Laxadauðinn í Tálknafirði: Tæplega 100 lýs á hverjum fiski hjá Arctic Fish

Fjöldi laxalúsa í sjó­kvíum Arctic Fish og Arnarlax í Tálkna­firði marg­fald­að­ist á stuttum tíma. Hjá Arctic Fish fimm­fald­að­ist fjöldi lúsa á tveimur vikum. Laxalúsafar­ald­ur­inn sem geis­aði í Tálkna­firði í haust er án hlið­stæðu, bæði hér á landi og erlendis.

Laxadauðinn í Tálknafirði: Tæplega 100 lýs á hverjum fiski hjá Arctic Fish
Fimm­földun á tveimur vikum Tæplega 100 laxa­lýs fund­ust á eld­is­löx­unum í kvíum Arctic Fish á Tálkna­firði í byrjun nóv­em­ber og hafði lúsa­fjöld­inn fimm­fald­ast á tveimur vikum. Veiga Grét­ars­dóttir tók þessa mynd af sár­ugum löx­unum í lok októ­ber. Allir lax­arnir drápust að þeim var slátrað vegna lús­ar­innar.

Meira en 100 laxa­lýs fund­ust á sumum af eld­is­löx­unum hjá Arctic Fish í Tálkna­firði sem drápust eða þurfti að farga vegna fyrsta lúsafar­ald­urs­ins sem komið hefur upp í íslensku sjó­kvía­eldi. Þetta kemur fram í tölum sem Mat­væla­stofnun (MAST) sendi Heim­ild­inni á grund­velli gagna­beiðni. Laxalýs á fiskum í kvíum eru taldar reglu­lega; starfs­menn eld­is­fyr­ir­tækja háfa þá lax­ana, svæfa þá, telja lýsnar á þeim og setja svo aftur í sjó­inn. 

Um er að ræða tölur um fjölda lúsa úr sex sjó­kvíum Arctic Fish í Hvanna­dal í Tálkna­firði. Þessar tölur eru meðal ann­ars frá mæl­ingum í viku 40, segir í svari MAST, eða frá 2. til 8. októ­ber. Þá fund­ust rúm­lega 96 lýs á löx­unum að með­al­tali. Laxalúsin étur roðið á lax­inum þannig að sár mynd­ast og bakt­er­íur kom­ast í sárin og stækka þau; lax­arnir verða svo veik­burða vegna þessa og drep­ast á end­anum ef þeim er ekki slátrað áður en til þess …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár