„Snýst þetta bara um að ríkisstjórnin trúi á sjálfa sig?“

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fékk enga hveiti­brauðs­daga­með­ferð þegar hún mætti í fyrsta sinn í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir á þing í dag sem ráð­herra fjár- og efna­hags­mála. Hún var meðal ann­ars spurð út í aðgerðir gegn verð­bólgu, hvort hún væri sam­mála fyr­ir­renn­ara sínum um að rík­is­fjár­mál­inu spil­uðu enga rullu í þeirri bar­áttu og hvort rík­is­stjórnin hefði ekki glatað öllu trausti til að selja banka.

„Snýst þetta bara um að ríkisstjórnin trúi á sjálfa sig?“
Stóla­skipti Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir hefur skipt um sæti við Bjarna Bene­dikts­son á ráð­herra­bekknum á Alþingi, eftir að sá síð­ar­nefndi sagði af sér emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Afsögnin kom í kjöl­far nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis um að hann hafi skort hæfi til að taka ákvörðun um að selja félagi föður síns hlut í rík­is­banka. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, sem tók við emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á mánu­dag, mætti í fyrsta sinn í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir á þingi í dag eftir stóla­skiptin. Þær hófust á því að for­menn tveggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar, spurðu hana út í þær aðgerðir og áherslur sem nýr ráð­herra ætl­aði að grípa til í bar­átt­unni við verð­bólgu og vaxta­hækk­anir, en verð­bólga er nú átta pró­sent og stýri­vextir komnir í 9,25 pró­sent. 

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, reið á vaðið og spurði Þórdísi tveggja spurn­inga: ann­ars vegar hvort hún væri sam­mála þeirri yfir­lýs­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar, fyr­ir­renn­ara hennar í starfi, að það væri ekki hlut­verk rík­is­fjár­mála að vinna bug á verð­bólgu, og hins vegar hvort framundan væru breyttar áherslur í þeirri bar­áttu með nýjum ráð­herra. 

Þórdís svar­aði hvor­ugri spurn­ing­unni en sagði að það væri yfir­lýst mark­mið stjórn­ar­flokk­anna að ná tökum á verð­bólg­unni á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins. „Hluti vand­ans er að fólk þarf auð­vitað að trúa því að við munum ná tökum á verð­bólg­unni. Ef fólk trúir því ekki í nægi­legum mæli þá hefur það ein­fald­lega áhrif á verð­bólg­una eins og hún er. Sömu­leiðis vitum við að kjara­við­ræður verða risa stórt verk­efni sem mun hafa meiri háttar áhrif á það hvernig verð­bólgan þró­ast og það hvort fólk trúi því að við sem sam­fé­lag séum til­búin að gera það sem þarf til að ná tökum á því. Ef okkur tekst, saman, að tala þannig að það séu rétt­mætar vænt­ingar að verð­bólga muni lækka á kom­andi miss­erum þá trúi ég því að fólk muni vera til­búið til að semja með þeim hætti. Ég skil að ef fólk er í mik­illi óvissu og trúir því ekki án muni lækka að það verður erf­ið­ara að sann­færa sína félags­mönnum að launa­hækk­anir verði ekki þeim mun meira í krónu­tölum heldur trúi ég því að við náum fram sparn­aði fyrir fjöl­skyldur í þessu landi með lækk­andi vaxta­kostn­aði en ekki með því að hækka krónu­tölu sem síðan brenna og áfram verður verð­bólga og við náum ekki tökum. Þetta er verk­efnið.“

Þarf „heimatilbúnar lausnir“

Þegar Kristrún kom aftur í pontu sagð­ist hún velta því fyrir sér hvort „nýja línan hjá rík­is­stjórn­inni sé sem sagt sú að við þurfum bara að trúa því að verð­bólgan fari niður og að það sé nóg að rík­is­stjórnin tali nógu hátt og nógu oft um að verð­bólgan muni fara niður.“

Það sé fólk á Íslandi sem sé að glíma við gíf­ur­lega kaup­mátt­ar­skerð­ingu, en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hefur nú dreg­ist saman fjóra árs­fjórð­unga í röð með að uppi­stöðu vegna þess að vaxta­greiðslur heim­ila hafa auk­ist um 62 pró­sent á einu ári.

Kristrún sagði að það lægi fyrir að staðan væri slæm víða, til dæmis hjá fólki á leigu­mark­aði og þeim sem hafa lágar tekjur. Fyrir það fólk dugi ekki að heyra frá rík­is­stjórn­inni að þau trúi því að verð­bólgan muni fara niður í aðdrag­anda kjara­samn­inga. Hún spurði því Þórdísi á ný: „Mun koma eitt­hvert nýtt út úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu eftir að hún tók þar við sem mun liðka fyrir kjara­samn­ingum? Eða snýst þetta bara um að rík­is­stjórnin trúi á sjálfa sig?“

Þórdís svar­aði því til að það væri ekki sann­gjarnt að tala niður stöðu íslensks sam­fé­lags, sem væri „á allan hátt með því besta sem fyr­ir­finnst á byggðu bóli.“ Hér væru vissu­lega stór verk­efni framundan sem fjöl­skyldur á Íslandi fyndu fyrir en það væri „heima­til­búið verk­efni“ sem þyrfti „heima­til­búnar lausnir“ til að leysa. „Auðvitað er það ekki þannig að það sé nóg að segja að fólk væri að trúa því að það fylgja ekki aðgerðir með. En þá bendi ég líka á að til að mynda allar hug­myndir um meiri háttar útgjalda­aukn­ingar útgjalda­aukn­ingu mun leiða það af sér að það verður ekki trú­verð­ug­leiki sem þarf til að ná tökum á verð­bólgu. Vandi rík­is­sjóðs er ekki tekju­vandi heldur er það útgjalda­vandi. Hins vegar vitum við að það mun þurfa að koma til, og verður hluti af því að ná samn­ingum, að ríkið komi inn í það með ein­hverjum hætti.“

Ætlar ekki að hækka skatta á millitekjuhópa

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, ræddi líka kaup­mátt­arrýrnun og vaxta­gjöld, sem væru þau mestu og hæstu í Evrópu, en lagði frekar áherslu á skort á aðhaldi í rík­is­rekstri í bar­átt­unni við verð­bólg­una. Báknið hafi aldrei verið stærra og það bitn­aði bæði á heim­ilum og fyr­ir­tækjum í land­inu. „Við erum að sjá vaxta­gjöldin, þau mestu og hæstu í Evrópu, útþanin, rík­is­sjóði og fjár­laga­halla sem þessi rík­is­stjórn ætlar síðan að láta næstu rík­is­stjórn leysa, þannig að ég verð að segja að hrein­asta vinstri stjórn hefði ekki getað skrifað betra hand­rit en þetta. Við erum að sjá þessi lausa­tök rík­is­stjórn­ar­innar vera heim­il­unum mjög dýr­keypt.“ Skjald­borgin sem átti að slá um heim­ilin hafi rík­is­stjórnin slegið um sig sjálfa. 

Þor­gerður spurði svo um áherslur nýs ráð­herra í þessum málum og hvort ekki yrði dregin varð­staða um að skattar yrðu ekki hækk­aðir á milli­stétt­ina í land­inu. 

Þórdís hóf svar sitt á því að minna á að ef horft sé á kaup­mátt­ar­aukn­ingu yfir lengri tíma þá hafi Íslend­ingar verið með meiri aukn­ingu „heldur en bara held ég öll önnur lönd á byggðu bóli.“ Ekki hafi verið inni­stæða fyrir launa­hækk­unum síð­ustu ára. „Nú er sá tími lið­inn og ef við meinum það þegar við segjum að við viljum tryggja stöð­ug­leika og tryggja það að fjöl­skyldur geti greitt af sínum lánum og haldið í sína stöðu, þá munu launa­hækk­anir ekki leysa það með krónu­tölu heldur með því að ná tökum á verð­bólgu þannig að vaxta­stigið lækki.“

Hún sagð­ist sam­mála Þorgerði um að skattar á Íslandi væru of háir og sagð­ist ekki ætla að leggja til skatta­hækk­anir á milli­tekju­hópa. Áherslur hennar yrðu á ein­földun og umbætur þar sem reglu­verkið væri of þungt. 

Rétt ákvörðun að selja bankann

Þórdís var einnig spurð út í áfram­hald­andi banka­sölu, en hún lét hafa eftir sér við ráð­herra­skipti í kringum síð­ustu helgi að áfram­hald­andi sala á hlut rík­is­ins í Íslands­banka væri for­gangs­mál hjá henni í nýju ráðu­neyti þrátt fyrir að van­hæfi fyr­ir­renn­ara hennar í starfi við ákvörð­un­ar­töku í sölu­ferl­inu hefði verið ástæða afsagnar hans.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurði hvort rík­is­stjórnin teldi sig hafa umboð til að selja banka á þessu kjör­tíma­bili. „Hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, ef ekki rík­is­stjórnin öll, ekki glatað trausti almenn­ings til að selja banka? Sama hvað verður reynt mun vera hægt að þvo þennan van­trausts­blett af sölu­ferl­inu sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins bjó til? Sama hversu miklu gagn­sæi og jafn­ræði verður lofað – því að því var lofað síð­ast líka – af hverju ætti fólk að trúa að næst verði þetta í lagi?“

Nýr fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra svar­aði því til að það sem hún gæti lofað væri að hún myndi gera  sitt allra besta og vandað sig eins vel og hún mögu­lega gæti þannig að fram­tíðar sala á hlut í Íslands­banka væri almenni­lega gerð. „Ég átta mig algjör­lega á því hvað er undir.“ 

Hún sagð­ist þekkja sög­una allt frá hruni og vita að það séu enn sár  í íslensku sam­fé­lagi. „En ég veit líka að það er rétt ákvörðun að selja bank­ann og losum það og nýta það til góðs fyrir almenn­ing í land­inu.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    "Þórdís svaraði hvorugri spurningunni en sagði að það væri yfirlýst markmið stjórnarflokkanna að ná tökum á verðbólgunni á síðari hluta kjörtímabilsins."
    1
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Orð eru til alls vís en báknið þennst út og úrelta krónan er ekkert að hjálpa nema síður sé. Íslendingar eru eins og eftirlitslausir óvitar í kristalsbúð þega kemur að ríkifjármálum....
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þórdís er fyndin kona en er hún svona heimsk eða bara lygin ?
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Reykfjörð-fjármála höndlar ekki vilja almennings, sem vill/vildi EKKI selja Íslandsbanka, þarf að senda ráðherra og þingmenn stjórnarmeirihlutanns til Vestmannaeyja til að læra lestur/lesskilning ? Senda þau á námskeið hjá siðfræðistofnun ? Hvað meira þarf til ? Jebs kjósendur verða að mæta upplýstir og með fulla meðvitund í kjörklefann næst !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár