„Fertugur faðir með bumbu“ og diplómu í dansi er landsliðið í karókí

Karókís­öngv­ari þarf að hafa góða stjórn á rödd­inni. Það veit Hannes Þórður Hafstein Þor­valds­son sem var upp­götv­aður af umboðs­manni Norð­ur­land­anna í karókí á norskum bar í vor. Hannes fékk boð sem hann gat ekki hafnað: Að taka þátt í heims­meist­ara­keppn­inni í karókí, fyrstur Íslend­inga.

Á stóra sviðinu Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson söng lagið Bella Maria de mi alma,sem Antonio Banderas söng eftirminnilega í kvikmyndinni Mambo Kings árið 1992, í fyrstu umferð heimsmeistarakeppninnar í karaoke sem fer fram í Panama um helgina. Úrslitin ráðast á morgun.

Alla virka daga mætir Hannes Þórður Hafstein Þor­valds­son lyfja­fræð­ingur í vinn­una hjá Mat­væla­stofnun þar sem hann starfar sem fags­viðs­stjóri. Í frí­tíma sínum syngur Hannes í kór, eins og svo margir Íslend­ingar, en söngá­hugi hans nær lengra. Hannes er mik­ill áhuga­maður um karókí og áhug­inn hefur nú leitt hann í mikla ævin­týra­för, alla leið til Panama þar sem heims­meist­ara­keppnin í karókí nær hápunkti um helg­ina. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland sendir kepp­anda í heims­meist­ara­keppn­ina í karókí, Karaoke World Championships, og má það þakka umboðs­manni Norð­ur­land­anna í karókí sem upp­götv­aði Hannes á karókí-bar í Noregi í vor.  

„Ég var nú bara í sak­leysi mínu að eyða dauðum tíma í vinnu­ferð í Osló og dunda mér við að syngja. Umboðs­mað­ur­inn fyrir Norð­ur­löndin var þar og nálg­að­ist mig þegar ég var búinn að syngja tvö, þrjú lög. Hann var bara svona hrif­inn greini­lega og þekkti hæfi­leik­ana um leið,“ segir Hannes. …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár