Púður og kúlur

Fyrir þremur árum var einu skot­færa­verk­smiðj­unni sem starf­rækt var í Danmörku lokað. Nú verður aftur farið að fram­leiða skot­færi í verk­smiðj­unni. Vopna- og skot­færa­lagerar stuðn­ings­ríkja Úkraínu eru að tæm­ast og því brýnt að auka fram­leiðsl­una.

Púður og kúlur
Danski her­inn Danska ríkið gekk á dög­unum frá kaupum á skot­færa­verk­smiðju í Elling. Skotfæri hafa ekki verið fram­leidd í land­inu í þrjú ár en nú verður lík­lega breyt­ing þar á. Mynd: AFP

Eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar var almenn sam­staða meðal dönsku þjóð­ar­innar um nauð­syn þess að efla her­inn. Sagan frá 9. apríl 1940 þegar danski her­inn gafst upp, nán­ast bar­áttu­laust, þegar Þjóð­verjar her­námu landið var ofar­lega í hugum Dana. Öllum var jafn­framt ljóst að Danmörk yrði aldrei stór­veldi á hern­að­ar­svið­inu, sam­starf í öryggis-og varn­ar­málum hlyti að vera lausnin. Flestir höll­uð­ust að sam­vinnu við Banda­ríkin og Danir, ásamt Íslend­ingum, voru í hópi stofn­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, árið 1949.

Eins og áður sagði var sam­staða um að efla her­inn og á kalda­stríðs­ár­unum (1947-1991) átti sér stað mikil upp­bygg­ing innan hers­ins. Sama gilti um flest aðild­ar­lönd NATO.

Dregið úr fjárveitingum

Eftir að kalda stríðið svo­nefnda fjar­aði út undir lok níunda ára­tugar síð­ustu aldar drógu mörg Evr­ópu­lönd úr hern­að­ar­við­bún­aði sínum. Miklum fjár­munum hafði verið varið til tækja- og vopna­kaupa á kalda­stríðs­ár­unum og undir lok síð­ustu aldar leit út fyrir frið­sam­legri tíma víð­ast hvar í Evrópu. Þíða hafði mynd­ast milli Rússa og NATO eftir fall Sov­ét­ríkj­anna og sú spenna sem ríkt hafði virt­ist að mestu úr sög­unni. Miklum fjár­munum sem runnið höfðu til her­mála væri því betur varið til ann­arra brýnna verk­efna var algengt við­kvæði stjórn­mála­manna þegar her­stjórn­endur kvört­uðu. Meðal þeirra sem beittu nið­ur­skurð­ar­hnífnum á her­inn ár eftir ár voru Danir. Nið­ur­skurð­ur­inn hafði í för með sér að tækja­kostur var ekki end­ur­nýj­aður, við­haldi á tólum og tækjum var ábóta­vant og dregið var úr birgða­haldi á öllum sviðum.

Ekki voru allir danskir þing­menn ætíð sáttir við nið­ur­skurð­inn til hers­ins og þegar komið var fram á miðjan fyrsta ára­tug þess­arar aldar létu þeir sem höfðu áhyggjur af fram­tíð hers­ins æ oftar í sér heyra. Þeir voru þó í minni­hluta á þing­inu og nið­ur­skurð­ur­inn hélt áfram. 

Danir sluppu ekki við banka­hrunið haustið 2008 og á næstu árum eftir það var í mörg horn að líta og her­inn var ekki eitt þeirra.

Áfram skorið niður

Þótt Danmörk væri farin að rétta úr kreppu­kútnum árið 2013 var áfram skorið niður hjá hernum. Í sam­komu­lagi þings­ins það ár um fjár­veit­ingar til varn­ar­mála (for­svars­for­liget) fram til árs­loka 2017 var gert ráð fyrir árlegum sparn­aði uppá 2,5 millj­arða danskra króna (49 millj­arða íslenska). Nið­ur­skurð­ur­inn nam rúm­lega 10 pró­sentum af árlegum fjár­veit­ingum til hers­ins. Nið­ur­skurð­inn rétt­lætti þingið með þeim rökum að tím­arnir væru breyttir, áhersl­urnar í her-og varn­ar­málum sömu­leiðis. 

Ákveðið hafði verið að vorið 2014 lyki veru danska hers­ins í Afganistan, eftir tólf ár, og mik­inn kostnað. Árið 2014, ári eftir áður­nefnt sam­komu­lag um fjár­veit­ing­arnar til hers­ins réð­ust Rússar inn á Krím­skaga. 9. apríl 2015 birti dag­blaðið Berl­ingske langt við­tal við Anders Fogh Rasmus­sen fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra NATO, í til­efni þess að liðin voru 75 ár frá her­námi Þjóð­verja í Danmörku. Hann sagði það mikið áhyggju­efni hvað Evr­ópu­ríkin í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu hefðu tak­mark­aðan skiln­ing á nauð­syn þess að verja fé til her­mála, Banda­ríkin gætu ekki enda­laust dregið NATO hest­inn.

Í við­tali af sama til­efni lét danskur hern­að­ar­sér­fræð­ingur svo ummælt að danski her­inn væri búinn að vera í megrun síðan kalda stríð­inu lauk „orð­inn hálf­gerður þykjustu­her“. Lars Løkke Rasmus­sen, þáver­andi for­maður Venstre, sagði í við­tali í apríl 2105 að snúa yrði við blað­inu og auka fjár­veit­ingar til hers­ins. Eftir kosn­ingar í júní sama ár varð hann for­sæt­is­ráð­herra og í fjár­veit­inga­á­ætlun til hers­ins, sem gilda átti frá árs­byrjun 2018 til árs­loka 2023 voru fram­lög til hers­ins aukin til muna. Í umræðum í þing­inu, Fol­ket­inget, sagði Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra að haf­inn væri und­ir­bún­ingur þess að end­ur­nýja orr­ustu­þotur hers­ins og sagði „það að kaupa orr­ustu­þotu er ekki eins og skreppa út í búð og kaupa ost­bita, þot­urnar þarf að panta með margra ára fyr­ir­vara“. Árið 2016 var und­ir­rit­aður samn­ingur um kaup á 27 þotum af gerð­inni F35A frá fram­leið­and­anum Lockheed Martin, danskir fjöl­miðlar sögðu þetta dýr­ustu inn­kaup danska hers­ins fyrr og síðar. Fyrstu vél­arnar átti að afhenda árið 2021 og þær síð­ustu sex árum síðar. Ýmislegt varð til þess að afhend­ingu seink­aði og fyrstu 4 vél­arnar komu til Dan­merkur fyrir þrem vikum.   

Gengið á birgðirnar

Und­an­farið hafa margoft birst í fjöl­miðlum fréttir af auknum áhyggjum her­mála­yf­ir­valda NATO ríkj­anna vegna þess hve mjög hefur gengið á vopna- og skot­færa­birgðir herja ríkj­anna. Ekki þarf að fjöl­yrða um ástæður þess. Núna ber­ast fréttir af því að í mörgum ríkjum sé unnið af krafti við að auka fram­leiðslu í verk­smiðjum og jafn­vel setja aftur í gang verk­smiðjur sem búið var að loka, eða breyta til ann­ars konar fram­leiðslu.

Áhugi fyrir að endurræsa verksmiðju sem búið var að loka

Fyrir skömmu ræddi danska útvarpið, DR, við Troels Lund Poulsen varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur. Hann var þá nýkom­inn heim af fundi sem stuðn­ings­ríki Úkraínu héldu í Þýska­landi. Fyrr á árinu sat Troels Lund Poulsen fund varn­ar­mála­ráð­herra Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna og á fundi dönsku rík­is­stjórn­ar­innar skömmu síðar ræddi stjórnin um að opna aftur skot­færa­verk­smiðju í Elling á Jótlandi, verk­smiðj­unni var lokað árið 2020. Sú hug­mynd hafði reyndar verið viðruð áður, án þess að nokkuð frekar yrði aðhafst. Í apríl á þessu ári gekk hópur fyr­ir­tækja­eig­enda á fund varn­ar­mála­nefndar danska þings­ins og kynnti hug­myndir um að hefja aftur fram­leiðslu í Elling verk­smiðj­unni. Hug­mynd­irnar gengu út að verk­smiðjan yrði í eigu danska rík­is­ins og einka­fyr­ir­tækja. 

Skotfæraframleiðsla frá árinu 1676

Skot­færa­verk­smiðjan sem um ræðir á sér langa sögu. Var upp­haf­lega sett á lagg­irnar fyrir 347 árum. Hét þá Fyr­vær­kerikompagniet en fékk löngu síðar nafnið AMA.  Frá upp­hafi og til árs­ins 1968  var verk­smiðjan á umráða­svæði hers­ins á Krist­jáns­höfn, á svæð­inu þar sem Krist­janía er nú. Þegar her­inn flutti bæki­stöðvar sínar af þessu svæði var skot­færa­verk­smiðjan flutt til smá­bæj­ar­ins Elling á Norður-Jótlandi, skammt frá Frederiks­havn. Verk­smiðju­svæðið er 35 hekt­arar að stærð og verk­smiðju­húsin 50 tals­ins, nær öll í góðu ástandi.

Selt til Spánverja

Árið 2008 keypti spænski skot­færa­fram­leið­and­inn Expal skot­færa­verk­smiðj­una í Elling, sem fékk þá nafnið Denex. Eftir að Spán­verjar yfir­tóku rekst­ur­inn var starf­semin bundin við eyð­ingu gam­alla skot­færa og minni gerðir skot­færa. Rekst­ur­inn gekk ekki vel og árið 2020 ákvað Expal að hætta starf­sem­inni í Elling. Þá misstu 63 starfs­menn vinn­una en lengst af unnu um 200 manns að jafn­aði í verk­smiðj­unni, sem í dag­legu tali gekk undir nafn­inu „Krudten“.

Verksmiðjusvæðið í Elling augljós kostur

Skömmu eftir að starf­sem­inni í „Krudten“ lauk keyptu fjórir fyr­ir­tækja­eig­endur á Norður-Jótlandi verk­smiðj­una og landið. Tobias Madsen, einn eig­end­anna, sagði fyrir nokkrum dögum í við­tali við danska útvarpið að full­trúar eig­enda hefðu þegar hitt emb­ætt­is­menn úr varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu til að ræða um hugs­an­leg kaup rík­is­ins á land­inu og verk­smiðju­hús­unum, sem enn standa óhreyfð með tækjum og tólum.

Ríkið hefur ákveðið að kaupa

Þegar skrif­ari var að hnoða saman þessum pistli, á föstu­dags­morgni 6.októ­ber, birt­ist skyndi­lega á síðum danskra net­miðla frétt þess efnis að gengið hefði verið frá kaupum rík­is­ins á skot­færa­verk­smiðj­unni í Elling. Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Troels Lund Poulsen varn­ar­mála­ráð­herra var ekki nánar greint frá kaup­samn­ingnum, enda blekið varla þornað. Í til­kynn­ing­unni kom fram að upp­lýst yrði nánar um málið á allra næstu dögum.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár