Nennir ekki upp á Everest

Arnar Mar­geirs­son hjá Þvotta­stöð­inni Fönn ferjar þvott alla daga og hefur gert það í 36 ár. Hann segir það alltof langan tíma en hann nenni ekki að fara að skipta um vinnu úr þessu. Arnar hefur gaman af bíla­við­gerðum og slakar á með því að fara í fjall­göngu. Honum liggur ekk­ert á og nennir ekki á Everest.

Nennir ekki upp á Everest

„Ég heiti Arnar Mar­geirs­son og við erum í Aðal­stræti. Ég er 59 ára gam­all og bý í Breið­holt­inu. Ég er að afgreiða þvott á Hótel Center. Þetta geri ég á hverjum degi, að ferja þvott frá Þvotta­hús­inu Fönn. Ég hef verið að gera þetta alltof lengi, eða í 36 ár. Ég gæti ímyndað mér að ég sé einn af þeim reynslu­mestu í þessu. 

Þegar ég segi alltof lengi á ég við að, ég veit það ekki, maður hefði kannski átt að gera eitt­hvað annað. Þetta starf er samt ekki slæmt. Hvað myndi ég gera ef ég gæti snúið til baka og byrjað upp á nýtt? Það væri þá ein­hver iðn, ein­hver bíla­tengd iðn, bíla­við­gerðir eða eitt­hvað í þá átt­ina. En ég er bara í fínni vinnu og ég er búinn að vera svo lengi í þessu að ég nenni ekki að skipta núna. 

Ég kann að gera við bíla, ég geri það stundum. Ég hef bara lært það af reynsl­unni. Ég veit ekki um neitt eitt augna­blik sem hefur breytt far­vegi lífs míns og kann­ast ekki við neitt eitt stórt augna­blik sem hefur mótað mig. Það má segja að líf mitt séu mörg lítil augna­blik. Það er ekk­ert eitt sem hefur verið mér efst á huga, bara vinnan.

Fyrir utan að gera við bíla fer ég svo­lítið á fjöll. Síðast fór ég á Helga­fell. Ég er ekki týpan sem þarf að sigr­ast á fjall­inu, ég vil bara vera úti í nátt­úr­unni að slaka á. Ég þarf ekk­ert að fara á hæsta fjallið. Mér liggur ekk­ert á. Ég myndi aldrei nenna upp á Everest, ég fer ekki í neinar hættu­legar fjall­göngur.“ 

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Skemmtilegt viðtal. Mér hefur fundist blaðamenn og ekki síst stjórnendur spjallþátta gjarnir á að reyna að kreista út úr viðmælendum sínum "atvikið örlagaríka", "áfallið skelfilega", þetta EINA sem leiddi til umsnúnings í lífi viðkomandi - eins og líf viðkomandi sé hannað fyrir fyrirsagnir.

    Arnar bítur ekki á agnið. "Ég veit ekki um neitt eitt augnablik sem hefur breytt farvegi lífs míns og kannast ekki við neitt eitt stórt augnablik sem hefur mótað mig. Það má segja að líf mitt séu mörg lítil augnablik." Mig grunar að það sama eigi við um okkur flest.
    4
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Sá má aldelis vera ánægður með sjálfann sig kallinn að vera þrjátíu þaðog sex ár á sama staðnum ég var 15 ár á sogaveginum enn núna er búin að vera níu ár þar sem ég er núna hvernig líst ykkur á það og alltaf hækkar hjá mér blessuð húsaleiga ár frá ári og ekkert lát virðist vera þar á hjá mér eins og fleirum hér í bæ
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár