Lífeyrissjóðirnir hækkuðu vexti sinna lántakenda fyrir vaxtaákvörðunina

Einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins hækk­aði vexti á íbúða­lánum við­skipta­vina sinna tví­vegis á innan við mán­uði. Vext­irnir hækk­uðu sam­tals um 1,14 pró­sentu­stig á sama tíma og stýri­vextir hækk­uðu um 0,5 pró­sentu­stig.

Lífeyrissjóðirnir hækkuðu vexti sinna lántakenda fyrir vaxtaákvörðunina
Hækkandi byrði Hús­næð­is­kostn­aður heim­ila í land­inu hefur hækkað mikið síð­ast­liðin ár vegna verð­bólgu og hærri vaxta. Mynd: Bára Huld Beck

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna til­kynnti í lok síð­ustu viku að hann hefði hækkað vexti á íbúða­lánum við­skipta­vina sinna. Við það fóru breyti­legir óverð­tryggðir vextir sjóðs­ins úr 9,77 í 9,99 pró­sent frá og með næstu mán­aða­mótum. Þetta er í annað sinn frá síð­ustu vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands sem sjóð­ur­inn hækkar vext­ina. Það gerði hann líka í til­kynn­ingu í byrjun sept­em­ber þegar hann boð­aði mynd­ar­lega hækkun upp á 0,92 pró­sentu­stig sem tók gildi 1. októ­ber. Því hafa vextir sjóðs­ins hækkað sam­tals um 1,14 pró­sentu­stig á sama tíma og stýri­vextir Seðla­banka Íslands hækk­uðu um 0,5 pró­sentu­stig og upp í 9,25 pró­sent.

Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem er líka umfangs­mik­ill lán­veit­andi, til­kynnti líka um hækk­anir seint í síð­ustu viku, en þær taka gildi í byrjun nóv­em­ber. Vextir grunn­lána munu hækka um 0,5 pró­sentu­stig og verða 10,35 pró­sent. Það var í fyrsta sinn síðan í júlí sem sá sjóður hækk­aði vexti sína.

Þrátt fyrir miklar vaxta­hækk­anir eru líf­eyr­is­sjóð­irnir …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár