Nýbyggður pallur og skýli í Landmannalaugum er óleyfisframkvæmd

25 fer­metra pallur og skýli er mann­virki, segir úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála, og því hefði átt að styðj­ast við mann­virkja­lög við afgreiðslu umsóknar Umhverf­is­stofn­unar á fram­kvæmd­inni en ekki skipu­lags­lög líkt og Rangár­þing ytra gerði.

Nýbyggður pallur og skýli í Landmannalaugum er óleyfisframkvæmd
Áberandi Skýlin, sem Umhverf­is­stofnun kallar skyggni með snögum fyrir hand­klæði, eru áber­andi við nátt­úru­laug­ina vin­sælu í Land­manna­laugum. Mynd: Ingvar Hafbergs

Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hefur fellt úr gildi ákvörðun sveit­ar­stjórnar Rangár­þings ytra frá því í sumar um að veita Umhverf­is­stofnun fram­kvæmda­leyfi vegna palls og skýlis við nátt­úru­laug­ina í Land­manna­laugum. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir að 25 fer­metra laugar­pallur með skyggni telj­ist til mann­virkis og því hefði átt að afgreiða umsókn Umhverf­is­stofn­unar í sam­ræmi við mann­virkja­lög en ekki skipu­lags­lög. Það hafi því verið í verka­hring bygg­ing­ar­full­trúa að taka umsókn­ina til með­ferðar og afgreiðslu. Sveit­ar­stjórnin gaf hins vegar út fram­kvæmda­leyfi eftir ákvæðum skipu­lags­laga.

„Með hlið­sjón af því sem að framan er rakið var máls­með­ferð hinnar kærðu ákvörð­unar ekki lögum sam­kvæmt og ber af þeim sökum að fella hana úr gildi,“ segir úrskurð­ar­nefndin í nið­ur­stöðu sinni.

Skýli eða skyggni?

Deilur um þessa til­teknu fram­kvæmd urðu miklar í sumar er pall­ur­inn og bað­að­staða, sem sumir kalla skýli með snögum en aðrir bún­ings­að­stöðu, blöstu við gestum Land­manna­lauga sem eru innan Friðlands­ins að Fjalla­baki.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið kærðu ákvörðun Rangár­þings ytra að veita Umhverf­is­stofnun fram­kvæmda­leyfi og kröfð­ust þess að ákvörð­unin yrði felld úr gildi sem nú hefur verið gert.

Umhverf­is­stofnun sótti um bygg­ing­ar­leyfi til sveit­ar­fé­lags­ins sum­arið 2021 og um haustið afgreiddi sveit­ar­stjórn hana sem í formi fram­kvæmda­leyfis sam­kvæmt skipu­lags­lögum. Hins vegar töfð­ust fram­kvæmdir, leyfið rann út og Umhverf­is­stofnun sótti ekki um það að nýju fyrr en í lok apríl á þessu ári. Aftur fór málið í sama far­veg og sveit­ar­stjórn veitti fram­kvæmda­leyfi um miðjan júní.

Mannvirki mega ekki spilla svip landsins

Í kröfu Nátt­úru­griða er á það bent að fram­kvæmdin hafi fallið undir ákvæði mann­virkja­laga en ekki skipu­lags­laga. Um „vald­þurrð“ sé því að ræða hjá sveit­ar­stjórn­inni. Sögðu sam­tökin jafn­framt í kæru sinni að fram­kvæmdin væri ekki í sam­ræmi við frið­lýs­ing­ar­skilmala Friðlands að Fjalla­baki frá árinu 1979 þar sem segi að ekki megi gera „mann­virki, sem spilla svip lands­ins“. Frið­lýs­ingin hafi verið gerð til að vernda sér­stakt lands­lag en ekki til að veita almenn­ingi aðgang.

Fyrsta myndin?Karen Kjart­ans­dóttir athafna- og fjall­göngu­kona birti lík­lega fyrstu mynd­ina af nýju bún­ings­að­stöð­inni í Land­manna­laugum eftir ferð sína þangað í sumar. Myndin fór á flug og umræðan sömu­leiðis.

Rangár­þing ytra segir í vörn sinni að skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúi hafi „velt fyrir sér“ heim­ild til fram­kvæmda vegna yfir­stand­andi vinnu við mat á umhverf­is­á­hrifum miklu víð­tæk­ari fram­kvæmda sem áform­aðar eru í Land­manna­laugum. Því hafi verið óskað eftir afstöðu Skipu­lags­stofn­unar og í svari hennar voru ekki gerðar athuga­semdir við „nauð­syn­legar end­ur­bætur“, væru þær í sam­ræmi við gild­andi deiliskipu­lag.

Einnig hafi verið leitað til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem ekki hafi gert athuga­semd við hina fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd. Skipu­lags­nefnd Rangár­þings ytra hafi svo lagt til að fram­kvæmda­leyfi yrði gefið út þar sem áformin hafi ekki verið talin lík­leg til að valda umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum. Aftur hafi verið leitað til Skipu­lags­stofn­unar, um hvort aug­lýsa þyrfti ákvörðun um að veita Umhverf­is­stofnun fram­kvæmda­leyfi sér­stak­lega og var svar hennar á þann veg að þess þyrfti ekki.

Ekki búningaðstaða

Rök Umhverf­is­stofn­unar eru m.a. þau að ekki sé um að ræða „bún­ings­að­stöðu­pall“ líkt og Nátt­úru­grið orði það í kæru sinni, um sé að ræða „laugar­pall“ við nátt­úru­laug­ina, þar sem gestir geti hengt upp hand­klæði sín undir skyggni.

Stofn­unin hafnar því enn­fremur að bygg­ingin sé ekki í sam­ræmi við frið­lýs­ing­ar­skil­mála svæð­is­ins. Ekki sé verið að spilla svip lands­ins heldur ein­ungis að bæta aðstöðu og aðgengi. End­ur­nýjun palls­ins hafi m.a. verið til­komin vegna álags á gróður í kringum hann.

Úrskurð­ar­nefndin fer yfir öll þessi sjón­ar­mið í nið­ur­stöðu sinni en að lokum eru það mann­virkja­lögin sem hún styður ákvörðun sína um að fella ákvörðun sveit­ar­stjórnar um veit­ingu fram­kvæmda­leyfis úr gildi.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Getið þið ekki látið Landmannalaugar í friði?
    0
  • Þór Skjaldberg skrifaði
    Eru þessir menn ekki ófærir um að bera ábyrgð á þessu dýrmæta svæði.?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár