Kunna vel við land og þjóð þó svo að veðrið mætti vera hlýrra

„Það er töfrum lík­ast,“ segir Diana Burkot, ein liðs­kvenna Pussy Riot, um eld­gosið á Reykja­nesskaga sem hófst skömmu eftir að sveitin lenti á Íslandi í júlí. Olga Borisova segir aftur á móti að hér sé of kalt og sum­ar­næt­urnar séu full bjartar.

Með einkennistáknið, lambhúshettuna
Með ein­kenn­is­táknið, lamb­hús­hett­una Þegar kalt er úti er gott að eiga góða lamb­hús­hettu. Það var að vísu hlýtt og nota­legt í félags­heim­il­inu Herðu­breið á Seyð­is­firði þegar Pussy Riot tróð þar upp með verki sínu Riot Days. Mynd: Tara Tjörvadóttir

Liðs­konur Pussy Riot bera landi og þjóð vel sög­una, ef frá er talið veðrið. „Það er of kalt!“ segir Olga Borisova, ein liðs­kvenna sveit­ar­innar, í sam­tali við Heim­ild­ina. Að vísu er fleira en bara veðrið sem hún á erfitt með að venj­ast. „Ég á í erf­ið­leikum með kuld­ann og ekki bara kuld­ann, heldur líka alla birt­una. Þetta er frekar krefj­andi fyrir mig jafn­vel þó ég sé frá Sankti Pét­urs­borg. Við höfum líka mikla birtu á sumrin og bjartar nætur en þetta er eitt­hvað allt annað!“

„Svo er líka svo gaman að vita af eld­gos­inu, ég veit að það er miklu nær Reykja­vík en það er mjög gaman að vita af því að þar er eld­fjall að gjósa og það er töfrum lík­ast. Við vorum nýkomnar til lands­ins og þá byrj­aði að gjósa,“ segir Diana Burkot um landið. Þess má geta að þegar Heim­ildin tók hús á Pussy Riot á Seyð­is­firði var júlí rétt um hálfn­aður og eld­gos við Litla-Hrút stóð sem hæst. Þangað voru þær komnar til þess að flytja verk sitt Riot Days í félags­heim­il­inu Herðu­breið á lista­há­tíð­inni LungA.

„Þetta er mjög sér­stakur staður,“ bætir Diana við um Seyð­is­fjörð. „Við höfðum nú þegar haldið tvær sýn­ingar í Reykja­vík, í Þjóð­leik­hús­inu og þetta er allt, allt öðru­vísi. Náttúran hér er mjög áhuga­verð og ég kann mjög vel að meta það hvernig hátíðin er skipu­lögð.“

Þjóðleikhúsið mun formlegra en Herðubreið

Olga tekur í sama streng og seg­ist kunna mjög vel við gras­rót­ar­stemn­ing­una á hátíð­inni. Henni finnst sam­an­burð­ur­inn á milli Þjóð­leik­húss­ins og félags­heim­il­is­ins Herðu­breiðar skemmti­legur, enda allt miklu form­legra í Þjóð­leik­hús­inu „Áður höfðum við komið fram í Þjóð­leik­hús­inu með sínum súlum og það var mjög…“

„Og rauður stól­arnir!“ grípur ein­hver í hópnum fram í fyrir Olgu.

„Já akkúrat, rauðu stól­arnir og rauðu leik­tjöldin og allt það! Núna erum við bara að hanga með unga fólk­inu og það er mjög gaman að sjá allt þetta unga íslenska fólk og mér líkar mjög vel við stíl­inn þeirra. Það er mjög gott að vera hérna. Manni finnst skipu­lagið vera mjög lárétt og það er mjög frá­bært.“

„Áhorf­end­urnir hér eru ein­stakir,“ bætir Alina Petrova við og tekur undir orð þeirra Olgu og Diönu um lárétt skipu­lag lista­há­tíð­ar­innar LungA. „Maður getur skipst á skoð­unum við annað fólk og séð hvað aðrir eru að gera og svo getur maður unnið með öðrum líka.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár