Kosningasjóður Trumps gildnar í kjölfar fangamyndar

Á fyrsta sól­ar­hringnum eftir að lög­regla mynd­aði Donald Trump í fang­elsi í Atlanta söfn­uð­ust um 550 millj­ónir króna í kosn­inga­sjóð hans. Ljóst er að rétt­ar­höld munu vefj­ast fyrir kosn­inga­bar­áttu for­set­ans fyrr­ver­andi.

Fangamynd
Fanga­mynd Þetta er fyrsta fanga­myndin sem tekin er af manni sem gegnt hefur emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. „Frægasta ljós­mynd í heimi,“ segir list­gagn­rýn­and­inn Jerry Saltz um mynd­ina sem farið hefur sem eldur í sinu frá því á fimmtu­dag.

„Við gef­umst aldrei upp!“ Einhvern veg­inn þannig mætti þýða slag­orðið „Never Sur­render!“ sem prentað hefur verið við fanga­mynd Trumps á alls kyns varn­ing sem nú má kaupa á vef­síðu sem ætlað er að afla fjár fyrir fram­boð hans til emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna árið 2024. Varn­ing­ur­inn selst eins og heitar lummur og kosn­inga­sjóð­ur­inn hefur gildnað all­veru­lega frá því að fanga­myndin komst í almenna dreif­ingu en hún hefur farið eins og eldur í sinu frá því á fimmtu­dag.

Eftir að Trump var kynnt ákæra í fang­els­inu var hann lát­inn laus gegn trygg­ingu upp á 200 þús­und dali, sem sam­svarar um 26,4 millj­ónum króna.

Á heima­síðu Trumps má finna orð­send­ingu frá honum sem var birt eftir birt­ingu mynd­ar­innar. Þar segir Trump að hann hafi verið hand­tek­inn og færður til fang­els­is­ins í Fulton sýslu í Georgíu, sem sé alræmt fyrir ofbeldi, þrátt fyrir að hafa engan glæp framið. Það sé afskræm­ing á …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár