Garðabær verður ekki lengur skattaparadís höfuðborgarsvæðisins

Útsvar verður hækkað í Garðabæ á næsta ári. Eftir það mun útsvarið ekki lengur vera lægst þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sá tit­ill fær­ist á Sel­tjarn­ar­nes. Krefj­andi fjár­hags­staða er ástæða þess að útsvarið verður hækkað.

Garðabær verður ekki lengur skattaparadís höfuðborgarsvæðisins
Bæj­ar­stjór­inn Almar Guð­munds­son sett­ist í bæj­ar­stjóra­stól­inn í Garðabæ í fyrra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alltaf haft hreinan meiri­hluta í sveit­ar­fé­lag­inu en fékk í fyrsta sinn undir 50 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra. Íbúum í Garðabæ hefur fjölgað um fimmt­ung á fimm árum. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Fjár­hags­á­ætlun Garða­bæjar gerir ráð fyrir því að útsvar í sveit­ar­fé­lag­inu verði hækkað úr 13,92 í 14,48 pró­sent. Gangi þau áform eftir mun útsvarið í Garðabæ, sem íbúar sveit­ar­fé­laga greiða til að standa undir ýmis­konar þjón­ustu innan þess, ekki lengur vera það lægsta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að óbreyttu. Sá tit­ill fær­ist yfir til Sel­tjarn­ar­ness, þar sem útsvarið er 14,31 pró­sent og engar hækk­anir hafa verið boð­aðar. 

Ljóst er að ákvörð­unin, sem tekin er af sveit­ar­stjórn þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur hreinan meiri­hluta, var ekki auð­veld. Í til­kynn­ingu sem birt er á vef Garða­bæjar vegna þessa segir að aðgerðin muni bæta rekstur þess hluta sveit­ar­fé­lags­ins sem rek­inn er fyrir skattfé um einn millj­arð króna og til­tekið að fast­eigna­gjöld, sem eru hinn stóri reglu­legi tekju­póst­ur­inn í rekstri Garða­bæjar, muni ekki verða hækkuð umfram verð­lag. Sér­stak­lega er til­tekið að …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár