Forseti ASÍ segir ríkisstjórnina firrta –„Þetta fólk deilir ekki lengur kjörum með almenningi í landinu“

Finn­björn A. Her­manns­son sagði í ræðu á föstu­dag að ekki yrði hjá því kom­ist að verka­lýðs­hreyf­ingin fjalli um spill­ing­una sem tröll­ríði stjórn­málum og fjár­mála­lífi hér á landi. Skyldur stjórn­mála­manna séu gagn­vart öðrum en almenn­ingi í land­inu. Framundan væri risa­vaxið verk­efni í bar­áttu við verð­bólgu, hús­næð­is­vanda, ójöfnuð og fúna inn­viði. Samstöðu þurfi til að takast á við það verk­efni.

Forseti ASÍ segir ríkisstjórnina firrta –„Þetta fólk deilir ekki lengur kjörum með almenningi í landinu“
Forseti ASÍ Í ræðu sinni á föstu­dag sagði Finn­björn A. Her­manns­son að sam­fé­lag okkar væri „í veru­legum vanda statt og ráða­menn kunna þá lausn eina að auka álögur á almenn­ing.“ Mynd: ASÍ

„Við getum auð­vitað velt því fyrir okkur hvort það stjórn­mála­fólk sem nú er við völd í land­inu skorti ábyrgð­ar­til­finn­ingu. Við vitum að skeyt­ing­ar­leysið um hag launa­fólks er algjört. En eru þau ábyrgð­ar­laus. Ég tel svo ekki vera. Þau hafa bara skyldum að gegna gagn­vart öðrum en almenn­ingi í land­inu, sem skýrist af aðgerðum á kjör­tíma­bil­inu.“ Þetta sagði Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) í ræðu sinni á for­manna­fundi sam­bands­ins sem fram fór á föstu­dag. 

Finn­björn sagði að skýr­ing­arnar fyrir því ástandi sem ríkir á Íslandi í dag – þar sem há verð­bólga, dýr­tíð og síhækk­andi vextir leika mörg heim­ili lands­ins illa – væru senni­lega margar. „En ég hef að und­an­förnu staldrað við þá firr­ingu sem ein­kennir íslensku stjórn­mála­stétt­ina og núver­andi rík­is­stjórn sér­stak­lega. Ég tel skýr­ing­una vera þá að þetta fólk deilir ekki lengur kjörum með almenn­ingi í land­inu. Við getum nefnt skatt­lausan starfs­kostnað, ofur­rétt­indi í líf­eyr­is­málum, frí umtals­verðan hluta árs­ins og nú síð­ast ferða­hvetj­andi frí­punkta­kerfi. Ég tel þetta til marks um spill­ingu í íslenskum stjórn­málum; ráðin eru sam­an­tekin og almenn­ingur borgar.“

„Þarna talar valda­maður, sem nýtur sér­kjara í öllum efnum, til launa­fólks.“

Í ræð­unni ræddi Finn­björn mikið um ábyrgð, og hvar hún lægi. Hann sagði að fyrr eða síðar yrði ekki kom­ist hjá því að verka­lýðs­hreyf­ingin fjalli um spill­ing­una sem tröll­ríði stjórn­málum og fjár­mála­lífi hér á landi. „Þetta er fólkið sem nú krefur verka­lýðs­hreyf­ing­una um að ganga fram af „ábyrgð“ því ella fari atvinnu- og efna­hags­lífið hér á hlið­ina með til­heyr­andi hörm­ungum. Svig­rúmið marg­fræga er nefni­lega ekki neitt – eitt fyrsta verk nýja fjár­mála­ráð­herr­ans var að láta þau boð út ganga að nú væri alls ekk­ert svig­rúm til að hækka launin. Þarna talar valda­maður, sem nýtur sér­kjara í öllum efnum, til launa­fólks.“

Þessum mál­flutn­ingi fjár­mála­ráð­herra vís­aði Finn­björn á bug og sagði launa­fólk ekki bera ábyrgð á verð­bólg­unni, hús­næð­is­vand­anum, ein­ok­un­inni, vaxta­okr­inu, verð­sam­ráð­inu, þjón­ustu­skort­inum og stöð­ugum hækk­unum á nauð­synja­vörum. „Þaðan af síður er það ábyrgt fyrir þeirri skefja­lausu mis­skipt­ingu auðs­ins sem við horfum upp á og lýsir sér í allsnægtum útvaldra og eigna­leysi hinna mörgu. Þannig birt­ist okkur „stöð­ug­leik­inn“ marg­frægi. Eftir sex ár af „stöð­ug­leika“ er lands­mönnum öllum orðið ljóst hvað hann þýðir; í honum fel­ast verk­leysi, kyrr­staða, óbreytt ástand, inni­halds­lausar glæru­sýn­ingar, lím­seta á valda­stólum, vald­anna vegna.“

Ófremdarástand blasi við

Hann fór svo yfir stöð­una, og þróun síð­ustu miss­era, eins og hún horfir við honum. Hús­næð­is­lána­kerfi og -upp­bygg­ing væru algjör­lega í molum og lág­vaxta­stefnan sem Seðla­bank­inn bæði boð­aði og inn­leiddi hefði beðið algjört skip­brot. Þeir sem ábyrgð­ina bera á því hvetji nú skuldum hlaðið fólk að færa sig yfir í verð­tryggð lán. „Fólk er flutt nauð­ung­ar­flutn­ingum yfir í Íslands­lánin alræmdu og í skulda­fang­elsi og eigna­leysi. Svona fram­koma þekk­ist hvergi í sið­mennt­uðum sam­fé­lögum.“

Finn­björn var ekki mjúk­mælt­ari þegar kom að því að ræða um fjár­mála­kerfið. Hann sagði það ekki þjóna almenn­ingi og að það hafi komið skýrt fram í nýlegri skýrslu starfs­hóps um gjald­töku og arð­semi bank­anna. „Sam­keppni á þessu sviði er í raun engin og hagn­að­ur­inn ofboðs­legur. Stjórn­völd boða óbreytt ástand, kyrr­stöðu „stöð­ug­leik­ans“. Þetta kerfi er með öllu óboð­legt og því þarf að breyta.“ Um þá skýrslu má lesa hér. 

Þá væru grunn­kerfi á borð við heil­brigð­is­kerfið í molum og þrátt fyrir ítök Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn­inni hefðu meira að segja ungir bændur fengið að finna fyrir sinnu­leys­inu. 

Sam­an­dregið blasi ófremd­ar­á­stand við öllum þeim sem séu ekki eru í djúpri afneitun og með­virkni nú þegar við­ræður um nýja kjara­samn­inga eru að fara að hefj­ast fyrir alvöru. „Samfélag okkar er í veru­legum vanda statt og ráða­menn kunna þá lausn eina að auka álögur á almenn­ing.“

„Græðgin og ósvífnin hurfu ekki í hruninu“

Forseti ASÍ full­yrti að póli­tíkin myndi ekki snúa þess­ari þróun við. Það væri á ábyrgð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að gera það og sú ábyrgð væri „allt ann­ars eðlis en fjár­magns­öflin halda á lofti í fjöl­miðlum sínum og gagn­vart íslenskum almenn­ingi.“

„bregð­ist verka­lýðs­hreyf­ingin nú munu sér­hags­muna- og fjár­magns­öflin herða sókn­ina og vaða yfir þetta þjóð­fé­lag.“

Verka­lýðs­hreyf­ingin væri sterkasta afl fram­fara, mann­rétt­inda og breyt­inga á Íslandi. „Við getum ekki yppt öxlum og leitt hjá okkur sam­fé­lags­breyt­ingar sem aug­ljós­lega eru fjöld­anum og fram­tíð­inni ekki til góðs. Sem fram­fara­afl og mann­rétt­inda­hreyf­ing þurfum við að axla þá ábyrgð saman sem þessu hlut­verki fylgir. Það krefst félags­legs þroska og það krefst aga.“

Hreyf­ingin verði að vera til­búin til að greina stóru mynd­ina og skil­greina verk­efnin. „Við verðum að vera til­búin til að beisla kraft­inn sem felst í sam­stöðu okkar og knýja fram bætt kjör alls launa­fólks að sjálf­sögðu en einnig sam­fé­lags­legar umbætur í þágu jöfn­uðar og mann­legrar reisnar. Enginn annar mun gera þetta fyrir okkur; bregð­ist verka­lýðs­hreyf­ingin nú munu sér­hags­muna- og fjár­magns­öflin herða sókn­ina og vaða yfir þetta þjóð­fé­lag án minnstu virð­ingar fyrir rétt­indum og hags­munum launa­fólks. Græðgin og ósvífnin hurfu ekki í hrun­inu, öðru nær.“

Persónulegar erjur að baki

Mikil átök hafa geisað innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar und­an­farið. Deilur hafa verið á milli for­manna, sér­stak­lega Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar, og Vil­hjálms Birg­is­sonar, for­manns Starfs­greina­sam­bands­ins. Deil­urnar hafa líka ratað inn í ASÍ og birt­ust meðal ann­ars í mik­illi gagn­rýni Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, á for­ystu sam­bands­ins. Deil­urnar urðu til þess að fyrr­ver­andi for­maður sam­bands­ins, Drífa Snædal, sagði af sér í fyrra þar sem átökin innan sam­bands­ins væru orðið „óbæri­leg“. 

Finn­björn tók við emb­ætti for­seta ASÍ í apríl á þessu ári. Hann sagð­ist í ræð­unni hafa gert það í full­vissu þess að verka­lýðs­hreyf­ingin ætl­aði að snúa bökum saman og að per­sónu­legar erjur væru að baki. „Ég veit að við náum engu fram í þeim stóru verk­efnum sem við okkur blasa ef við ætlum að við­halda klofn­ingi og ágrein­ingi. Ef það er ein­lægur ásetn­ingur okkar að nýta ekki styrk­inn sem felst í fjöld­anum og sam­stöð­unni full­yrði ég að sér­hags­muna­verð­irnir og fjár­magns­öflin munu ekki hika við að færa sér í nyt svo aug­ljós veik­leika­merki.“

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins stefni bein­línis að því að rústa til­veru­grund­velli stétt­ar­fé­laga og hreyf­ing­ar­innar, að sögn Finn­björns, og vísar hann þar til frum­varps sem lagt hefur verið fram nokkrum sinnum af þeim sem hefur það mark­mið að afnema skyldu­að­ild að verka­lýðs­fé­lögum. Hann benti líka á að vinnu­mark­aðslíkanið sæti stöð­ugum árásum og að „and­stæð­ingar“ verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar ætli sér að auka völd rík­is­sátta­semj­ara og þar með veikja þau vopn sem hún ráði yfir í kjara­bar­átt­unni. „Þetta er veru­leik­inn. Ef ekki er ástæða nú til að slíðra sverðin og þétta rað­irnar fæ ég ekki séð við hvaða aðstæður það er yfir­höfuð nauð­syn­legt. Bresti sam­staða okkar getur mjög illa farið og ger­ist það höfum við ekki staðið undir ábyrgð okkar.“

Risavaxið verkefni framundan

Undir lok ræðu sinnar ræddi Finn­björn um nauð­syn­lega sam­stöðu á mis­mun­andi grund­velli. Hann fór yfir að á fundi for­manna lands­sam­banda og stærstu aðild­ar­fé­laga ASÍ í lið­inni viku hafi náðst sam­staða um að ASÍ félögin standi saman að við­ræðum við við­semj­endur innan Samtaka atvinnu­lífs­ins og við full­trúa rík­is­valds­ins um sam­eig­in­leg mál.

Hann rifj­aði svo upp aðdrag­anda þjóð­ar­sátt­ar­samn­ing­anna sem und­ir­rit­aðir voru í febr­ú­ar­mán­uði 1990 og orð Guð­mundar J. Guð­munds­sonar – oft­ast kall­aður „Jaki“ og þáver­andi for­maður Verka­manna­sam­bands­ins – að þótt slíkir sátt­ar­samn­ingar um að kveða verð­bólgu í kút­inn væru ekki með öllu áhættu­lausir hefði það verið „helj­ar­stökk inn í nátt­myrkrið að fara gömlu verð­bólgu­leið­ina.“ Ekkert færi verr með þá lægst­laun­uðu en verð­bólgan.

Finn­björn sag­ist telja að orð Jakans eigi vel við í dag. „Árangur í glímunni við verð­bólg­una er for­senda þess að unnt sé að auka kaup­mátt­inn. Við vitum öll að launa­hækk­anir verða fljótt að engu á verð­bólgu­tímum. Raun­veru­legum kjara­bótum í þágu þeirra sem lægstu launin hafa náum við ekki fram í stjórn­lausu efna­hags­um­hverfi.“

Framundan væri risa­vaxið verk­efni. „Ég legg áherslu á að verka­lýðs­hreyf­ingin mun ein og sér ekki leiða bar­átt­una gegn verð­bólg­unni; for­senda árang­urs í því verk­efni er sam­starf hreyf­ing­ar­innar, atvinnu­rek­enda, banka, versl­unar, sveit­ar­fé­laga og rík­is­valds­ins. Og fleiri verða kall­aðir til. Það krefst heið­ar­leika, trausts og sam­eig­in­legrar sýnar allra á verk­efnið. Takist ekki að stilla saman þessa strengi tel ég allar líkur á að við náum ekki við­un­andi árangri. Þessi leið er því ekki áhættu­laus frekar en þjóð­ar­sáttin 1990 en við vitum öll að gamla verð­bólgu­leiðin, eins og Guð­mundur J. nefndi hana, er í raun eng­inn val­kostur. Því þurfum við að tryggja okkur í bak og fyrir því það er alveg víst að við munum ekki ein bera ábyrgð­ina á kom­andi kjara­samn­ingum.“

Hægt er að lesa ræðu Finn­björns í heild sinni hér.

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hugsun Sjálfstæðisflokksins er að ráðast á réttindi íslensks verkafólks. Munið það í næstu kosningum.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár