Dagur útilokar ekki þingframboð – Ekkert skrýtið að umferðin sé treg á morgnana

Borg­ar­stjóri segir stærsta áhættu­þátt­inn í fjár­málum íslenskra sveit­ar­fé­laga vera ríkið, að ótví­rætt sé að Reykja­vík­ur­borg sé í for­ystu í hús­næð­is­málum á Íslandi og að umferðin verði áfram stopp nema að borg­ar­línu verði komið á. Hann telur að við séum á „þrösk­uld­inum að fara með borg­ar­lín­una af stað“.

Dagur útilokar ekki þingframboð – Ekkert skrýtið að umferðin sé treg á morgnana
Borg­ar­stjóri Dagur B. Egg­erts­son mun hætta sem borg­ar­stjóri í jan­úar næst­kom­andi. Hann hefur þá verið í starf­inu í um tíu ár. Mynd: BIG

„Ég hef aldrei úti­lokað það en ekki lofað því heldur. Það hefur mjög oft komið til tals en ein­hvern veg­inn hefur hjarta mitt verið í borg­ar­mál­unum og mér finnst skipta miklu máli að þau hafi fram­gang. Einnig vil ég sjá verk­efni ná til enda. Ég er ekk­ert hlaup­inn neitt annað í bili.“ Þetta segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, í við­tali við nýjasta tíma­rit Sameykis þegar hann er spurður hvort hann sé að fara að færa sig yfir í lands­málin og setji stefn­una á Alþingi. 

Dagur mun hætta sem borg­ar­stjóri um miðjan jan­úar næst­kom­andi og mun þá hafa verið borg­ar­stjóri í ára­tug. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, tekur þá við borg­ar­stjóra­starf­inu en Dagur verður for­maður borg­ar­ráðs. 

Dagur var mikið orð­aður við for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í fyrra­sumar, þegar fyrir lá að Logi Ein­ars­son myndi stíga til hliðar, en hann gaf það frá sér í ágúst 2022. Nokkrum dögum síðar til­kynnti Kristrún Frosta­dóttir um for­manns­fram­boð og var á end­anum ein í fram­boði. Frá því að Kristrún tók við Sam­fylk­ing­unni hefur fylgi flokks­ins tekið stakka­skiptum. Hann fékk 9,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 en hefur nú mælst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum allt þetta ár og með 28,5 pró­sent fylgi síð­ast þegar Gallup kann­aði afstöðu lands­manna. 

Haldist þessi stuðn­ingur er ljóst að þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar, sem eru nú sex tals­ins, mun fjölga umtals­vert en að óbreyttu verða næstu þing­kosn­ingar á árinu 2025.

Borgin í forystu í húsnæðismálum

Dagur fer um víðan völl í við­tal­inu við tíma­rit Sameykis. Hann ræðir um þá stöðu sem uppi er í fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðra, þar sem gatið milli þeirrar þjón­ustu sem veitt er og þeirra fjár­muna sem fylgja frá rík­inu er nú metið á níu millj­arða á ári, um það að launa­munur milli kynja hjá Reykja­vík­ur­borg hafi verið útrýmt og sé nú innan við eitt pró­sent og þá stað­reynd að Reykja­vík­ur­borg taki á móti 77 pró­sent fólks á flótta á meðan sum önnur sveit­ar­fé­lög dragi lapp­irnar í þeim efnum. Hann segir að það sé magnað að stærsti áhættu­þátt­ur­inn í fjár­málum íslenskra sveit­ar­fé­laga sé ríkið, og vísar þar í það gat sem sé til staðar þegar kemur að fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðra.

Þá tjáir hann sig opin­skátt um tvö af stærstu deilu­málum sam­tím­ans: hús­næð­is­mál og sam­göngu­mál á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Dagur segir að Ísland sé enn að bíta úr nál­inni með að verka­manna­bú­staða­kerfið var lagt niður um alda­mótin þegar ákveðið var að treysta ein­ungis mark­aðnum fyrir hús­næð­is­málum þjóð­ar­innar. Í raun hafi ekk­ert gerst af alvöru í hús­næð­is­málum sem kom í stað­inn fyrir verka­manna­bú­staða­kerfið fyrr en Bjarg íbúða­fé­lag var stofnað í sam­vinnu við verka­lýðs­hreyf­ing­una, ASÍ og BSRB árið 2016. Á þeim árum sem liðin eru frá því hafi borgin líka tekið þátt í því að tvö­falda fjölda stúd­enta­í­búða innan marka hennar úr þús­und í tvö þús­und. „Meðan Reykja­vík­ur­borg hefur byggt svona hús­næði hefur ekk­ert gerst í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum af þessum skala fyrir þessa hópa. Ef öll sveit­ar­fé­lögin væru að ganga í takt í hús­næð­is­mál­unum myndum við ná mark­inu tvö­falt hraðar. Því er umhugs­un­ar­vert, að þegar rík­is­stjórnin er komin með sýn á hvernig eigi að gera þetta og gengur í takti að þessu leyti við verka­lýðs­hreyf­ing­una, ásamt að boða samn­inga við öll sveit­ar­fé­lögin um upp­bygg­ing­ar­á­tak hús­næðis á Íslandi, þá er ein­ungis eitt sveit­ar­fé­lag sem hefur gert slíkan samn­ing og það er Reykja­vík­ur­borg. Í þeim samn­ingi erum við að segja að 30 pró­sent af upp­bygg­ing­unni verða hag­kvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaup­endur, fólk með lágar tekjur. Líka verða fimm pró­sent íbúða byggðar sem félags­legar íbúðir á vegum borg­ar­innar fyrir þá sem hafa allra minnst á milli hand­anna.“

Ótvírætt sé að hans mati að Reykja­vík­ur­borg hafi for­ystu í hús­næð­is­málum á Íslandi. Í sam­starfi við verka­lýðs­hreyf­ing­una hafi verið þró­aðar aðferðir og fjár­mögn­un­ar­módel á síð­ustu árum sem hafi reynst þannig að til hafi orðið ný hús­næð­is­stefna fyrir Ísland. „Því miður hefur ekki tek­ist að gera fleiri samn­inga við ríkið og líf­eyr­is­sjóði. Það þarf að búa til hús­næð­is­sátt­mála alveg eins og við búum til t.d. sam­göngusátt­mála. Það gengur ekki að við séum bara að sinna hópi sem borgar hæsta verð fyrir hús­næði heldur þarf að huga að heild­inni. Fólk þarf ekki endi­lega allt það sama heldur þurfa allir öruggt þak yfir höf­uðið á verði sem það ræður við.“

Umferðin áfram stopp án borgarlínu

Borg­ar­línan og sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru ein heitasta póli­tíska kartaflan í sveit­ar­stjórn­ar­málum á suð­vest­ur­horn­inu. Dagur segir það miður að umræðan skip­ist oft í skot­grafir. „Í raun­veru­leik­anum viljum við kannski geta ferð­ast meira án bíls­ins, en til þess þurfa sam­göngur að batna með borg­ar­lín­unni. Við viljum geta tekið strætó og kom­ist heim til okkar í stað þess að sitja undir stýri í umferð­inni og bíða.“ 

Hann segir að borg­ar­línan eigi að vera í for­gangi í sam­göngu­málum vegna þess að hún nýt­ist öllum best, líka þeim sem ætla aldrei að nota hana vegna þess að hún muni létta mikið á umferð­inni. „Í rann­sókn sem við gerðum 2012–13 kom í ljós að ef við ætlum að nota einka­bíl­inn áfram kemur að því að umferðin verður stopp. Við erum komin þangað. Þá vissum við að við værum að und­ir­búa okkur undir vöxt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem nemur 70 þús­und manns til árs­ins 2040. Það er einn Kópa­vogur, einn Garðabær og hálfur Hafn­ar­fjörður eða álíka. Núna 2023 hefur vöxt­ur­inn orðið meiri en við spáðum og um mitt þetta ár hefur fólki fjölgað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í 45 þús­und manns og verður búið að fjölga í 50 þús­und manns í lok árs­ins. Það er því ekk­ert skrýtið að umferðin sé svona treg á morgn­ana. Við vorum búin að spá því að ef ekki kæmi afkasta­meiri almenn­ings­sam­göngur þá myndi umferðin verða stopp. Þetta liggur fyrir en það hefur tekið tíma að koma þessu af stað og ég tel að við séum á þrösk­uld­inum að fara með borg­ar­lín­una af stað. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að það komi ekki hik og að við leysum úr því að sveit­ar­fé­lögin og ríkið fjár­magni verk­efnið til fulls og drífum í að koma borg­ar­lín­unni á kopp­inn.“

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Húsnæðisuppbygging í borginni hófst ekki fyrr en 70% fólks hafði ekki lengur efni á íbúðunum.
    0
  • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
    Ekkert hik! Framkvæmdir strax !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár