Valdarán fámála friðargæsluliðans

Hann hafði þann starfa að gæta öryggis for­seta síns. En ákvað svo að ræna hann völdum. Fangelsa og ákæra fyrir land­ráð. Í land­inu sem Sahara-eyði­mörkin þekur að stærstum hluta, er Frakkar fóru um með ofbeldi og eign­uðu sér í meira en hálfa öld, seg­ist hers­höfð­ing­inn Tiani ætla að tryggja frið og auka vel­sæld. Með valdarán­inu bar hann hins vegar olíu að óvild­ar­eldi vest­ur­veld­anna og Rúss­lands. Svo enn á ný er hið land­lukta Níger orðið bit­bein póli­tískra afla hinum megin á hnett­inum.

Valdarán fámála friðargæsluliðans
Með eða á móti Viðvera Frakka í tugi ára hefur mótað íbúa Níger. Hluti þeirra vill slíta öll tengsl við gömlu nýlendu­herrana en aðrir vilja meina að Níger­menn njóti góðs af þeim. Hin nýja her­for­ingja­stjórn vill sem minnst frönsk áhrif. Mynd: AFP

Mið­viku­dag­inn 26. júlí birti nígerska for­seta­emb­ættið færslu á Twitter um að hópur úr líf­varð­ar­sveitum for­set­ans Mohamed Bazoum hefðu gert upp­reisn en að her­inn væri í við­bragðs­stöðu og að for­set­inn og fjöl­skylda hans örugg. Þetta varð til þess að stuðn­ings­menn for­set­ans söfn­uð­ust saman við for­seta­höll­ina í höf­uð­borg­inni Niamey en var mætt af fyrr­nefndum líf­varð­ar­sveitum. Fréttir af upp­reisn­inni fóru sem eldur í sinu um heims­byggð­ina og nágranna­ríki í Vestur-Afríku sem og Banda­ríkin, Frakk­land og Evr­ópu­sam­bandið, for­dæmdu upp­á­tækið sem ein­hverjir köll­uðu „mis­heppnað valda­rán“.  

Líf­varð­ar­sveitin var hins vegar ekki á þeim bux­unum að hörfa. Og aðeins nokkrum tímum seinna birt­ist hópur brúna­þungra karl­manna í her­klæðum í rík­is­sjón­varp­inu til að til­kynna að rík­is­stjórn Níger hefði verið steypt af stóli. Að valdaránið hefði ekki mis­heppn­ast heldur tek­ist full­kom­lega. „Öryggis- og varn­ar­sveit­irnar hafa ákveðið að binda endi á þá stjórn sem þið þekktuð hingað til,“ sagði tals­maður hóps­ins, hers­höfð­ing­inn Amadou Abdramane, við áhorf­endur. Landa­mærum lands­ins hefði verið lokað, útgöngu­bann sett á og að allar stofn­anir rík­is­ins hefðu verið leystar upp.

Á sjón­varps­skjánum mátti lengst til vinstri sjá þrek­inn karl­mann, hávaxn­ari en hina í hópnum og klæddur drapp­litum her­klæðum, ólíkt felu­lita­bún­ingum félaga sinna. Hann heitir Abdourahmane Omar Tiani, var höf­uðs­maður líf­varð­ar­sveitar for­set­ans og lýsti sjálfan sig tveimur dögum síðar for­seta umbreyt­inga­stjórnar Níger. Sú her­stjórn sem þá hafði tekið völdin naut stuðn­ings hers­ins sem for­set­inn hafði kallað út til að verja sig er hann hafði verið kró­aður af í höll sinni. Rændur völdum. Og síðar ákærður fyrir land­ráð.

Í miðri eyð­mörk­inniNíger er land­lukt og á land­mæri að mörgum ríkjum.

Nafnið Níger er nokk­urra alda gam­alt. Evr­ópu­bú­arnir sem þangað komu sögðu það tengt hör­und­s­lit þjóð­anna sem bjuggu á svæð­inu og höfðu svo gert í árþús­undir. Að þetta væri land „svarta fólks­ins“. Síðustu ára­tugi hefur þó upp­runi nafns­ins verið rann­sak­aður betur og í ljós komið að svarta fólk­inu fannst það ekk­ert þurfa að kenna svæði við lit­ar­haft sitt heldur árnar, líf­æð­arnar sem nærðu það og héldu því á lífi. „Á áanna“ er lík­legri kenn­ing.

Níger var auð­vitað ekki Níger eins og við þekkjum það á landa­korti nútím­ans lengst af. Þar bjuggu fjöl­margar þjóðir, smáar sem stórar, stundum undir valdi soldána. Stundum kon­unga. Ráku búfénað sinn með­fram ánni Níger og að Tjad-vatni. Án þess að fara um form­leg landa­mæri. Langt inn í Afríku, fjarri ströndum heims­haf­anna þar sem Evr­ópu­búar sáu snemma gullin tæki­færi til að stunda við­skipti með nátt­úru­auð­lindir hvers konar. Og fólk.

Herrar nýeldu­veld­annaHer­sveitir Frakka sóttu að svæð­inu sem Níger eins og við þekkjum það í dag til­heyrði úr þremur áttum. Þeim tókst áætl­un­ar­verk sitt og settu upp sína nýlendu.

Stofn­aðar voru svo­nefndar nýlendur á þessum gjöf­ul­ustu svæðum svo flytja mætti auð­æfin til að byggja upp lífs­gæðin í Evrópu, án afskipta heima­fólks. Síðari hluta nítj­ándu aldar þótti svo tíma­bært að horfa lengra inn í Afríku. En sam­keppnin var mikil og hörð svo úr varð að valda­karl­arnir sett­ust niður til fundar í Berlín 1885 og skiptu Afríku bróð­ur­lega á milli sín. Dalur Níger­ár­innar, sem nær yfir það svæði sem við þekkjum sem Níger og Malí í dag, kom í hlut Frakka. Upp­hófust þá blóðug átök því fyrir í fleti voru soldánar og aðrir þjóð­höfð­ingjar. Frakkar sóttu að svæð­inu úr þremur áttum og er leið þeirra til sig­urs stráð óhugn­an­legum voða­verkum, ránum, nauðg­unum og drápum á almennum borg­urum.

Meðal þeirra sem stóðu í vegi fyrir frönsku sveit­unum var drottn­ing hluta Hausa-þjóð­ar­innar. Til að leita hefnda fyrir and­stöðu hennar gerði ein her­deildin sér lítið fyrir og drap alla íbúa í þorpi einu. Sá dagur, 8. maí 1899, er álit­inn einn sá ill­ræmd­asti í nýlendu­sögu Frakka og er þó af nógu að taka í þeim efnum.

Eftir að Frakkar náðu mark­miðum sínum stofn­uðu þeir nýlendu sem náði yfir svæði sem við þekkjum í dag sem ríkin Búrkína Fasó, Malí og Níger. Þeir deildu lengi vel við Breta um landa­mærin að þeirra næstu nýlendu, Nígeríu. En komust loks að sam­komu­lagi. Strokuðu út línur og drógu þær aftur upp.

Inn­fæddir héldu áfram að berj­ast og áttu Frakk­arnir fullt í fangi með að verj­ast á þessu svæði sem þeir höfðu ætlað að slá hönd sinni á. Þeir ving­uð­ust við suma þjóð­höfð­ingja en aðrir litu ekki við þeim og börð­ust til hinsta blóð­dropa.

„Öryggis- og varn­ar­sveit­irnar hafa ákveðið að binda endi á þá stjórn sem þið þekktuð hingað til.“
Amadou Abdramane,
hers­höfð­ingi.

Sjálfstæði

Í síð­ari heims­styrj­öld­inni höfðu Frakkar í mörg horn að líta og nýlend­urnar í Afríku voru ekki efstar á for­gangs­list­anum. Charles de Gaulle, þáver­andi for­seti Frakk­lands, lýsti því yfir að nýlend­urnar yrðu hluti af franska sam­bandsveld­inu. Árið 1958 fékk Níger sjálfs­stjórn og 1960 fullt sjálf­stæði frá Frökkum.

Tiani er jafn­gam­all sjálf­stæð­inu. Hann til­heyrir Hausa-þjóð­inni, þeirri sömu og drottn­ingin sem varð­ist frönsku her­sveit­unum sem harð­ast á sínum tíma.

Sjálf­skip­aður for­setiOmar Tiani er ekki maður margra orða. Hann hefur þó ávarpað Níger­menn í sjón­varp­inu tvisvar frá því að valdaránið sem hann leiddi átti sér stað.

Hvort hann er fæddur árið 1960 eða 1961 hefur ekki feng­ist stað­fest. Það kemur svo sem ekki á óvart. Hann er sagður dulur og fámáll. Lítt þekktur nema meðal nán­ustu sam­starfs­manna. Var ekki álit­inn póli­tískt klókur – eða sér­stak­lega áhuga­samur um póli­tík fyrr en hann lét til skarar skríða í lok júlí. Síðan þá hefur hann tjáð sig tvisvar opin­ber­lega en ekki mætt til stórra sam­stöðu­funda með her­stjórn­inni.

Eitt og annað er þó vitað um hans starfsævi.

Tiani hlaut sína her­þjálfun í Senegal, Frakk­landi, Marokkó, Malí og í Banda­ríkj­unum.Um tíma var hann frið­ar­gæslu­liði hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, m.a. á Fíla­beins­strönd­inni og í Darfúr-hér­aði í Súdan. Þá hefur hann einnig verið í þjón­ustu hers banda­lags­ríkja í Vestur-Afríku (Ecowas) og lagði hönd á plóg­inn í Tjad, Nígeríu og Kamerún í bar­átt­unni gegn upp­gangi íslamska hryðju­verka­hóps­ins Boko Haram.

Því þykir mörgum það sæta nokk­urri furðu að hann hafi risið upp gegn Ecowas og virt að vettugi kröfur þeirra um að gef­ast upp og færa völdin aftur í hendur Bazoum for­seta.

 Vann sig hægt upp valdastigann

Er Tiani var gerður að höf­uðs­manni líf­varð­ar­sveita for­seta Níger árið 2011 hafði hann ekki áður gegnt sam­bæri­legri stjórn­un­ar­stöðu, hvorki í heima­land­inu né utan þess. Aldrei áður hafði hann verið í svo miklu návígi við æðstu stjórn­endur lands­ins. Aldrei áður til­heyrt hinum innsta valda­hring með allri þeirri póli­tísku kænsku og mála­miðl­unum sem oft þarf til. Lengst af var hann fyrst og fremst „her­maður meðal her­manna“.

Þrátt fyrir að vera kom­inn í þessa miklu valda­stöðu er hann ekki sagður hafa verið gjarn á að tjá sig eða leggja á ráðin um varnir lands­ins og bar­átt­una gegn her­skáum ísla­mistum sem hefur tekið veru­lega á stjórn­völd síð­ustu ár. Hann hélt skoð­unum sínum fyrir sig en naut að sama skapi mik­ils trausts sam­starfs­manna sinna. For­set­arnir tveir sem hann bar ábyrgð á að verja sem yfir­maður líf­varð­ar­sveit­anna eru þó sagðir hafa haft lítið saman við hann að sælda þótt þeir hafi treyst honum fyrir lífi sínu.

Við ráðumKarl­arnir sem hrifsuðu til sín völdin voru mættir í sjón­varpið dag­inn eftir að lýsa mark­miðum sínum.

Eitthvað var Bazoum hins vegar orð­inn ósáttur við höf­uðs­mann­inn og síð­ustu vikur komst sá orðrómur á kreik að for­set­inn væri að und­ir­búa starfs­lok vernd­ara síns í hans óþökk. Mögulega hefur per­sónu­leg óvild þeirra á milli vaxið þótt hvor­ugur sé sagður hafa tjáð sig mikið um hana.

Því er kenn­ingin sú að Tiani, sem eyddi mest allri starfsæv­inni sem almennur her­maður, hafi þótt hann órétti beittur og ákveðið að hrifsa völdin.

Og núna er hann búinn að koma sér í stöðu þar sem reyna mun á póli­tíska kænsku og tengsl. Enn sem komið er lítur hins vegar út fyrir að hann ætli að gera það sem hann kann best: Segja sem minnst en gefa ekk­ert eftir.

 

Frakkana burtHluti íbúa Níger vill draga úr áhrifum Frakka í land­inu. Slíkum boð­skap hefur verið haldið á lofti á sam­stöðu­fundum á götum úti með her­forn­ingja­stjórn­inni.

Það er ekki hægt að full­yrða að her­for­ingja­stjórn Tianis njóti almennrar hylli en hún nýtur tölu­verðrar hylli, svo mikið er víst. Henni hefur tek­ist að ein­hverju leyti að höfða til þeirra sem eru enn reiðir vegna yfir­gangs Frakka og tengsla þeirra við landið sem til þessa dags hafa, líkt og víðar í Vestur-Afríku, verið þónokkur.

En lof­orð her­for­ingj­anna um að bæta lífs­kjör fólks­ins gæti reynst erfitt að upp­fylla. Þrátt fyrir að banda­lags­ríkin, Ecowas, hafi horfið frá hern­að­ar­í­hlutun, í bili að minnsta kosti, eru þau þegar farin að beita marg­vís­legum þving­unum sem m.a. hafa orsakað útbreitt raf­magns­leysi í borgum og bæjum. Þá hafa ríkin hætt allri fjár­hags­að­stoð í gegnum stofn­anir sínar og tak­markað veru­lega öll við­skipti við Níger. Þetta gæti orðið her­for­ingja­stjórn­inni dýr­keypt því ein helsta áskor­unin er skuldir rík­is­ins.

Á meðan við­skipta­þving­anir eru lagðar á Níger hækka allar nauð­synja­vörur almennra borg­ara. Það valda­tafl sem Tiani og félagar hófu gæti þannig orðið til þess að steypa nígersku þjóð­inni, um 24 millj­ónum manna, ofan í hyl­dýpi enn meiri fátæktar.  

Samvinnan í uppnámi

En hví eru vest­ræn ríki að skipta sé af því sem er að ger­ast í Níger? Helst skal nefna sam­eig­in­lega bar­áttu þeirra og for­set­ans fang­els­aða gegn upp­gangi Al Qaida, ISIS og Boko Haram. Á síð­ustu árum hafa hópar sem kenna sig við þessi hryðju­verka­sam­tök gert mik­inn óskunda í þessum heims­hluta og fellt þús­undir manna.

Valdaránið á dög­unum er það fjórða sem orðið hefur frá því að Níger varð sjálf­stætt ríki fyrir rúm­lega sex ára­tugum. Tiani gæti hafa horft til nýlegra valdarána í nágranna­ríkj­unum und­an­farin ár, m.a. í Burkina Faso, Malí og Gíneu, sem fyr­ir­myndar. Og þar liggur enn ein skýr­ingin á mik­il­vægi Níger fyrir vest­ur­veldin síð­ustu miss­eri. Í kjöl­far þeirra valdarána var nær­veru erlendra her­sveita, m.a. franskra, ekki óskað lengur í þessum ríkjum. Bazoum for­seti tók þeim hins vegar opnum örmum og fékk að launum fjár­muni til að þjálfa nígerska her­inn og kaupa allra handa búnað til stríðs­rekstrar.

Við­skipta­þving­anirBrauð­stritið er mikið hjá mörgum íbúum Níger. Þving­anir erlendra ríkja, sem vilja her­for­ingja­stjórn­ina frá og Bazoum for­seta aftur að völdum, munu auka á fátækt fólks.

Um 1.000 banda­rískir her­menn voru í Níger að minnsta kosti þar til nýverið og um 1.500 franskir her­menn. Eftir því sem næst verður kom­ist sýna þeir ekki á sér neitt far­ar­snið þrátt fyrir valdaránið og þrátt fyrir að Tiani og félagar hafi kraf­ist þess af þeim frönsku. Hins vegar hafa þús­undir ann­arra útlend­inga verið fluttir á brott á síð­ustu vikum.

Evr­ópu­sam­bandið hefur svo stólað á nígersk stjórn­völd til að hefta straum flótta­fólks frá Afríku og til Evrópu. Á leið sinni að Mið­jarð­ar­haf­inu hafa margir flúið í gegnum Níger og þaðan til Líbíu.  

„Enginn kostur hefur verið tek­inn út af borð­inu.“
Bola Tinubu,
for­seti Nígeríu.

Tilbúin til innrásar

Nígería og önnur ríki sem til­heyra Ecowas-banda­lag­inu segj­ast hafa heri sína til­búna þótt ekki hafi enn orðið af hót­unum inn hern­að­ar­í­hlutun. Að sama skapi hafa her­for­inga­stjórn­irnar í Malí og Búrkína Fasó sagt að slíkt inn­grip myndi jafn­ast á við stríð gegn sér og hafa hótað því að verja her­forn­inga­stjórn­ina í Níger með öllum ráðum.

„Enginn kostur hefur verið tek­inn út af borð­inu,“ sagði Bola Tinubu, for­seti Nígeríu, nýverið. Vald­beit­ing gegn her­for­ingja­stjórn­inni væri loka­úr­ræðið. „Ef við gerum það ekki mun eng­inn annar gera það fyrir okkur,“ sagði hann.

Engar blóðsút­hell­ingar hafa fylgt valdarán­inu í Níger. Enn sem komið er. Ef ráð­ist yrði inn í landið gegn her­for­ingja­stjórn­inni, og Malí og Búrkína Fasó kæmu svo til varnar, gæti brot­ist út mann­skæð átök sem ekki yrðu ein­göngu bundin við Níger.  

Her­for­ingja­stjórnin vill tryggja öryggi í Níger að sögn tals­manna hennar. Nokkur árangur hefur hins vegar náðst á þessu sviði síð­ustu mán­uði og árásum öfga­hópa á óbreytta borg­ara í land­inu fækkað umtals­vert.

Hvað svo?

Þar sem Tiani og félagar hafa slitið öll stjórn­mála­tengsl við Frakka er spurn­ing til hvaða banda­manna þeir munu leita. Rússland hefur verið nefnt í því sam­bandi. Um það hafa her­for­ingj­arnir ekki tjáð sig bein­línis og rúss­nesk stjórn­völd hafa kallað eftir því að lýð­ræð­is­legum stjórn­ar­háttum verði komið á aftur í Níger. Þau hafa einnig varað við hern­að­ar­í­hlut­unum erlendra ríkja. Hins vegar hefur leið­togi Wagner-hóps­ins, skæru­liða­hóps rúss­neskra mála­liða, lofað valdaránið og boðið her­for­ingja­stjórn­inni aðstoð.

Hver svo sem afskipti Wagner-liða eða rúss­neskra stjórn­valda verða eða verða ekki er ljóst að valdaránið í Níger hefur komið af stað högg­bylgju í hinu póli­tíska lands­lagi víða. Hvort hún fjari út eða verði að risa skjálfta mun skýr­ast á næstu dögum eða vikum.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár