„Við erum bara krakkar“

Framan af er þetta frekar hefð­bundin ung­linga­bók í ljóð­ræn­ari kant­inum, en hægt og rólega opin­ber­ast ætlun höf­undar: þetta er í raun heim­speki­leg rök­ræða um ein­elti.

Mieko Kawakami
Mieko Kawakami Heaven er heim­speki­leg skáld­saga um ein­elti sem er hug­vekj­andi og finnur með heim­spek­inni leið inn í sárs­auk­ann.
Bók

Heaven

Höfundur Mieko Kawakami í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar
Angústúra
218 blaðsíður
Niðurstaða:

Heimspekileg skáldsaga um einelti sem er hugvekjandi og finnur með heimspekinni leið inn í sársaukann. Eineltið er þó óþarflega ýkt og ákveðnir hnökrar á þýðingunni, en textinn heldur manni engu að síður vel og manni er ekki sama um þessa krakka.

Gefðu umsögn

Við erum stödd í japönskum bæ árið 1991. Fjórtán ára strákur lendir í hrika­legu ein­elti en ving­ast við bekkj­ar­systur sína, Kojima, sem er þján­inga­systir hans – þau eru helstu skot­mörk ein­elt­is­seggj­anna í bekknum. Framan af er þetta frekar hefð­bundin ung­linga­bók í ljóð­ræn­ari kant­inum, en hægt og rólega opin­ber­ast ætlun höf­undar: þetta er í raun heim­speki­leg rök­ræða um ein­elti.

Kawakami hefur sjálf lýst því yfir að Svo mælti Zaraþústra hafi verið áhrifa­valdur og í raun má segja að tvær lyk­il­per­sónur bók­ar­innar séu á sinn hátt mál­pípur ann­ars vegar níhíl­isma Nietzsche og hins vegar fornrar kín­verskrar speki. Kojima reynir að finna merk­ingu í ein­elt­inu, talar um „ynd­is­lega veik­leika“ – en á móti segir einn ein­elt­is­segg­ur­inn ein­fald­lega: „Eina ástæðan fyrir því að þú lentir í þessu er að þú varst nálægur þegar ein­hvern lang­aði til að kýla ein­hvern.“

En virkar þessi heim­speki sann­fær­andi þegar hún kemur úr munni fjórtán ára krakka? Vissu­lega hugsar maður stundum í miðri níhíl­ískri ein­ræðu að svona myndi eng­inn fjórtán ára krakki tala, en það kemur ekki að sök, maður trúir því samt alveg að hann myndi hugsa um það bil svona um það, þetta virkar þótt það sé ekki full­kom­lega raun­sætt. Í eft­ir­mála íslensku útgáf­unnar segir Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir rétti­lega að það sé áhuga­vert að svið­setja þessar hug­myndir í „heimi þar sem hug­myndir og til­finn­ingar eru ekki margræddar og útþvældar, heldur ferskar, hráar og nýjar.“

„En virkar þessi heim­speki sann­fær­andi þegar hún kemur úr munni fjórtán ára krakka?“

Eineltið sjálft er óhugn­an­legt og satt best að segja nokkuð ýkt á köflum, þetta er ein­hver allra versta teg­und ein­eltis sem hægt er að hugsa sér, en það sem er áhrifa­rík­ara eru við­brögðin, að sjá hvernig er að lifa undir ógn­ar­stjórn ein­eltis og hugsa um það alla daga. Aðal­per­sónan er nefni­lega aldrei nefnd á nafn, þessi strákur er kall­aður Auga af því hann er rang­eygður, en það er eins og ein­eltið hafi brotið niður per­sónu­leika hans – hann speglar sig í Kojimu og ein­elt­is­seggj­unum Ninomiya og Momose, segir þeirra sögur frekar en sína eigin, sem maður skynjar að hann sé orð­inn sann­færður um að sé einskis virði.

Og í ógn­ar­stjórn ein­elt­is­ins er það Kojima sem er í þög­ulli and­spyrnu, en þetta er and­spyrna písl­ar­votts­ins, sem kemur í ljós að er ekki raun­veru­leg lausn, þótt hún geti veitt tíma­bundna huggun. Það kemur oft á óvart hvaða heim­speki er hjálp­leg­ust í þessum aðstæðum og hvað leiðir þig í ógöngur – og í raun er ljóst að hvorug lífs­sýnin mun duga ein og sér í við­sjár­verðum heimi. Eymdin elskar félags­skap, en hún er ekki endi­lega góður félags­skapur ef áfram­hald­andi sam­eig­in­leg eymd er skil­yrði.

Heim­spekin reyn­ist líka dýr­mæt til þess að fram­kalla sárar til­finn­ingar sem ein­elti fylgja – í raun er bókin vís­bend­ing um að mögu­lega hjálp­aði ein­hver sár reynsla Nietzche og spek­ingum forn­aldar að fram­kalla kenn­ingar sínar, og mögu­lega er óklárað upp­gjör við slíka reynslu ástæða veik­leika téðra kenn­inga. Tit­ill­inn Heaven vísar til upp­á­halds­lista­verks Kojimu, sem hún kemst aldrei í að sýna aðal­per­són­unni. Auga fær aldrei að sjá himna­ríki, það er alltaf handan seil­ingar, rétt eins og end­an­leg svör.

Bláendir bók­ar­innar er vissu­lega dálítið snöggsoð­inn og þýð­ing­ar­bragur á verk­inu á köflum, orðið mið­skóli stakk sér­stak­lega, en á móti er text­inn heilt yfir læsi­legur og ryþmískur og sagan gríp­andi og hug­vekj­andi. Og blóðið frýs þegar Momose, stað­geng­ill Nietzche í japönskum gagn­fræða­skólum, segir: „Við erum bara krakkar. Á okkar aldri telst ekk­ert vera glæpur.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár