Hefur ofið tugi armbanda í litum hinsegin fólks

Indigo Iðunn Þorkels var 11 ára þegar hán komst að því að hán væri kynsegin. Indigo fædd­ist í lík­ama stelpu og fannst fólk alltaf sjá hán öðru­vísi en hán upp­lifði sig. „Það er eins og þú sért í bún­ingi og allir séu að kalla þig nafn­inu á karakt­ernum sem þú ert að þykj­ast vera,“ segir Indigo sem hefur ofið fjöld­ann allan af arm­böndum í litum hinsegin fólks að und­an­förnu.

Hefur ofið tugi armbanda í litum hinsegin fólks
List Indigo Iðunn vefur mis­mun­andi teg­undir af arm­böndum sem gefa til kynna stuðn­ing við hinsegin fólk.

Indigo Iðunn Þorkels er klætt í hekl­aðan topp, með marg­litað heklað veski og hvítan stein í snæri um háls­inn. Skartið og fatn­að­inn bjó hán til sjálft. Indigo á nokkra mán­uði í að ná þrettán árum en er samt fyrir löngu síðan farið að tjá til­finn­ingar sínar með list. Þær til­finn­ingar geta verið flóknar fyrir unga kynsegin mann­eskju.

Á vinstri úln­lið Indigo er vina­band í öllum regn­bog­ans litum. Móðir Indigo, Ragn­heiður Svein­björns­dóttir, ber sam­bæri­legt arm­band og stóra systir, Inga Vildís Þor­kels­dóttir, líka. 

Arm­böndin hefur Indigo ofið í til­efni hinsegin daga sem hófust í þess­ari viku. 

„Þó að fólk sé ekki hinsegin þá sýna arm­böndin að fólkið styðji þau,“ segir Indigo sem hefur ofið um fjóra tugi arm­banda nú þegar og selt vinum og vanda­mönnum hluta þeirra.

„Þá mun fólk sem er kannski hrætt um að koma út úr skápnum vita að það er fólk þarna …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Merkileg málnotkun. Þessi einstaklingur hefur sem sagt vafið armbönd. Þá spyr maður sig um hvað vafði hún/hann/hán armböndin? Mér þykir líkelgt, en get ekki fyllyrt, að hún/hann/hán hafi ofið armböndin. Ef svo er, þá verður annað skiljanlegt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár