað mikið, sjóðs­streymi er gríð­ar­lega sterkt og grein­endur á mark­aði eru sam­mála um að félagið sé veru­lega und­ir­verð­lagt. 

Ástæðan fyrir því að ég stíg til hliðar sem for­stjóri Marels á þessum tíma­punkti er sú réttaró­vissa sem skap­ast hefur vegna aðgerða Arion­banka sem eru hvorki í sam­ræmi við samn­inga, lög né við­teknar venjur, en bank­inn hefur leyst til sín hluta­bréf mín í Eyri Invest, sem er leið­andi fjár­festir í Marel. Arion­banki greip til þeirra aðgerða þrátt fyrir að ákvæðum lang­tíma­lána­samn­ings míns við bank­ann hafi verið full­nægt af minni hálfu, en ég hef átt í við­ræðum við bank­ann síð­ustu vikur, sem ég taldi vera í fullu trausti, og gekk svo langt að leggja allar mínar eigur undir til að tryggja að veð­hlut­fall láns­ins næmi tvö­faldri fjár­hæð í lána­samn­ingi. Á síð­ustu stundu bætti bank­inn við óað­gengi­legum kröfum umfram skil­mála lána­samn­ings, hafn­aði inn­á­greiðslu upp á 335 millj­ónir króna og kaus að leysa bréfin til sín frekar en að efna lána­samn­ing­inn. Bréfin leysti bank­inn til sín á und­ir­liggj­andi virði eigna skv. lána­samn­ingi 31.októ­ber, gjald­felldi lánið en hefur enn ekki skilað umfram­virði eigna.

Aðgerð Arion­banka hefur verið mót­mælt af lög­mönnum mínum og málið kynnt Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Ásamt lög­mönnum mínum mun ég nú ein­beita mér að því að fá skýr­leika í málið og að leysa úr þess­ari réttaró­vissu. 

Til að lág­marka líkur á því að þessi staða sem upp er komin skaði Marel, sem mér er svo kært, hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem for­stjóri. Mér er ljúft að segja, að skarð mitt verður auð­fyllt, þar sem Marel hefur á að skipa ein­stökum hópi hæfi­leik­a­ríks starfs­fólks. Ég mun gera allt til að ná far­sælli lausn mála og von­ast til að geta tekið þátt í fram­tíðar verð­mæta­sköpun Marel sem hlut­hafi í félag­inu.

Eftir stendur, að á þessum tíma­mótum er ég fullur þakk­lætis fyrir þann tíma sem ég hef leitt Marel. Ég deili skoðun erlendra grein­enda sem meta hluta­bréf félags­ins veru­lega und­ir­verð­lögð og mæla sterk­lega með kaupum. Ég er óend­an­lega stoltur af því sem öfl­ugur starfs­manna­hópur félags­ins hefur áorkað saman og veit að Marel mun vaxa og dafna og halda áfram að leiða fram­þróun í mat­væla­fram­leiðslu í heim­inum.“

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár