Hollywood-kennileitið 100 ára

Árið 1923 lét banda­rískt fyr­ir­tæki klambra saman skilti til að aug­lýsa bygg­inga­land í úthverfi Los Angeles. Engan grun­aði þá að skiltið yrði eitt þekktasta kenni­leiti í Banda­ríkj­unum og tákn drauma um frægð og frama á hvíta tjald­inu, en líka von­brigða.

Hollywood-kennileitið 100 ára
Hollywood Árið 1949 var gert við staf­ina, sem farnir voru að láta mjög á sjá og jafn­framt voru fjórir öft­ustu stafirnir, LAND, fjar­lægðir. Hér eftir væri það HOLLYWOOD sem blasti við í hlíð­inni. Mynd: Unsplash

Vorið 1923 fékk fast­eigna- og bygg­inga­fyr­ir­tækið Woodruff and Shoults (nefnt eftir eig­end­unum) aug­lýs­inga­stof­una Crescent Sign Company til að útbúa það sem bygg­inga­fyr­ir­tækið kall­aði aug­lýs­inga­skilti. Fyr­ir­mælin voru þau að skiltið skyldi vera áber­andi, svo áber­andi að það skæri sig úr og ,,gripi augað“ eins og það var kallað. Það sem átti að aug­lýsa var bygg­inga­land skammt vestan við Los Angeles. Stofn­andi og eig­andi Crescent Sign Company var Thomas Goff, breskur mál­ari sem hafði flutt til Los Angeles. Hann lagði til að í stað aug­lýs­inga­skiltis yrðu búnir til stórir ,,frístand­andi“ stafir sem komið yrði fyrir í hlíð­inni fyrir neðan svæðið sem ætl­unin væri til bygg­inga og kallað var Hollywoodland. Þeir Woodruff og Shoults sam­þykktu þetta en lögðu áherslu á að stafirnir yrðu mjög stórir. ,,Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af því, og svo læt ég lýsa það upp að kvöld- og næt­ur­lagi,“ sagði Thomas Goff. Þetta leist þeim Woodruff og Shoults vel á og í lok júlí 1923 var búið að koma stöf­unum fyrir í hlíð­inni. Thomas Goff hafði engu logið um að stafirnir yrðu áber­andi og vektu athygli. Stafirnir 13, Hollywoodland, voru gerðir úr hvít­mál­uðu timbri, sem fest var á vír­net (hænsna­net), hver stafur um 15 metra hár og rúm­lega 9 metra breiður.  4 þús­und ljósa­perum hafði verið komið fyrir á stöf­unum og lýstu þá upp til skiptis, fyrst ,,Holly“ þá ,,Wood“ og síðan ,,Land“ og síð­ast ,,Hollywoodland“ í heild sinni. Verkinu lauk, eins og áður sagði, í lok júlí 1923. Tracy Shoults lést í sama mán­uði, 52 ára gam­all. Sidney Woodruff rak fyr­ir­tækið áfram, hann lést árið 1961, 85 ára.   

Átti að standa í eitt og hálft ár

Þegar þeir Woodruff og Shoults réðu Thomas Goff til að útbúa ,,aug­lýs­inga­skiltið“ gerðu þeir ráð fyrir að það myndi standa í hlíð­inni í eitt og hálft ár. Mikil vinna hafði verið lögð í að skipu­leggja bygg­inga­svæðið Hollywoodland og ætlun þeirra félaga var að þar yrðu fyrst og fremst íbúð­ar­hús ,,á skap­legra verði en inni í Los Angeles“ eins og það var orðað í aug­lýs­ingum. Þeir Woodruff og Shoults létu ekki aug­lýs­inga­staf­ina nægja í við­leitn­inni til að lokka kaup­endur að lóð­unum í Hollywoodlandi, þeir fengu yfir­arki­tekt svæð­is­ins, John L. DeLario, til að hanna sér­stök hlið úr grjóti úr nágrenn­inu, eins konar borg­ar­hlið, á tveimur stöðum þar sem farið var inn á svæðið. Við annað þess­ara hliða voru sett upp eins konar sýn­is­horn af þeirri starf­semi sem þeir Woodruff og Shoults sáu fyrir sér á svæð­inu: rak­ara­stofa, fata­hreinsun, tvær litlar versl­anir og snyrti­stofa. Eftir að aug­lýs­inga­stafirnir höfðu staðið í  hlíð­inni í eitt og hálft ár, eins og til stóð í upp­hafi, var ákveðið að þeir yrðu þar áfram, um óákveð­inn tíma, eins og það var orðað.

Hvernig varð Hollywood að tákni?

Þessari spurn­ingu hafa margir velt fyrir sér, án þess að fá við henni ein­hlítt svar. Ein skýr­ing er sú að á árunum í kringum 1920 var kvik­mynda­iðn­að­ur­inn í miklum vexti vest­an­hafs og til Los Angeles flutt­ust margir leik­arar, sem gjarnan vildu búa vel, utan skarka­l­ans í borg­inni. Margir sagn­fræð­ingar telja að upp­haf Hollywood megi ekki hvað síst rekja til þess að árið 1910 fór leik­stjór­inn D.W. Griffith, sem starfað hafði á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna, til Los Angeles ásamt leik­flokki sínum. Eftir að hafa ,,fil­mað“ í borg­inni ákvað Griffith að fara út fyrir borg­ina, á Hollywood-svæðið, og vinna þar. Þarna gerði Griffith kvik­mynd­ina ,,In Old California“ sem mun vera fyrsta kvik­myndin sem tekin var upp í Hollywood, 17 mín­útna langur þög­ull vestri. Frá­sagnir Griffith og leik­hóps hans urðu til þess að æ fleiri kvik­mynda­fram­leið­endur og leik­arar, sem höfðu starfað á aust­ur­strönd­inni, flutt­ust vestur og komu sér fyrir á Hollywood-svæð­inu. Hollywood varð þannig eins konar sam­nefn­ari fyrir banda­ríska kvik­mynda­gerð og þannig hefur það verið allt til þessa dags.

Hver stafur er um 15 metra hár og rúm­lega 9 metra breiður.

Frægð, frami og vonbrigði

Þótt draumar margra um frægð og frama hafi ræst í Hollywood hefur það síður en svo gilt um alla sem þangað hafa lagt leið sína. Ein þekktasta frá­sögn af brostnum vonum segir frá Peg Entwistle, 24 ára leikkonu frá Wales. Hún hafði komið til Hollywood í atvinnu­leit, eftir að hafa leikið á sviði í New York og fengið góða dóma. Í Hollywood fékk hún hlut­verk í kvik­mynd­inni ,,Thirteen Women“. Þegar myndin var full­gerð sá Peg Entwistle að hlut­verk hennar hafði að mestu verið klippt út. Hinn 18. sept­em­ber 1932, tveimur dögum eftir frum­sýn­ingu mynd­ar­innar, klifraði Peg Entwistle upp stiga sem við­gerð­ar­menn höfðu skilið eftir við einn Hollywood-staf­anna. Hún lét lífið eftir að hafa kastað sér úr stig­anum. Síðar fannst bréf þar sem Peg Entwistle hafði ritað og lýsti þar von­brigðum sínum. Fáeinum dögum síðar fann frændi hennar bréf þar sem henni var boðið aðal­hlut­verk hjá hinu virta leik­húsi Beverly Hills Playhouse. Bréfið kom lík­lega með póst­inum dag­inn eftir að Peg Entwistle lést.

En nú að stöfunum í hlíðinni

 Eins og áður var nefnt var Hollywoodland-aug­lýs­ingin ekki tekin niður eftir 18 mán­uði eins og til stóð í upp­hafi. Stafirnir voru ekki gerðir til að standa árum saman og hægt og bít­andi létu þeir á sjá. Um miðjan fimmta ára­tug síð­ustu aldar féll fremsti staf­ur­inn, H, á hlið­ina. Ólíkum sögum fer af því hvernig það atvik­að­ist. Ein er sú að bíl­stjóri hafi misst vald á bíl sínum sem hafi lent á und­ir­stöðum skilt­is­ins með fyrr­greindum afleið­ingum. Annars staðar má lesa að H staf­ur­inn hafi lagst á hlið­ina í miklu hvass­viðri. H stafnum var komið á sinn stað. Árið 1949 var gert við staf­ina, sem farnir voru að láta mjög á sjá og jafn­framt voru fjórir öft­ustu stafirnir, LAND, fjar­lægðir. Hér eftir væri það HOLLYWOOD sem blasti við í hlíð­inni. Ákveðið var að slökkt skyldi á per­unum 4 þús­und, sem lýst höfðu upp staf­ina en áfram yrði kveikt á köst­urum, sem höfðu verið settir upp árið 1923 og drógu athygli að stöf­unum.

HuLLYW OD og Hugh Hefner

Fátt end­ist að eilífu og það átti sann­ar­lega við Hollywood-staf­ina. Þótt við­gerðin árið 1949 hafi dugað vel var skiltið vart orðið svipur hjá sjón þegar kom fram á átt­unda ára­tug­inn. Efri helm­ingur fyrsta O stafs­ins dott­inn af og staf­ur­inn því breyst í lítið u og svo var þriðji síð­asti staf­ur­inn, O, líka fall­inn um koll. Þótt mörgum þætti súrt í brotið að sjá hvernig komið var gerð­ist þó fátt fyrr en Hugh Hefner, eig­andi og útgef­andi tíma­rits­ins Playboy, beitti sér fyrir söfnun til við­gerðar, eða rétt­ara sagt end­ur­gerðar, á stöf­unum. Hann lagði sjálfur fram stórfé til verks­ins. Steyptar voru nýjar und­ir­stöður fyrir staf­ina sem nú voru gerðir úr stáli, en nákvæm­lega eins og þeir upp­runa­legu. Engar raddir heyrð­ust, og höfðu reyndar aldrei heyrst, um að stafirnir hyrfu. Við sér­staka athöfn 11. nóv­em­ber 1978 fór fram sér­stök athöfn þar sem nýju stafirnir voru afhjúpaðir.
Árið 2005 voru stafirnir hreins­aðir og síðan mál­aðir, í sama hvíta litnum og áður.

Vildu stafina burt og byggja í hlíðinni

Árið 2010 mun­aði minnstu að Hollywood-stafirnir hyrfu. Þá höfðu erf­ingjar athafna­manns­ins Howard Hughes, sem hafði keypt landið árið 1940, selt það fjár­festum sem vildu byggja glæsi­hýsi í hlíð­inni. Fjöl­margir urðu til að mót­mæla þessum fyr­ir­ætl­unum og Arnold Schwarzenegger, þáver­andi rík­is­stjóri í Kali­forníu, vildi gera svæðið að opin­beru landi. Slíkt kost­aði stórfé, því fjár­fest­arnir gáfu ekk­ert eftir. Þegar allt útlit var fyrir að ekki tæk­ist að safna nægi­legri fjár­hæð hljóp Hugh Hefner undir bagga og lagði fram eina milljón doll­ara (131 milljón íslenskar) og þar með var skilt­unum bjargað.

Eitt þekktasta kennileiti í Bandaríkjunum

Þá félaga, Woodruff og Shoults, hefur lík­lega ekki grunað að stafirnir sem ætlað var að aug­lýsa bygg­inga­land yrðu með tím­anum eitt þekktasta kenni­leiti í Banda­ríkj­unum. Það er oft nefnt í sömu andrá og Frels­is­styttan og Empire State. Næsta óhætt er að full­yrða að stafirnir níu muni standa í hlíð­inni vestan við Los Angeles um ókomin ár. Til stendur að efna til hátíða­halda vegna ,,ald­ar­af­mæl­is­ins“ síðar á þessu ári.

Draumaborgin, martröð sumra 

Þótt í Hollywood og Los Angeles hafi margir draumar ræst eru líka margir sem ekki hafa ræst. Hvergi í Banda­ríkj­unum eru eins margir heim­il­is­lausir og í ,,borg englanna“. Um það bil 75 þús­und manns haf­ast við á göt­unni. Það sem af er þessu ári hefur heim­il­is­lausum í borg­inni fjölgað um 9 pró­sent.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár