Rykið loks dustað af manntalinu mikla frá 1981

Í rúma fjóra ára­tugi hefur það „legið þungt á Hag­stof­unni, for­ystu hennar jafnt sem starfs­mönnum“, að ekki hafi tek­ist að ljúka við útgáfu mann­tals­ins sem tekið var í byrjun níunda ára­tugar síð­ustu aldar. En viti menn – þeirri vinnu er nú lokið og getur Hag­stofu­fólk því andað léttar. Og við blasir sam­fé­lag sem er nokkuð ólíkt því sem nú byggir Ísland.

Rykið loks dustað af manntalinu mikla frá 1981
Fólkið á göt­unni Mjög skiptar skoð­anir voru um mann­talið árið 1981. Hér svara nokkrar ungar mann­eskjur, sem allar áttu síðar eftir að láta mikið að sér kveða í sam­fé­lag­inu, spurn­ingum Dag­blaðs­ins.

Sunnu­dag­inn 31. jan­úar árið 1981 biðu lands­menn margir hverjir heima hjá sér með nokk­urri óþreyju. Á borðum eða bekkjum lágu eyðu­blöð sem þeir höfðu fengið send í pósti nokkrum dögum áður og flestir fyllt sam­visku­sam­lega út. Svarað spurn­ingum um hjú­skap­ar­stöðu, menntun og atvinnu. Og þátt­töku í heim­il­is­störfum sem hefur hvorki fyrr né síðar verið spurt um í mann­tölum.

Já, þetta var mann­tals­dag­ur­inn mikli og lands­menn voru að bíða eftir telj­ur­unum, fólki á vegum hins opin­bera, her hund­raða manna, sem dreifði sér um sveitir og bæi og bank­aði upp á í hverju ein­asta húsi (eða því sem næst) til að taka á móti eyðu­blöð­unum, sann­reyna þau og fylla út önnur.

Skiptar skoð­anirAllir höfðu skoðun á mann­tal­inu mikla.

Um mann­talið var mikið fjallað í fjöl­miðlum í aðdrag­anda þess. Aug­lýs­ingar voru birtar í öllum dag­blöðum, heill sjón­varps­þáttur helg­aður því hvernig fylla átti eyðu­blöðin út …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár