Svandís ekki ráðherra „til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma“

„Ég er nátt­úrlega ekki fædd í gær,“ segir Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra um það hvort hún sé ánægð með að hval­veiðum verði áfram haldið – með ítarlegum skilyrðum og eftirliti þó. „Ég veit það að maður er ekki ráðherra til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma.“

Í spurningaflóði
Í spurn­inga­flóði Svandís Svav­ars­dóttir svarar spurn­ingum blaða­manna að afloknum rík­is­stjórn­ar­fundi á Egils­stöðum. Mynd: Austurfrétt/Gunnar

Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra rökstyður ákvörðun um að leyfa áfram hval­veiðar með því að vísa í niður­stöður starfs­hóps sem hún skipaði í sumar og gaf út skýrslu sína í byrjun viku. Þar hafi komið fram „all margar hugmyndir“ sem væru til þess fallnar að fækka „frávikum“ við hval­veiðar. „Þannig að vertíðin fer af stað á morgun með ítarlegum skilyrðum,“ sagði hún við blaðamenn eftir ríkis­stjórnar­fund sem fram fór á Egils­stöðum í morgun.

Svandís mun í dag setja nýja reglugerð sem felur í sér ítarlegar og hertari kröfur til veiði­búnaðar, veiði­aðferða og aukið eftirlit. Þær snúa m.a. að þjálfun áhafna, breytinga á púður­samsetningu í sprengi­skutlum, léttari línu í hann og nýs miðs byssanna með ljósi, svo dæmi séu tekin.

Samkvæmt reglu­gerðinni munu Matvæla­stofnun og Fiskistofa vinna saman að eftirliti með veiðunum. Ráðgert er að stofnanirnar sendi ráðuneytinu skýrslu við lok veiði­tímabils þar sem dregnar eru saman helstu niður­stöður eftirlits með hval­veiðum 2023.

Á undan­förnum mánuðum hafa verið unnar skýrslur um jafnt umhverfisleg sem efnahagsleg áhrif hvalveiða sem og um dýra­velferðar­sjónarmið. Fagráð um velferð dýra komst að þeirri niður­stöðu í sumar, eftir að Matvæla­stofnun hafði birt sláandi skýrslu um veiðar síðasta sumars, að ekki væri hægt að aflífa stórhveli með þeim aðferðum sem sem tíðast hafa.

Dýravelferð kirfilega á dagskrá

„Það sem liggur á mínu borði er að bregðast við á grund­velli gildandi laga og ég geri það,“ sagði Svandís. „Síðan eru það umræður um pólitíska afstöðu til málsins, kannski aðrar en þær hvaða svigrúm eða ráðrúm ég hef sjálf sem embættis­maður og ráðherra. En ég held að það sé mjög mikilvægt að okkur hafi tekist að setja málið svona kirfilega á dagskrá með því að gera kröfur um stíft eftirlit, það hafði ekki verið gert áður. Þannig að nú erum við með gögnin. Nú sjáum við hvernig þetta fer fram.“

Umræðunni sé því engan veginn lokið. „Og ég legg áherslu á að hún haldi áfram. Í samfélaginu öllu og í pólitíkinni. Við erum síðasta þjóðin í heiminum sem erum að leyfa veiðar á stór­hvelum með þessum hætti. Það er einn aðili sem er að stunda þær veiðar.“ Spurningin sé hins vegar hvort að það sé sú fram­tíðarsýn sem Íslendingar vilji sjá.

En er hún með ákvörðun sinni að láta undan hótunum samstarfs­flokka í ríkis­stjórn, var hún ennfremur spurð. „Nei,“ svaraði hún ákveðið, „ekki á nokkrun hátt. Það væri dapurleg nálgun fagráð­herra – á öllum tímum – að bregðast við slíkum þrýsingi. Og það hef ég ekki gert.“ Hún sagði „hótanir og vanga­veltur“ frekar snúast um innan­flokksvanda. „Ég hef sagt að það sé alltaf til góðs að fólk tali meira saman og ég held að það gildi á þessum tímum sérstak­lega um sjálfstæðis­menn.“

„VG vill banna hvalveiðar“

Áhrifa­miklir leikarar í Hollywood hafa sett sig upp á móti hval­veiðum Íslendinga og sagt að landið verði ekki valið sem töku­staður, verði veiðunum fram­haldið. „Það er alveg ljóst að sú staðreynd að við séum eina þjóðin sem er að stunda [veiðar á lang­reyðum] skiptir máli. Og þau sem hafa spurt hvort við viljum vera það samfélag – ég skil mjög vel slíkar áhyggjur.“

Svandís vildi ekki svara því hreint út hvort að hún vilji persónu­lega banna hval­veiðar en vísaði í stefnu Vinstri grænna. „VG vill banna hval­veiðar.“ En hún væri að bregðast við gildu leyfi. Spurð hvort hún hefði heimild til að banna hval­veiðar nú, áður en leyfið renni út um áramót, svaraði hún: „Ég veit ekki hvernig samfélag það væri þar sem ráðherrar færu á svig við lög á hverjum degi og gerðu bara það sem þá langaði helst til.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kolbrún Karldsdóttir skrifaði
    Svandís sýndi mikið hugrekki í að segja það sem ekki hefur mátt tala um og vitna ég hér í hana „Og ég legg áherslu á að hún haldi áfram. Í samfélaginu öllu og í pólitíkinni. Við erum síðasta þjóðin í heiminum sem erum að leyfa veiðar á stórhvelum með þessum hætti. Það er einn aðili sem er að stunda þær veiðar.“ Sem sagt: KL er eina manneskjan í heiminum sem hefur leyfi frá sinni ríkisstjórn til að veiða stórhveli, höldum því til haga! Það að frekjan í einum kalli skuli geta sett allt á annan endann er dæmalaust! Þetta er ekkert annað en þráhyggja manns sem er að springa úr frekju. Kjötið er ekki einu sinni borðað, heldur sent um heimshöfin áður en það endar svo í fóðri fyrir dýr. Við verðum að stoppa núna og fara að skoða hlutina í samhengi!
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Sorgar dagur i sögu ISLANDS og til Skammar fyrir xG. Nasiztarnir unnu með hotunum. Best væri að ganga til Kosninga i Haust. Rikistjornin er FALLIN
    þeirra filgi er hrunið fyrir löngu. Þetta a eftir að draga dilk a eftir ser td i USA og viðar.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Í dag gerði Svandís Svavarsdóttir RISASTÓR mistök.

    Þetta mun reynast Íslandi, VG og henni sjálfri þungbært.

    Það er fyrir löngu síðan kominn tími á að hætta hvalveiðum og því svívirðilega dýraníði sem því fylgir við strendur Íslands.

    Minnumst þess að Hvalur hf hefur lengi verið einn helsti fjárhagslegur stuðningsaðili Sjálfstæðisflokksins.

    Auðvitað ætlast fyrirtækið til þess að fá eitthvað í staðinn fyrir þá "fjárfestingu" sína.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár