Pussy Riot: Hættulegt að vera hinsegin manneskja í Rússlandi

Staða hinsegin fólks í Rúss­landi hefur versnað á nýliðnum árum að sögn liðs­kvenna Pussy Riot. Þær hafa barist fyrir umbótum og var hluti liðs­kvenna sveit­ar­innar hand­tek­inn í kjöl­far gjörn­ings sem þær frömdu til stuðn­ings hinsegin fólki á afmæl­is­degi Rúss­lands­for­seta árið 2020.

Baráttukonur
Bar­áttu­konur Þær Alina, Masha, Olga og Diana eru nú í sjálf­skip­aðri útlegð frá Rúss­landi. Þær ákváðu að yfir­gefa heima­landið í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu. Þær töldu ómögu­legt að berj­ast gegn stríð­inu frá Rúss­landi vegna rit­skoð­un­ar­laga. Þær hafa líka látið sig varða mál­efni hinsegin fólks í bar­áttu sinni fyrir auknum mann­rétt­indum í Rúss­landi. Mynd: Tara Tjörvadóttir

Staða hinsegin fólks er afleit í Rúss­landi og hefur ein­ungis versnað á nýliðnum árum. Þetta er á meðal þess sem liðs­konur Pussy Riot segja í löngu við­tali sveit­ar­innar við Heim­ild­ina. Þrengt hefur verið að rétti hinsegin fólks í land­inu að und­an­förnu, líkt og Diana Burkot bendir á.

„Það sem hefur gerst er að stjórn­völd hafa ákveðið að láta sömu reglur gilda í Rúss­landi öllu og gilda í Téténíu. Þar er hrein­lega mjög hættu­legt að vera hinsegin mann­eskja og þar getur hinsegin mann­eskja átt á hættu að vera flutt af öðrum fjöl­skyldu­með­limum á sér­staka sjúkra­stofnun og með­ferðin þar lík­ist pynt­ingum.“

„Þetta kall­ast bæl­ing­ar­með­ferð,“ bætir Alina Petrova við til upp­lýs­ingar.

Téténia hefur verið kallað hættu­leg­asta svæði Rúss­lands fyrir hinsegin fólk en þar er það bein­línis ofsótt. Leiðtogi lands­ins, Ramzan Kadyrov sem er álit­inn hálf­gerður varð­hundur Pútíns hefur hins vegar þver­tekið fyrir það að hinsegin fólk fyr­ir­finn­ist í Téténíu.

Flögguðu regnbogafána við ríkisstofnanir í Moskvu

Liðs­konur Pussy Riot hafa látið mál­efni hinsegin fólks sig varða. Diana segir til að mynda í við­tal­inu frá gjörn­ingi sem hóp­ur­inn framdi á afmæli Vla­dimírs Pútíns, Rúss­lands­for­seta árið 2020. „Við frömdum gjörn­ing til stuðn­ings fólki sem til­heyrir LGBTQ+ sam­fé­lag­inu og eftir gjörn­ing­inn náði lög­reglan mér. Ég fór niður á lög­reglu­stöð og ég hef verið þar margoft en aldrei í fang­elsi. Að minnsta kosti ekki enn sem komið er.“

Gjörn­ing­ur­inn sem um ræðir vakti nokkra athygli og um hann var fjallað í fjöl­miðlum á borð við Reuters og Deutsche Welle. Liðsmenn Pussy Riot fóru um Moskvu og flögg­uðu regn­boga­fána við bygg­ingar margra af helstu stofn­un­unum sem þar er að finna, til að mynda við höf­uð­stöðvar leyni­þjón­ust­unnar FSB (for­veri hennar var KGB), við hæsta­rétt, við stjórn­ar­skrif­stofu for­set­ans og við rúss­neska menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið.

Rúss­neska menn­ing­ar­mála­ráðu­neytiðStarfs­fólk vinnur saman að því að taka niður regn­boga­fána sem liðs­konur Pussy Riot höfðu flaggað við skrif­stofur rúss­neska menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í Moskvu.

Í umfjöllun The Art Newspaper um gjörn­ing­inn og afleið­ingar hans segir að fimm hafi verið færð á lög­reglu­stöð í kjöl­farið. Í þeim hópi, auk Diönu, var meðal ann­ars Maria Alyok­hina sem var gripin af lög­reglu þegar hún var á leið í sjón­varps­við­tal.

Hafa kallað eftir alls kyns umbótum 

Í yfir­lýs­ingu sem Pussy Riot birti á Facebook-síðu sinni í tengslum við þessar aðgerðir not­aði hóp­ur­inn tæki­færið til að senda Pútín ham­ingju­óskir í til­efni afmælis hans. Hópurinn óskaði einnig aðgerðum frá Rúss­lands­stjórn í sjö liðum.

Meðal þess sem hóp­ur­inn óskaði eftir var að rann­sókn færi fram á mann­ránum og morðum á hinsegin fólki í Téténíu, að aðsókn að aðgerðasinnum sem berj­ast fyrir auknum rétt­indum hinsegin fólks yrði hætt og að mis­munun á grund­velli kyns og kyn­hneigðar yrði bönnuð með lögum. Þær ósk­uðu enn fremur eftir því að sam­kynja hjóna­bönd yrðu lög­leidd, að áreiti í garð fólks í sam­kynja sam­böndum yrði hætt sem og brott­nám barna sam­kynja fólks.

Þá lögðu þær til að 7. októ­ber, afmæl­is­dagur for­set­ans, yrði gerður að sér­stökum hátíð­is­degi til heið­urs hinsegin fólki.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár