Martraðarkennt ástand fyrir samstarfsmanninn

„Enginn vildi þetta. Fyrir mig er þetta martrað­ar­kennt ástand,“ sagði kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Micah Garen þar sem hann fylgd­ist með sam­starfs­konu sinni Anahitu Babaei sem hafði hlekkjað sig við mastur hval­veiði­skips­ins Hvals 9 í Reykja­vík­ur­höfn í morgun. Garen og Babaein komu hingað til lands til þess að skapa heim­ild­ar­mynd um það hvernig fólk getur tekið höndum saman og breytt heim­inum. Nú er útlit fyrir að myndin verði um það hvernig fólk hættir lífi sínu fyrir ástand sem aldrei breyt­ist.

Anahita Babaei og Elissa Bijou klifr­uðu upp í möstur tveggja hval­veiði­skipa í Reykja­vík­ur­höfn fyrir klukkan sex í morgun til þess að mót­mæla ákvörðum mat­væla­ráð­herra um að aflétta tíma­bundnu banni við hval­veiðum. Micah Garen, sam­starfs­maður Babaei, segir lög­reglu hafa elt hana þangað upp og hrifsað af henni síma hennar og bak­poka með vatni og mat. Hún var því skilin eftir án vista og sam­skipta­leiða. Garen segir fram­kom­una óásætt­an­lega í ljósi þess að um frið­sæl mót­mæli sé að ræða. 

„Þetta er ekki bara óásætt­an­legt heldur líka ógn við líf hennar,“ segir Garen og bendir á að fallið úr mastr­inu gæti verið hátt, um 30 metrar. 

Garen og Babaei komu hingað til lands fyrir um ári síðan til þess að vinna heim­ild­ar­mynd um hval­veiðar. Þau hefðu viljað enda mynd­ina þann 20. júní, þegar Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra lagði á tíma­bundið bann við veiðum á lang­reyðum. Bannið rann út í síð­ustu viku og Svandís ákvað að fram­lengja það ekki. 

„Ég var von­svik­inn og eyði­lagður,“ segir Garen um augna­blikið þegar hann heyrði frétt­irnar. 

„Heim­ild­ar­myndin átti að vera um það hvernig fólk getur tekið höndum saman og breytt heim­inum, ekki það hvernig við þurfum að hætta lífi okkar fyrir eitt­hvað sem breyt­ist aldrei. Það er ekki það sem ég vildi gera heim­ild­ar­mynd um en því miður erum við hér.“

Í hæstu hæðumAnahita Babaei og Elissa Bijou klifr­uðu upp í möstur tveggja hval­veiði­skipa í morgun.

Telur ekki að Babaei sé að brjóta lög

Garen segir kon­urnar tvær hug­rakkar og að þær séu að gera sitt til þess að koma í veg fyrir að Hvalur brjóti lög um dýra­vel­ferð með því að skjóta hvali, en fagráð um vel­ferð dýra komst fyrr í sumar að því að ekki væri hægt að tryggja mann­úð­lega aflífun stór­hvela. 

Garen jánkar því að Babaei sé í óleyfi á skip­inu en telur  ekki að hún sé að brjóta lög. 

„Hún er að sýna af sér borg­ara­lega óhlýðni til þess að koma í veg fyrir að glæpur sé fram­inn.“

Talskona Hvalavina ekki vongóð um árangur

Val­gerður Árna­dóttir, tals­kona Hvala­vina, segir að hóp­ur­inn styðji mót­mæla­að­gerð­irnar sem hafa staðið frá því klukkan sex í morgun. 

„Á meðan þær eru þarna að hindra það að þessi skip fari út þá eru þær alla­vega að bjarga ein­hverjum hvölum og hver ein­asti hvalur sem þær bjarga – hann skiptir máli,“ segir Val­gerður. 

Hún er þó ekki von­góð um að stjórn­völd muni banna hval­veiðar vegna mót­mæl­anna. 

„Ég hef enga trú á þess­ari rík­is­stjórn lengur.“

Babaei og Bijou ætla sér að vera uppi í möstr­unum eins lengi og þær geta. Garen segir vilja­styrk þeirra mik­inn, en að tím­inn sem þær muni dvelja þar muni lík­lega ráð­ast af því hve lengi Anahita tórir án vatns og matar. Lög­reglan hefur, að sögn Garens, neitað að færa henni vistir.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Æi, viljiði laga þetta: maður á ekki að "skapa heimildarmynd"; þær eru gerðar eða teknar, í þeim er hægt að skapa andrúmsloft eða stemmingu, en ef þær eru skapaðar, þá liggur í orðanna hljóðan að ekki sé lengur um mynd byggða á heimildum.
    Veit alveg að þetta að "skapa" er slöpp íslenska fyrir "create" sem er mikið ofnotað á ensku...
    2
    • Sandra Skuld Kolbeinsdóttir skrifaði
      Nei maður á ekki að skapa heimildarmynd, þau virðast samt vera að því þarna, eru að mótmæla til að búa til efni fyrir myndina sína.
      0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Klárar konur!!!!
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er að horfa á beina útsendingu á Vísi. Það vantar greinilega enga peninga þegar Sjálfstæðisflokkurinn þarf að koma sínum málum frá ? Það sem blasir við er eyðsla á fjármálum samfélagsins fyrir einkavini Sjálfstæðisflokksins.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár