Fyrirtæki eiginkonu ráðuneytisstjóra vinnur tugmilljóna verkefni fyrir ríkið árlega

Arki­tekta­stofa í eigu Sól­veigar Berg Emils­dóttur hefur um ára­bil unnið verk­efni fyrir íslenska ríkið. Eig­in­maður hennar er ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efn­hags­ráðu­neyt­is­ins, Guð­mundur Árnason. Hann ákvað að segja sig frá ákvarð­ana­tökum vegna verk­efna sem fyr­ir­tæki konu hans vinnur fyrir ríkið árið 2021, tólf árum eftir að hann varð ráðu­neyt­is­stjóri.

Fyrirtæki eiginkonu ráðuneytisstjóra vinnur tugmilljóna verkefni fyrir ríkið árlega
Óskaði eftir því að koma ekki að verk­efnum eig­in­konu sinnar Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í efna­hags- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, óskaði eftir því um haustið 2021 að koma ekki að ákvarð­ana­töku í ráðu­neyt­inu að verk­efnum arki­tekta­stofu eig­in­konu sinnar. Íslenska ríkið hefur keypt vinnu af stof­unni fyrir tugi millj­óna á ári. Mynd: MBL / Kristinn Magnússon

Arki­tekta­stofa í eigu eig­in­konu Guð­mundar Árna­sonar, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, hefur um langt ára­bil unnið verk­efni fyrir íslenska ríkið sem voru upp á tugi millj­óna króna á hverju ári þegar mest hefur látið. Fyr­ir­tækið heitir Yrki arki­tektar. Það hefur meðal ann­ars unnið að end­ur­bótum á hús­næði mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins, sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins og á Kefla­vík­ur­flug­velli á vegum rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Kadeco, sem tók við eignum sem áður til­heyrðu banda­ríska varn­ar­lið­inu. Eig­in­kona Guð­mundar heitir Sólveig Berg Emils­dóttir og hefur hún átt og rekið Yrki arki­tekta frá árinu 1997. 

Guð­mundur er ekki þjóð­þekktur maður þó svo að hann gegni valda­miklu ábyrgð­ar­starfi í því ráðu­neyti sem almennt séð er talið vera mik­il­væg­ast innan stjórn­ar­ráðs­ins þar sem það sér um umsýslu með pen­inga rík­is­ins og eignir þess. Hann er með meira en 20 ára reynslu sem ráðu­neyt­is­stjóri en áður var hann …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þetta er að verða þekkt mantra hér á landi þegar tengsl æðri aðila hjá hinu opinbera eru augljós vegna fjölskyldu eða mikillar vináttu þá segir maður sig frá fjölskyldunni og eða vináttunni, meðan úthlutað er, og málið leyst.
    0
  • GÁ
    Gunnar Ágústsson skrifaði
    Það eru ótrúleg vonbrigði að sjá fjölmiðil sem segist stunda rannsóknarblaðamennsku, birta frétt um að hafa ekki fundið spillingu. Það er svo gert með fyrirsögn og inngangi (það eina sem hægt er að lesa án áskriftar) eins og um spillingu sé að ræða.
    Eftir stendur þá spurningin afhverju og hver eru þá heilindi blaðamanns og ritstjórnar, ef ekki leit af sannleikanum?
    0
  • AH
    Aðalsteinn Hákonarson skrifaði
    Hvað, er umboðsmaður ekki búinn að gera frumkvæðisathugun?
    1
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Og nú er búið að sáldra efanum en hvað höfum við lært af svona óheppilegum hagsmunatengslum í stjórnsýslunni í gegnum söguna? Ekki mikið....

    https://transparency.is/hvad-er-spilling/skilgreiningbirtingamynd/
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár