Dóttir raðmorðingja safnar fyrir skilnaði Ásu

Um 600 þús­und krónur hafa safn­ast fyrir lög­fræði­kostn­aði Ásu Ellerup sem hefur sótt um skilnað frá grun­uðum raðmorð­ingja. Dóttir dæmds raðmorð­ingja stendur fyrir söfn­un­inni.

Dóttir raðmorðingja safnar fyrir skilnaði Ásu
Leitað Lög­reglu­menn búa sig undir hús­leit á heim­ili Heu­er­manns og Ásu. Hann var ákærður í tengslum við þrjú óupp­lýst morð þann 14. júlí síð­ast­lið­inn og er grun­aður um fjórða morðið. Mynd: IWAMURA/AFP

Um 150 manns hafa safnað sam­tals rúmum 4.500 banda­ríkja­dölum, eða því sem nemur um 600 þús­und krónum, fyrir Ásu Guð­björgu Ellerup – eig­in­konu grun­aðs raðmorð­ingja. Ása ætlar sér að skilja við eig­in­mann sinn og var söfn­un­inni hrundið af stað fyrir þremur dögum til þess að hjálpa henni með lög­fræði­kostn­að­inn. 

Melissa Moore stendur fyrir söfn­un­inni en hún hefur verið í svip­uðum sporum og Ása, ver­andi dóttir kanadísk-banda­ríska raðmorð­ingj­ans Keith Hunter Jesper­sons.

Vill skilnaðÁsa Ellerup hefur sótt um skilnað frá Heu­er­mann.

Jesper­son var hand­samaður árið 1995 og var þekktur sem „broskalla“ morð­ing­inn. Hann myrti í það minnsta átta konur í Banda­ríkj­unum snemma á síð­asta ára­tug tutt­ug­ustu aldar. 

„Móðir mín og fjöl­skylda voru og eru fórn­ar­lömb,“ skrifar Moore í lýs­ingu með söfn­un­inni. „Við vissum ekki af tvö­földu lífi hans.“ 

Ekki í ástandi til þess að segja frá skelfingunni

Moore seg­ist hafa fengið sam­þykki Ásu fyrir söfn­un­inni og segir að Ása sé ekki í ástandi til þess að tala um þá skelf­ingu sem hún og fjöl­skylda hennar hafa upp­lifað.

Rex Heu­er­mann, eig­in­maður Ásu, er grun­aður um að hafa myrt fjórar ungar konur á Long Island í Banda­ríkj­unum. 

GrunaðurRex Heu­er­mann er grun­aður um að hafa myrt nokkrar ungar konur.

Lögmaður Ásu hefur áður sagt að hún hafi ekki vitað af ódæð­is­verkum Heu­er­manns. 

Mark­miðið með söfn­un­inni er að safna 5.000 banda­ríkja­dölum, eða því sem nemur um 660 þús­und íslenskum krónum.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár