Telur brátt hægt að lækka vexti

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra við­ur­kennir að vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands séu farnar að bíta og séu íþyngj­andi fyrir stóran hóp. Hún segir þó vís­bend­ingar um að brátt verði mögu­legt að lækka vexti. Kristrún Frosta­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, segir erf­iða stöðu í efna­hags­málum á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar.

Telur brátt hægt að lækka vexti
Vextir „Seðla­bank­inn tók þá mik­il­vægu ákvörðun í síð­ustu viku að hækka ekki vexti, þvert á spár flestra mark­aðs­að­ila, með þeim rök­stuðn­ingi að und­ir­liggj­andi verð­bólga, þrátt fyrir nýj­ustu árs­mæl­ingu,“ sagði Katrín. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það eru allar vís­bend­ingar í kringum okkur um að verð­bólgan fari nú niður á við og það skap­ist for­sendur fyrir að lækka vexti,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra  í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún við­ur­kenndi að vaxta­hækk­anir síð­ustu mán­aða væru farnar að bíta í og væru íþyngj­andi fyrir stóran hóp fólks. 

Kristrún Frosta­dóttir, þing­kona og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði rík­is­stjórn­ina hafa beðið átekta síðan verð­bólgan fór að láta á sér kræla og að þannig hafi hún kallað hærri vexti yfir bæði heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu.

„Þess vegna erum við þar sem við erum,“ sagði Kristrún.  „Við höfum bent á að þegar rík­is­stjórnin gerir minna til að taka á verð­bólg­unni þá þarf seðla­bank­inn að gera meira.“

„Þess vegna erum við þar sem við erum“Kristrún segir ljóst að erfið staða í efna­hags­málum sé á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar.

Ljóst að margir séu í vanda

Katrín sagði í sínu and­svari að rík­is­stjórnin hafi gert sitt til að „styðja mjög mark­visst við Seðla­bank­ann.“

„Seðla­bank­inn tók þá mik­il­vægu ákvörðun í síð­ustu viku að hækka ekki vexti, þvert á spár flestra mark­aðs­að­ila, með þeim rök­stuðn­ingi að und­ir­liggj­andi verð­bólga, þrátt fyrir nýj­ustu árs­mæl­ingu, hafi hjaðnað og vís­bend­ingar séu um að dregið hafi úr tíðni verð­hækk­ana sem séu ekki á jafn­breiðum grunni og áður.“

Kristrún benti aftur á móti á að kaup­máttur hafi rýrnað það sem af er ári.

„Við erum að sjá mjög hraða aukn­ingu á yfir­drætti og við erum líka að sjá merki um að það sé mikið um fyr­ir­fram­greiðslu arfs í hag­kerf­inu okkar í dag. Allt er þetta til marks um að ungt fólk og fólk víða á við vanda að stríða.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ef það væri eitthvað mark á Katrín takandi þá væru ráðandi þættirnir í húsnæðisskorti, vaxtahækkunum og sliku þekktir og viðurkenndir . Engin slík alvöru greining er til og óskhyggjustjórnun ræður... líkan seðlabankans er eitthvað huldudæmi sem virðist erfitt að leggja fram... væntanlega vegna þess að það er svo auðvelt að sanna að vaxtahækkanir hafa takmörkuð áhrif því ráðandi þættirnir í verðbólgu eru ekki einungis fjármagn í umferð... stór hluti lántakenda VERÐUR að taka okurlánin og meðan yfirvöld og markaðurinn geta velt kostnaðinum áfram á neytendur... þá hiksta þeir ekki við það.

    Svo nei... verðbólgan mun ekki lækka nema tekið sé á þeim þáttum sem valda henni... sem er fyrst og fremst vaxtahækkanir. Sorglegi hlutinn er að vaxtalækkanir skila sér lítið til baka... nokkurra prósenta íbúðarverðslækkun hefur öngva þýðingu... því frumorsökin er skortur... og í dag er staðan sú að jafnvel þó 15000 nýjar íbúðir kæmu á markaðinn á morgun... yrði engin breyting... því hækkanirnar ganga takmarkað til baka og launhækkanir ná aldrei í skottið á vítisvélinni.

    Þetta vissu Ásgeir og félagar þegar þeir ræstu hana enn einu sinni af stað. Verðbólga minnkar bara þegar hrun er við hornið... eða ekki einu sinni þá... og málarmyndaraðgerðir mun ekki færa þetta til baka. Þeir stoppa núna af því við erum á bjargbrúninni... ef ekki komin fram af henni.

    Ef ekki fyrir túristann, auknar veiðar og lottóvinninga væri staðan verri...en hvað á að bjarga okkur næst ?

    Fleiri dagraumar eða óskhyggjustjórnun valdfíkla ? Eða kennsla í hvort komi á undan eggið eða hænan ? Að vísu þarf kennarinn að standa yfir liðinu með stóran lurk því eftiráskýringarnar eru vægast sagt skrautlegar.

    Spítalinn er rekinn með hagnaði... því allir sjúklingarnir eru dauðir ? Er það takmarkið ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár