Annars staðar er neikvæður spegill

Borgir Calvinos eru hrein­rækt­aðar hug­ar­smíðar sem varpa ljósi á hvers kyns önnur umfjöll­un­ar­efni, svo sem þrá, minni og tákn. Sagna­gáfa Calvinos nýtur sín í hverri borg sem allar eru ólíkar inn­byrðis og geyma ótal sögur. Borg­irnar ósýni­legu eru eitt af meist­ara­verkum eft­ir­stríðs­bók­mennt­anna í Evrópu og það er mik­ill fengur að þýð­ingu Brynju Cortesar Andr­és­dóttur.

Annars staðar er neikvæður spegill
Italo Calvino Þessi fremsti rit­höf­undur Ítala eftir seinna stríð hafði yndi af því að snúa upp á formið og rugla í höfði les­and­ans.
Bók

Borg­irnar ósýni­legu

Annars staðar er neikvæður spegill
Höfundur Italo Calvino í þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur
Ugla
192 blaðsíður
Gefðu umsögn

Italo Calvino (1923–1985) var ólík­inda­tól. Þessi fremsti rit­höf­undur Ítala eftir seinna stríð hafði yndi af því að snúa upp á formið og rugla í höfði les­and­ans. Þetta sást til dæmis vel í bók­inni Ef að vetr­ar­n­óttu ferða­langur sem Brynja Cortes Andr­és­dóttir þýddi árið 2015. Bókin sam­anstendur af engu nema fyrstu köflum –með hverjum kafla hefst ný bók – sem engu að síður deila per­sónum sín á milli. Bókin fjallar þannig grall­ara­lega um bóka­formið sjálft, sýnir á mjög skond­inn hátt hvernig fyrstu kaflar eru fyr­ir­sjá­an­leg­asti hluti hvers bók­mennta­geira og opnar á ótrú­lega breidd umfjöll­un­ar­efna: Við fáum að kíkja inn í mis­mun­andi heima í hverjum kafla þar sem frá­sagn­ar­gleðin hrífur mann með í hvert sinn.

Nú er sami þýð­andi kom­inn aftur á slóðir Calvinos með Borgunum ósýni­legu (1972). Rammi bók­ar­innar er sam­tal feneyska land­könn­uð­ar­ins Marco Polo við gest­gjafa sinn, Kublai Khan, keis­ara Mongóla, þar sem Polo segir keis­ar­anum frá öllum þeim borgum sem hann hefur heim­sótt á ferða­lögum sínum um Mongóla­veldi. Bókin er þannig byggð á stór­merkri en oft afar ótrú­verð­ugri ferða­sögu hins raun­veru­lega land­könn­uðar sem var rituð undir lok þrett­ándu aldar. En í bók Calvinos eru borg­ar­lýs­ing­arnar teknar skref­inu lengra en hjá hinum sögu­lega Polo. Borgir Calvinos eru hrein­rækt­aðar hug­ar­smíðar sem varpa ljósi á hvers kyns önnur umfjöll­un­ar­efni, svo sem þrá, minni, tákn og svo fram­vegis. Sagna­gáfa Calvinos nýtur sín í hverri borg sem allar eru ólíkar inn­byrðis og geyma ótal sögur.

Til dæmis verður borgin Zaira að skilj­ast út frá sam­band­inu á milli mældra stærða og atburða úr for­tíð­inni: Fjar­lægðin frá botni ljósastaurs að fót­unum á valda­ræn­ingja sem dinglar í snör­unni; línan frá ljósastaurnum að rimla­girð­ing­unni á móti og laufsveig­arnir sem varða leið­ina fyrir brúð­kaups­fylk­ingu drottn­ingar; hæð rimla­girð­ing­ar­innar og stökk hór­karls sem klifrar yfir hana í dögun; hall­inn á þak­renn­unni og lima­burður kattar sem smeygir sér inn um sama glugga; eld­lína stór­skota­skips sem birt­ist allt í einu handan við höfð­ann og sprengjan sem eyði­leggur þak­renn­una; rif­urnar í fiskinet­unum og öld­ung­arnir þrír sem sitja á hafn­ar­bakk­anum og gera við þau og segja hver öðrum í hund­rað­asta sinn sög­una af her­skipi valda­ræn­ingj­ans sem sagt er að hafi verið laun­sonur drottn­ingar, skil­inn eftir í reifum þar á hafn­ar­bakk­anum.

„Við fáum að kíkja inn í mis­mun­andi heima í hverjum kafla þar sem frá­sagn­ar­gleðin hrífur mann með í hvert sinn.“

Þótt bókin sé stutt er allt krökkt af litlum sögum sem þessum innan um ógleym­an­legar borg­ar­lýs­ingar. En hvað þýða þær eig­in­lega? Keis­ar­inn vill vita hvers vegna Polo hafi ferð­ast (eða þóst ferð­ast) til allra þess­ara borga og hvers vegna hann sé að segja sér frá þeim á þennan hátt. Polo vill meina að „við kom­una til hverrar nýrrar borgar finnur ferða­lang­ur­inn aftur for­tíð sem hann var hættur að vita að hann ætti. Fram­and­leiki þess sem þú ert ekki lengur eða átt ekki lengur situr fyrir þér á ókunnum stöðum sem þú átt ekk­ert í.“ Við löð­umst að ókunn­ugum borgum því í hverri nýrri borg liggur mögu­leik­inn á öðru sjálfi: hér gæti maður hafa fæðst, hér gæti maður hafa flust, ef hlut­irnir hefðu bara verið aðeins öðru­vísi. 

Borg­irnar umbreyta því for­tíð manns, nútíð og fram­tíð. Eins og Polo segir: „Annars staðar er nei­kvæður speg­ill. Ferða­lang­ur­inn þekkir aftur það litla sem er hans þegar hann upp­götvar allt það mikla sem hann hefur aldrei átt og mun aldrei eiga.“ Og þetta er póli­tískt verk­efni, því með því að stækka skiln­ing sinn í gegnum borgir heims­ins, sýni­legar og ósýni­legar, er hægt að halda í von­ina um betri heim handan við hornið. Polo predikar undir lok bókar:

Helvíti lif­enda er ekki eitt­hvað sem á eftir að koma; ef það er til er það hér núna, það hel­víti sem við lifum alla daga og búum til með því að vera saman. Það eru tvær leiðir til að umbera það. Sú fyrri reyn­ist mörgum auð­veld: Að sætta sig við hel­vítið og sam­lag­ast því þar til maður hættir að taka eftir því. Hin leiðin er áhættu­söm og krefst þrot­lausrar umhugs­unar og skiln­ings: Að leita í miðju hel­vít­inu og reyna að sjá hverjir og hvað eru ekki hel­víti, halda því við og gefa því rými.

Borg­irnar ósýni­legu eru eitt af meist­ara­verkum eft­ir­stríðs­bók­mennt­anna í Evrópu og það er mik­ill fengur að þýð­ingu Brynju Cortesar Andr­és­dóttur, sem kæmi mér alls ekki á óvart að fengi þýð­ing­ar­verð­launin. Bókin er lík­lega ekki fyrir þá sem vilja línu­legar frá­sagnir, drykk­fellda rann­sókn­ar­lög­reglu­menn og föngu­leg kven­lík en fyrir ævin­týra­gjarn­ari les­endur get ég ekki mælt meira með Borgunum ósýni­legu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár