Komst frá Belarús með íslenskum ferðaskilríkjum

Maria Alyok­hina flúði Rússland í apríl á síð­asta ári. Hún þurfti að gera nokkrar til­raunir til að kom­ast út úr Belarús áður en hún fékk „ferða­skil­ríki frá ótil­greindu Evr­ópu­landi“ upp í hend­urnar líkt og það var orðað í umfjöllun New York Times. Þau skil­ríki voru íslensk.

Á sviði
Á sviði Maria Alyok­hina stendur hér keik fyrir miðju við flutn­ing á verk­inu Riot Days. Til vinstri er Diana Burkot og til hægri er Olga Borisova. Fyrir aftan þær mundar Alina Petrova raf­fiðlu sína. Mynd: Tara Tjörvadóttir

Tíma­bundin ferða­skil­ríki frá Íslandi gegndu lyk­il­hlut­verki þegar Maria Alyok­hina ferð­að­ist yfir landa­mæri Belarús að Litháen á síð­asta ári. Maria, eða Masha eins og hún er oft­ast kölluð, hafði þá nýlega tek­ist að kom­ast burt frá heima­landi sínu Rúss­landi. Masha sat í varð­haldi þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu og fréttin barst henni til eyrna úr útvarpi sem hún var með í klef­anum sínum. Þá þurfti hún að taka ákvörðun um hvað hún ætl­aði að gera í fram­hald­inu. Hún vildi berj­ast gegn stríð­inu og til þess þurfti hún að kom­ast burt úr land­inu, enda taka yfir­völd hart á öllum gagn­rýn­is­röddum.

Það sem helst vakti athygli við flótta Möshu var sendla­bún­ing­ur­inn sem hún not­aði til að dul­búa sig. Þegar Masha sat inni greip Lucy Shtein, kærasta Möshu, til þess ráðs að kaupa slíkan bún­ing til þess að geta skroppið út úr íbúð þeirra og í göngut­úra en bygg­ingin þeirra var undir eft­ir­liti lög­reglu.

„Heim­send­ingar á mat eru mjög algengar í Rúss­landi og svona sendlar eru út um allt svo þannig tókst henni að kom­ast í göngut­úra á meðan ég var í fang­elsi. Svo þegar hún yfir­gaf landið þá skildi hún gall­ann eftir handa mér. Ég var enn undir eft­ir­liti svo ég not­aði gall­ann til þess að kom­ast út úr bygg­ing­unni sem íbúðin okkar var í en ég var ekki í honum alla leið­ina út úr Rúss­landi. Það hefði verið mjög skrítið að vera í svona send­lagalla í bíl við landa­mærin inn í Belarús,“ segir Masha hlæj­andi í sam­tali við Heim­ild­ina.

Ragnar Kjartansson hjálpaði til

Það reynd­ist henni þó þraut­inni þyngri að kom­ast í burtu frá Belarús. New York Times tók við­tal við Möshu og fjall­aði í löngu máli um svað­il­för­ina en hún tókst að hluta til vegna aðstoðar frá mynd­list­ar­mann­inum Ragnari Kjart­ans­syni sem náði að útvega Möshu ferða­skil­ríki frá ótil­greindu Evr­ópu­landi, eins og það var orðað í grein­inni.

Þær Masha og Lucy hafa nú báðar fengið íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Spurð að því hvort hún geti nú stað­fest, í ljósi íslenska rík­is­borg­ara­rétt­ar­ins, að ferða­skil­ríkin sem hún fékk í Belarús hafi verið íslensk segir Masha ekki geta tjáð sig um það.

„Ég get ekki talað um ferða­skil­ríkin mín, það er það eina sem ég get ekki talað um.“

Svarið fékkst hjá umboðsmanninum

Svarið við þess­ari spurn­ingu fékkst þó síðar sama kvöld og við­talið var tekið, frá umboðs­manni hljóm­sveit­ar­innar, Alex­ander Cheparukin. Áður en Pussy Riot steig á stokk í Herðu­breið þá hélt hann stutta tölu þar sem hann kynnti með­limi sveit­ar­innar. Þar rakti hann flótta Möshu í stuttu máli og sagði hana þrisvar sinnum hafa reynt að kom­ast yfir landa­mærin út úr Belarús. 

„Loksins tókst henni að kom­ast yfir landa­mæri með gildum ferða­skil­ríkjum. Núna vitum við það og það er ekk­ert leynd­ar­mál að hún fékk í hend­urnar tíma­bundin, afar tíma­bundin ferða­skil­ríki frá Íslandi sem henni voru send til Belarús. Fyrir viku síðan fékk hún svo íslenskt vega­bréf í Reykja­vík og þess vegna erum við hér,“ sagði umboðs­mað­ur­inn um miðjan júlí.

Fáar leiðir greiðar út úr Rússlandi

Frekari spurn­ingar til Möshu um það hvernig hún komst á brott báru ekki miklan árangur, hún vildi helst ekki tjá sig mikið um það. Skilj­an­lega, gæti ein­hver sagt, sér­stak­lega í ljósi þess sem hún þó sagði undir lok við­tals­ins, í þann mund sem hóp­ur­inn þurfti að hlaupa niður í félags­heim­ilið til þess að koma sér í hljóðprufu fyrir tón­leika kvölds­ins.

„Ég held að það sem er mik­il­væg­ast fyrir þig að skilja er það að í Rúss­landi eru mjög margir í mik­illi hættu. Það eru ekki margar greiðar leiðir út úr land­inu. Fólk er að nota þessar leiðir og þeir aðgerða­sinnar sem aðstoða fólk við að koma sér í burtu þurfa að not­ast við sömu, fáu leið­irnar og því minna sem við tölum um þær, því betra fyrir fólkið sem enn þarf að nota þessar leiðir til að koma sér burt.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár