Mennskar lúpínur

Ásgeir H. Ing­ólfs­son gagn­rýn­andi fór í bíó og gaf kvik­mynd­inni Killers of the Flower moon þrjár og hálfa stjörnu. Í mynd­inni gift­ast hvítir karl­menn til fjár en frum­byggja­leik­konar Lily Glad­stone stelur sen­unni og mynd­inni um ofbeldi byggt á ras­isma og græðgi.

Sjónvarp & Bíó

Killers of the Flower Moon

Leikstjórn Martin Scorsese
Leikarar Leonardo DiCaprio, Robert De Niro, Lily Gladstone og Jesse Plemons.
206 mínútur
Niðurstaða:

Hvítir karlmenn giftast til fjár en frumbyggjaleikkonan Lily Gladstone stelur myndinni, sem fjallar um hvernig ofbeldi sem sprettur af rasisma og græðgi hefur þróast úr villta vestrinu yfir í fallandi heimsveldi okkar daga.

Gefðu umsögn

Blómtunglið sem vísað er til í titl­inum Killers of the Flower Moon vísar í gamla þjóð­trú Osage-ætt­bálks­ins um að tunglið drepi blóm í maí – þegar skæð­ari plöntur taka völdin og útrýma þeim við­kvæm­ari. En þegar tit­ill­inn er útskýrður í mynd­inni sjálfri blasa við breiður af blómum sem minntu mig mest á lúpínu – og órök­rétt heift margra gagn­vart þessu blómi spegl­ast sann­ar­lega í órök­réttri heift hvíta manns­ins gagn­vart frum­byggjum Ameríku.

Hér er þó 20. öldin gengin í garð og frum­byggjar farnir að fá ein­hver lág­marks­mann­rétt­indi – sem verður til þess að þegar olía finnst á landi þeirra efn­ast þeir skyndi­lega og Osage-ætt­bálk­ur­inn verður óvænt hálf­gerð yfir­stétt í Oklahoma. Þannig virð­ist Scorsese hafa fundið raun­veru­lega sögu þar sem hlut­verk­unum er umpólað, frum­byggjarnir eru ríkir og bleiknefj­arnir fátækir. Að vísu eru alls kyns hömlur settar frum­byggj­unum vilji þeir njóta auðs síns, þeir fá fjár­ráða­mann og komið er fram við þá …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár