Eigendur vistvænna bíla munu borga þrjá milljarða á næsta ári í nýtt gjald

Eigendur raf­magns­bíla, sem eru að uppi­stöðu tekju­hæstu hópar sam­fé­lags­ins, hafa fengið ríf­lega skatta­af­slætti á síð­ustu árum. Auk þess hefur rekstur raf­magns­bíla kostað mun minna en ann­arra, enda hafa þeir ekki greitt fyrir afnot af sam­göngu­kerf­inu. Með nýju frum­varpi á að hækka þann rekstr­ar­kostnað um 84 þús­und krónur að með­al­tali á ári.

Eigendur vistvænna bíla munu borga þrjá milljarða á næsta ári í nýtt gjald
Búist við minni notkun Breyt­ing­arnar munu gera það dýr­ara fyrir stóran hóp að nota bíl. Stjórn­völd búast því við að notkun þeirra muni minnka sam­hliða og draga meðal ann­ars úr sliti á vegum. Það þýði að kostn­aður við við­hald muni, yfir lengri tíma, verða minni en ella. Mynd: Shutterstock

Und­an­farin ár hefur raf­bíla­eign stór­auk­ist á Íslandi. Þeir eru nú orðnir rúm­lega 20 þús­und á götum lands­ins. Það sem af er árinu 2023 hafa um 43 pró­sent allra nýskráðra bíla verið hreinir raf­magns­bílar. 

Það hefur enda verið afar hag­kvæmt að kaupa raf­magns­bíla. Íviln­anir hafa verið til staðar til að ýta undir orku­skipti í bíla­flot­anum sem hafa falið í sér 1.320 þús­und króna end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti þegar slíkir bílar eru keyptir og greiddu engin vöru­gjöld við kaup á nýjum bíl þar til í lok árs í fyrra þegar vöru­gjöldin voru hækkuð í fimm pró­sent. Raf­magnið er líka miklu ódýr­ari orku­gjafi en bensín, sem ber alls kyns vöru­gjöld og skatta sem gera það að verkum að um helm­ingur af hverjum seldum bens­ín­lítra endar í rík­is­sjóði. 

Þau gjöld hafa verið lögð á til að borga fyrir rekstur sam­göngu­kerf­is­ins, meðal ann­ars vega­gerð. Á árunum 2010 til 2017, áður en raf­bíla­væð­ingin hófst af …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Auðvita eiga allir sem nota vegakerfið að borga fyrir það eftir notkun.
    Hér um árið hét þetta þungaskattur.
    Allir hugsandi vita að álag á vegakerfið er háð þunga farartækjanna og hve mikið er ekið.
    Hugleiðingar um annað, er einungis til þess að flækja eðlilega gjaldtöku vegna notkunar vega.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Tími til kominn að rafbíaeigendur leggi eitthvað til samfélagsins.
    0
    • Kristján Guðmundsson skrifaði
      Við erum að draga úr innflutningi á olíu => spara gjaldeyri.
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár