Svandís: Vertíðin fer af stað á morgun

Degi áður en hval­veiði­bann það sem mat­væla­ráð­herra setti tíma­bundið á í sumar átti að renna út hefur fram­haldið verið ákveðið. Svandís Svav­ars­dóttir kynnti nið­ur­stöðu sína, í þessu eld­fima póli­tíska máli, á sum­ar­fundi rík­is­stjórn­ar­innar á Egils­stöðum.

Svandís: Vertíðin fer af stað á morgun
Tveir skutlar Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Hard to Port fylgd­ust grannt með hval­veiðum síð­asta sum­ars og mynd­uðu m.a. þegar lang­reyðar voru dregnar á land með marga skutla í sér, suma ósprungna. Mynd: Hard to port

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur ákveðið að hval­veiðar megi halda áfram á morgun en undir veru­lega auknu og strang­ara eft­ir­liti. Þetta til­kynnti hún á sum­ar­fundi rík­is­stjórn­ar­innar á Egils­stöðum í morgun. Svandís mun í dag setja nýja reglu­gerð sem felur í sér ítar­legar og hert­ari kröfur til veiði­bún­aðar, veiði­að­ferða og aukið eft­ir­lit. Skil­yrðin snúa m.a. að þjálfun, fræðslu, veiði­bún­aði og veiði­að­ferðum.

Svandís rök­styður ákvörðun sína með því að vísa í nið­ur­stöður starfs­hóps sem hún skip­aði í sumar og gaf út skýrslu sína í byrjun viku. Þar hafi komið fram „all margar hug­myndir“ sem væru til þess fallnar að fækka „frá­vikum“ við hval­veiðar. „Þannig að ver­tíðin fer af stað á morgun með ítar­legum skil­yrðum,“ sagði hún við blaða­menn eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn.

Samkvæmt reglu­gerð­inni munu Mat­væla­stofnun og Fiski­stofa vinna saman að eft­ir­liti með veið­unum. Ráðgert er að stofn­an­irnar sendi ráðu­neyt­inu skýrslu við lok veiði­tíma­bils þar sem dregnar eru saman helstu nið­ur­stöður eft­ir­lits með hval­veiðum 2023.

Svandís stöðv­aði veiðar Hvals hf. á lang­reyðum tíma­bundið í júní í kjöl­far þess að fagráð um vel­ferð dýra komst að þeirri nið­ur­stöðu að veiði­að­ferðir sam­ræmd­ust ekki ákvæðum dýra­vel­ferð­ar­laga. Ekki væri unnt með núver­andi aðferðum að tryggja vel­ferð dýra við aflífun.

Sum­ar­fundurFundur rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra kynnti ákvörðun sína um fram­hald hval­veiða, fór fram á Egils­stöðum í morgun.

Hvalur hf. fékk síð­ast útgefið leyfi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til veiða á lang­reyðum árið 2019 og gildir það til ára­móta.

Andstaða við veiðar aukist hratt

Á þessum tíma hefur við­horf lands­manna til veið­anna breyst mikið, sér­stak­lega síð­ustu mán­uði. Ný skoð­ana­könnun sem Maskína fram­kvæmdi fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands sýnir að and­staða við hval­veiðar hefur auk­ist um sjö pró­sentu­stig, frá 35% í maí 2022 í 42% nú í ágúst. Stuðn­ingur við hval­veiðar hefur minnkað úr 33% í 29% á sama tíma­bili. Karlar hafa verið hlynnt­ari veið­unum en konur en milli maí í fyrra og í ágúst nú hefur sá stuðn­ingur dreg­ist saman um 10 pró­sentu­stig, úr 48 pró­sent í 38.

Vinstri græn hafa allt frá árinu 2015 haft það í stefnu sinni að leggj­ast „ein­dregið  gegn hval­veiðum við Íslands­strendur“. Við veið­arnar, sagði í ályktun lands­fundar þetta ár, „er beitt ómann­úð­legum veiði­að­ferðum til að við­halda áhuga­máli örfárra útgerð­ar­manna. Háum upp­hæðum af opin­beru fé hefur verið kastað á glæ til að styrkja þessa áhuga­menn um hval­veiðar. Nú er mál að linni“. Þessi stefna flokks­ins var ítrekuð á flokks­ráðs­fundi hans nú í ágúst.

Í brennidepli

Hval­veiðar hafa verið mikið í umræð­unni síð­ustu miss­eri. Í febr­úar í fyrra skrif­aði Svandís grein í Morg­un­blaðið þar sem fram kom að hún teldi fátt rök­styðja að heim­ildir til hval­veiða yrðu end­ur­nýj­aðar. Nokkrum vikum síðar voru tvö hval­veiði­skip Hvals hf. farin út á sjó til veiða sem höfðu þá ekki verið stund­aðar tvö ár á undan.

MæðurEllefu kýr með fóstri voru veiddar á ver­tíð­inni síð­asta sumar. Fóstrin voru skorin úr kviði dýr­anna og rann­sökuð.

Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Hard to Port fylgd­ust náið með veið­unum og mynd­uðu á fyrstu vikum ver­tíð­ar­innar ítrekað þegar lang­reyðar voru dregnar á land í Hval­stöð­inni í Hval­firði með marga skutla í sér – suma sem höfðu ekki sprungið. Þá mynd­uðu sam­tökin einnig starfs­menn Hvals hf. að fjar­lægja fóstur úr kviði dýr­anna.

Í kjöl­far frétta af þessu setti mat­væla­ráð­herra reglu­gerð um aukið eft­ir­lit með veið­unum sem m.a. fól í sér mynda­véla­eft­ir­lit um borð í hval­veiði­bát­unum. Meðal ann­ars á því eft­ir­liti byggði skýrsla Mat­væla­stofn­unar um veiðar sum­ars­ins 2022 sem gefin var út í maí síð­ast­liðnum.

Afhjúpun í skýrslu MAST

Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar var sú að veiðar á stór­hvelum sam­ræmd­ust ekki mark­miðum laga um vel­ferð dýra. Í skýrsl­unni kom m.a. fram að af þeim 148 lang­reyðum sem voru veiddar á ver­tíð­inni voru 36 (24%) skotnar oftar en einu sinni. Þar af voru fimm skotnar þrisvar og fjórar skotnar fjórum sinnum. Dauða­stríð tveggja þeirra stóð í 1-2 klukku­stundir.

Í öðru til­vik­inu stóð eft­ir­för áhafnar hval­veiði­skips­ins fram í myrkur og á mynd­böndum sem Heim­ildin fékk afhent sést að sex sprengju­skutlum var skotið að dýr­inu sem synti sært um, kaf­aði og blés. „Því var um mjög langt dauða­stríð að ræða og ætla má með miklum þján­ingum áður en [dýrið] drapst,“ sagði í eft­ir­lits­skýrslu MAST um þetta til­tekna atvik.

Einum hval með skutul í bak­inu var veitt eft­ir­för í 5 klukku­stundir án þess að hval­veiði­mönnum tæk­ist að aflífa hann. Skot geig­uðu, skutlar sprungu ekki og dýr áttu það til að sær­ast í fyrstu skotum og slíta sig svo laus áður en þau voru hæfð að nýju.

Ekki í anda laga en lögin ekki brotin

Síðasta sumar veiddu starfs­menn Hvals hf. svo að minnsta kosti eina mjólk­andi lang­reyð­arkú, sem þýðir að hún hefur verið með kálf á spena. Sá hefur lík­lega ekki lifað lengi án móður sinnar. Ellefu kýr með fóstri voru veiddar. Sum þeirra höfðu náð um það bil 2/3 fæð­ing­ar­stærðar sinnar.

MAST taldi þrátt fyrir þetta allt saman að við veið­arnar hefði verið beitt „bestu þekktu aðferðum“ miðað við þær aðstæður sem veiðar á lang­reyðum eru stund­aðar við og því hefðu ákvæði um veiðar í lögum um vel­ferð dýra ekki verið brotin.

Skýrslan vakti mikil við­brögð og Svandís sagði nið­ur­stöður hennar „slá­andi“. Í sama streng tók t.d. Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar.

Á veiðumStilla úr mynd­bandi sem tekið var upp af veið­unum síð­asta sumar.

Mannúðleg aflífun ekki möguleg

Næsta skref var að fá fagráð um vel­ferð dýra, sem starfar sam­kvæmt lögum um dýra­vel­ferð, til að rýna í málið og svara þeirri spurn­ingu hvort hægt sé yfir höfuð að standa þannig að veiðum á stór­hvelum að aflífun með mann­úð­legum hætti sé tryggð, líkt og lög gera ráð fyrir.

Nið­ur­staða fagráðs­ins lá fyrir um miðjan júní og var afger­andi: Sú veiði­að­ferð sem beitt er við veiðar á stór­hvelum sam­ræm­ast ekki ákvæðum dýra­vel­ferð­ar­laga. Ekki sé hægt að upp­fylla þau skil­yrði sem nauð­syn­leg eru til að tryggja vel­ferð dýra við aflífun.

Stopp!

Svandís tók þegar í stað þá ákvörðun að stöðva hval­veiðar tíma­bundið, til ágúst­loka, á meðan þeim spurn­ingum væri m.a. svarað hvort að mögu­legt væri að bæta eða breyta veiði­að­ferð­unum með þeim hætti að þær upp­fylltu dýra­vel­ferð­ar­lög.

Þessi ákvörðun hennar, sem lá fyrir dag­inn áður en hval­veiði­ver­tíðin átti að hefj­ast, var harð­lega gagn­rýnd, m.a. af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sagði ákvörð­un­ina hafa sett stjórn­ar­sam­starfið „í loft upp“.

Villt dýrLang­reyðar eru risa­stór dýr sem ferð­ast langa vegu um heims­ins höf á hverju ári. Þær geta náð 70-90 ára aldri að minnsta kosti.

Óljós niðurstaða starfshóps

Eftir að Svandís hafði sett hið tíma­bundna hval­veiði­bann á, bann sem átti að standa til ágúst­loka á meðan málin yrðu skoðuð ofan í kjöl­inn, skip­aði hún starfs­hóp sem skoð­aði m.a. til­lögur Hvals hf. að bættum veiði­að­ferðum. Þær sneru m.a. að þjálfun áhafna, breyt­inga á púð­ur­sam­setn­ingu í sprengiskutlum, létt­ari línu í skutl­ana og nýs miðs byss­anna með ljósi.

Nið­ur­staða hóps­ins lá loks fyrir í byrjun vik­unnar og var sú að mögu­legt væri að bæta veiði­að­ferð­irnar og „ekki unnt að úti­loka“ að veiðar með breyttum aðferðum væru betur til þess fallnar en eldri aðferðir að fækka frá­vikum væri litið til „mögu­legra sam­legð­ar­á­hrifa þeirra“. Nið­ur­staðan var því hvorki afger­andi né sér­stak­lega skýr.

Þá var komið að ákvörðun ráð­herra. Yrði hval­veiði­bannið fram­lengt eða ekki? Væri nauð­syn­legt að skjóta þá eða ekki?

Og sú ákvörðun liggur nú fyrir. Vertíðin hefst á morgun, segir Svandís.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Sorgar dagur i sögu ISLANDS og til Skammar fyrir xG. Nasiztarnir unnu með hotunum. Best væri að ganga til Kosninga i Haust. Rikistjornin er FALLIN
    þeirra filgi er hrunið fyrir löngu. Þetta a eftir að draga dilk a eftir ser td i USA og viðar.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Í dag gerði Svandís Svavarsdóttir RISASTÓR mistök.

    Þetta mun reynast Íslandi, VG og henni sjálfri þungbært.

    Það er fyrir löngu síðan kominn tími á að hætta hvalveiðum og því svívirðilega dýraníði sem því fylgir við strendur Íslands.

    Minnumst þess að Hvalur hf hefur lengi verið einn helsti fjárhagslegur stuðningsaðili Sjálfstæðisflokksins.

    Auðvitað ætlast fyrirtækið til þess að fá eitthvað í staðinn fyrir þá "fjárfestingu" sína.
    0
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    VG beygir sig í öllu undir níðinga Sjálfstæðisflokksins. Það var fyrirséð.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár