Hitamál á flokksráðsfundi VG um helgina – Útlendingalög, hvalveiðar og auðlindir í þjóðareign

Hitamál innan rík­is­stjórn­ar­innar á borð við fram­kvæmd nýrra útlend­inga­laga og hval­veiði­bannið eru meðal þess sem tekið er fyrir í drögum að álykt­unum sem liggja fyrir flokks­ráðs­þingi Vinstri grænna sem fram fer um helg­ina. For­sæt­is­ráð­herra kemur að álykt­un­ar­drögum þar sem þess er kraf­ist að auð­lindir verði þjóð­ar­eign, þar með tal­inn fisk­ur­inn í sjónum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með sinn flokks­ráðs­fund í dag og liggur stjórn­mála­á­lyktun hans fyrir síð­degis.

Stefnan mörkuð
Stefnan mörkuð Flokks­ráð er æðsta vald Vinstri grænna milli lands­funda en síð­asti lands­fundur var hald­inn á Akureyri i haust. Mynd: Auðunn

Bæði Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð og Sjálf­stæð­is­flokkur eru með flokks­ráðs­fundi sína um helg­ina. Flokks­ráðs­fundur Vinstri grænna stendur yfir á laug­ar­dag og sunnu­dag, og fer fram í félags­heim­il­inu á Flúðum. Flokks­ráðs­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram á Hilton Reykja­vík Nordica í dag. Á flokks­ráðs­fundum er stjórn­mála­stefna flokk­anna mörkuð á milli lands­funda. 

Þjóðgarður, áfengissala og veiðigjöld

Drög að álykt­unum um auð­lindir í þjóð­ar­eign, stofnun þjóð­garðs á hálend­inu, veiði­gjöld og nýtt fyr­ir­komu­lag á eign­ar­haldi rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, auk draga að álykt­unum um mál­efni umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og áfeng­is­sölu, eru meðal þess sem liggur fyrir fundi Vinstri grænna. Því er ljóst að þar verður fjallað um fjölda mála sem ekki ríkir ein­ing um innan stjórn­ar­flokk­anna. Verði drög að álykt­unum sem liggja fyrir fund­inum sam­þykkt þá gæti það skapað stærri gjá milli sam­starfs­flokk­anna þriggja sem ráða Íslandi.

Stemn­ingin innan rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, þá sér­stak­lega Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks, virð­ist hafa verið að súrna síð­ustu mán­uði, ekki síst vegna mála á borð við útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks, hval­veiði­bann Svan­dísar Svav­ars­dóttur, mat­væla­ráð­herra Vinstri grænna og skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands um söl­una á Íslands­banka sem heyrir undir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks. 

Aðeins 36% styðja ríkisstjórnina

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hefur verið starf­andi frá því síðla árs 2017 en flokk­arnir ákváðu að halda sam­starf­inu áfram eftir kosn­ing­arnar 2021. Katrín Jak­obs­dóttir hefur allan tím­ann verið for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son ráð­herra fjár­mála. 

Samkvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup er stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina aðeins 36%. Vinstri græn mæld­ust með 6,1% fylgi síð­ustu mán­aða­mót, sam­an­borið við 6,2% í júní. Flokk­ur­inn fékk 12,6% í síð­ustu kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokkur mæld­ist með 21% fylgi, sam­an­borið við 20,8 í júní. Flokk­ur­inn fékk 24,4% atkvæða upp úr kjör­köss­unum. 

Gagnrýna lögin sem flokkurinn samþykkti

Í gær voru birt drög að álykt­unum sem verða lagðar fram til sam­þykktar, breyt­ingar eða synj­unar á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna. 

Hörð gagn­rýni á fram­kvæmd útlend­inga­frum­varps­ins er lögð fram í álykt­un­ar­drögum sem stjórnir þriggja aðil­ar­fé­laga Vinstri grænna leggja fram. 

„Fram­kvæmdin má ekki verða til þess að fólk sé skilið eftir á göt­unni. Slíkt er grafal­var­legt og í hróp­legu ósam­ræmi við það sam­fé­lag sem við viljum búa í. Um leið er ítrekað mik­il­vægi þess að sam­kvæmt lög­unum má ekki fella niður rétt­indi barna, for­eldra eða umsjón­ar­manna þeirra og ann­arra heim­il­is­manna sem telj­ast til ætt­ingja barna, barns­haf­andi kvenna ásamt alvar­lega veikum ein­stak­lingum og fötl­uðum með langvar­andi stuðn­ings­þarfir. Grund­vall­ar­mann­rétt­indi þeirra sem missa þjón­ustu verður að tryggja. Lokaðar flótta­manna­búðir þar sem fólk er geymt þar til hægt er að senda það úr landi er ekki lausnin á þess­ari stöðu,“ er meðal þess sem segir í drög­unum. Þegar umræða stóð yfir um frum­varpið á þingi bentu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar á að fólk myndi lenda á göt­unni ef það yrði að lögum.

Í drögum að ályktun sem stjórn kjör­dæm­is­ráðs VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi hefur lagt fram segir: „Flokks­ráðs­fundur Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, hald­inn á Flúðum 26.-27. ágúst 2023, fagnar þeirri vinnu sem mat­væla­ráð­herra hefur unnið í tengslum við hval­veiðar sem byggir á fag­legu mati og sjón­ar­miðum dýra­vel­ferðar. Flokks­ráðs­fund­ur­inn lýsir yfir fullum stuðn­ingi við þær ráð­staf­anir sem gripið hefur verið til fram til þessa.“ Svandís og aðrir þing­menn hafa staðið þétt að baki bann­inu en það fór heldur illa í Sjálf­stæð­is­menn og sagði Bjarni stöðvun hval­veiða ekki gott inn­legg inn í stjórn­ar­sam­starfið. 

Spurningamerki við lúxusferðaþjónustu á hálendinu

Stjórn Vinstri grænna, sem meðal ann­ars er skipuð Katrínu og Guðmundi Inga Guð­brands­syni félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hefur lagt fram drög að ályktun um mik­il­vægi þess að sett verði ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign í stjórn­ar­skrá líkt og Katrín lagði fram á þingi á síð­asta kjör­tíma­bili. 

„Ísland byggir til­vist sína á nátt­úru­auð­lindum og það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að setja þá grund­vall­ar­reglu að þær séu þjóð­ar­eign, skýrar reglur gildi um mögu­lega nýt­ingu þeirra og tryggt sé að hún sé sjálf­bær. Það á við um fisk­inn í sjónum, orku, vatn, jarð­efni á landi og á hafs­botni, ósnortna nátt­úru og allar aðrar þær auð­lindir sem finna má í nátt­úru Íslands,“ segir þar meðal ann­ars. Þá er þar bent á að nýleg við­skipti með hluta vatns­auð­lind­ar­innnar sýni að eft­ir­spurn eftir ýmsum auð­lindum er gríð­ar­lega hvaðanæva úr heim­inum. 

„Þá er rétt að árétta að löngu tíma­bært ákvæði um umhverfis- og nátt­úru­vernd verði sam­þykkt í stjórn­ar­skrá þar sem almanna­rétt­ur­inn er einnig tryggður en upp­bygg­ing lúx­us­ferða­þjón­ustu á hálendi Íslands vekur spurn­ingar um vernd lítt snort­inna víð­erna og rétt almenn­ings til að fara um þau,“ segir einnig í drög­unum. 

Ís- kúa- og ferðaþjónustubóndi í pallborði

Stjórn flokks­ins leggur einnig fyrir fund­inn álykt­un­ar­drög um að leggja skuli niður Banka­sýslu ríks­ins og taka þurfi upp nýtt fyr­ir­komu­lag á eign­ar­haldi í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem er að hluta eða í heild í eigu rík­is­ins. „Banka­sýsla rík­is­ins fór með fram­kvæmd á sölu hlutar í Íslands­banka og bar þar leið­bein­ingar- og eft­ir­lits­skyldu gagn­vart Íslands­banka og öðrum þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem tóku þátt í þeirri sölu. Ekki er hægt að líta fram hjá ábyrgð stofn­un­ar­innar á fram­kvæmd­inni að þessu leyti og mik­il­vægt að betra fyr­ir­komu­lag verði tekið upp hvað varðar eign­ar­hald á fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þá hvetur fund­ur­inn til þess að þau skref sem stigin voru á síð­asta kjör­tíma­bili til að aðskilja við­skipta- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi verði metin og tekið til skoð­unar að lög­festa fullan aðskilnað,“ segir þar. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem lögð er áhersla á að leggja niður Banka­sýsl­una og sam­þykkti sitj­andi rík­is­stjórn á síð­asta ári að gera það.

Álykt­un­ar­drögin verða til umræðu á fund­inum í dag og greidd verða atkvæði um þær fyrir hádegi á morgun, sunnu­dag. Á dag­skrá fund­ar­ins eru einnig pall­borðsum­ræður um mat fram­tíð­ar­innar þar sem korn- og svína­bóndi, sveppa­bóndi, og ís- kúa- og ferða­þjón­ustu­bóndi verða meðal ann­arra. Þá er einnig farið í sér­staka sum­ar­ferð þar sem skoðuð er starf­semin á garð­yrkju­stöð­inni Espiflöt auk göngu­ferðar þar sem Seyru­verk­efnið er kynnt. 

Geir H. Haarde mætir á Hilton

Flokks­ráðs­fundur Sjálf­stæð­is­flokks hefst klukkan 12:30 þegar Bjarni setur fund­inn. Á dag­skrá er meðal ann­ars umræða um breyttan heim og nýjar áskor­anir í öryggis- og varn­ar­málum. Geir H. Haarde fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra tekur þar til máls í pall­borði ásamt öðrum.

Þá verða pall­borðsum­ræður um „stjórn­mála­við­horfið“, sem ekki er skýrt nánar í dag­skrá, þar sem þátt taka Bjarni, Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir Reyk­fjörð vara­for­maður, Vil­hjálmur Árnason rit­ari flokks­ins og Óli Björn Kárason þing­flokks­for­maður. Báðum þessum umræðum stýrir Ásta Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri Kópavogs.

Eftir kaffi­hlé er síðan mál­efna­starf í vinnu­hópum þar sem unnið er í drögum mál­efna­hóps um stjórn­mála­á­lyktun fund­ar­ins. Drögin hafa ekki verið opin­beruð. Álykt­unin er síðan sam­þykkt fyrir fund­ar­slit klukkan hálf sex í dag.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Þá er þar bent á að nýleg viðskipti með hluta vatnsauðlindarinnnar sýni að eftirspurn eftir ýmsum auðlindum er gríðarlega hvaðanæva úr heiminum. "
    - Ísafjarðarbær selur 1 tonn af vatni til skemmtiferðaskipa á 407 kr. Í raun er bara verið að greiða fyrir þjónustuna, vatnið látið ókeypis. Til samanburðar kostar hálfpotts vatnsflaska í búð um 400 kr. En pottur af mjólk kostar rúmar 200 kr. svo það er margt skrýtið í kýrhausnum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár