Flokkur útlagans Puigdemont með framtíð ríkisstjórnarinnar í hendi sér

Pedro Sánchez þarf að sækja stuðn­ing úr mörgum áttum til að halda í emb­ætti sitt sem for­sæt­is­ráð­herra Spánar eftir nýaf­staðnar kosn­ingar. Rót­tæk­asti flokkur kata­lónskra sjálf­stæð­is­sinna er í lyk­il­stöðu þrátt fyrir að hafa ein­ungis fengið sjö þing­sæti af 350.

Stofnandinn
Stofn­and­inn Carles Puig­demont er stofn­andi flokks­ins Junts sem berst fyrir sjálf­stæði Kata­lóníu. Mynd: AFP

Upp er komin sú staða að flokkkur Carles Puig­demont, Saman fyrir Kata­lóníu eða Junts, gæti haft úrslita­á­hrif um það hvort að for­sæt­is­ráð­herra Spánar Pedro Sánchez geti setið áfram í emb­ætti eða ekki. Þessi miklu áhrif Junts eru til­komin þrátt fyrir það að flokk­ur­inn hafi ein­ungis fengið sjö þing­sæti í nýaf­stöðnum kosn­ingum af 350.

Fyrir kosn­ingar var útlit fyrir að öfga­hægri­flokk­ur­inn Vox yrði í bíl­stjóra­sæt­inu að kosn­ing­unum loknum. Skoð­ana­kann­anir gáfu til kynna að hinn íhalds­sami Lýð­flokkur, Partido Popular, gæti náð í meiri­hluta þing­sæta í félagi við Vox. Lýð­flokk­ur­inn fékk flest sæti allra flokka í kosn­ing­unum, 136 tals­ins. Vox beið aftur á móti afhroð í kosn­ing­unum, hlaut 33 þing­sæti en hafði 52 fyrir. Sam­an­lagður þing­styrkur þess­ara tveggja flokka dugir því ekki til að ná hreinum meiri­hluta, hægri blokkin hefur 169 sæti en þarf 176.

Þing­styrkur Sós­í­alista og sam­starfs­flokks hans sem nefn­ist Sumar er öllu minni. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hlaut 122 sæti í nýaf­stöðnum kosn­ingum og er næst­stærsti flokkur Spánar. Sumar hefur 31 sæti og sam­tals ráða flokk­arnir tveir því yfir 153 sætum.

Torfæruleið Sánchez greiðari en leið hægri blokkarinnar

Þrátt fyrir þennan mun telja stjórn­mála­skýrendur að það muni reyn­ast auð­veld­ara fyrir Sánchez heldur en hægri blokk­inni að afla sér stuðn­ings frá öðrum flokkum, líkt og greint er frá í umfjöllun the Financial Times. Flokk­arnir sem helst eru nefndir í því sam­hengi eru flokkar sem berj­ast fyrir sjálf­stæði Kata­lóníu og Baska­lands, flokkar sem hafa verið á bandi Sánchez frá því 2018.

Mik­il­væg­asta púslið í þessu púslu­spili Sánchez er flokkur Puig­demont, Junts, en margt þarf að ganga upp fyrir Sánchez ætli hann sér að vinna sér inn stuðn­ings flokks­ins, líkt og fram kemur í umfjöllun The Guardian. „Við munum ekki gera Pedro Sánchez að for­sæt­is­ráð­herra í skiptum fyrir ekki neitt,“ sagði Míriam Nogueras en hún er einn af leið­togum Junts eftir kosn­ing­arnar. Puig­demont sagði flokk­inn ekki skulda neinum neitt nema kjós­endum.

Á kjör­dagPedro Sánchez ræðir við fjöl­miðla áður en hann heldur inn á kjör­stað.

Af þeim sjálfs­stæð­is­sinn­uðu stjórn­mála­flokkum Baska og Katalóna sem Sánchez þarf að reiða sig á rekur Junts hörð­ustu stefn­una fyrir sjálf­stæði. Þannig hefur aðal­rit­ari Junts, Jordi Turull, sagt að flokk­ur­inn krefj­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Kata­lóníu og sak­ar­upp­gjöf fyrir öll þau sem hafa verið ákærð eða sæta rann­sókn í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar sem fór fram árið 2017. Sú atkvæða­greiðsla var dæmd ólög­leg af hæsta­rétti Spánar og það var í kjöl­far hennar sem Puig­demont fór í sjálf­skip­aða útlegð í Belgíu.

Líkja samsteypustjórn Sánchez við skrímsli Frankensteins

Það er ekki hlaupið að því fyrir Sánchez að verða við þessum kröfum. Til að mynda stendur stjórn­ar­skrá Spánar í vegi fyrir því hann geti boðað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Kata­lóníu.

Takist Sánchez aftur á móti að tryggja sér stuðn­ing Junts, sem og ann­arra flokka sjálf­stæð­is­sinna, gæti hann tryggt sér meiri­hluta stuðn­ing innan spænska þings­ins. Önnur leið sem gæti verið Sánchez fær er að treysta á að Junts taki ekki afstöðu í þing­inu. Þá þyrfti Sánchez stuðn­ing 172 þing­manna. Fái hann stuðn­ing ann­arra sjálf­stæð­is­sinna í Kata­lóníu, Galisíu og Baska­landi er það raun­hæfur mögu­leiki.

Í kosn­inga­bar­áttu sinni baun­aði Lýð­flokk­ur­inn á Sánchez fyrir búta­saum­inn sem hann hefur þurft að stunda til að halda í meiri­hluta sinn. Líkti Lýð­flokk­ur­inn stjórn­inni við skrímsli Franken­steins og átaldi Sánchez fyrir að hafa klastrað saman sam­steypu­stjórn með rót­tækum aðskiln­að­ar­sinnum á vinstri vængnum. Ljóst er að við­bót Junts í hóp­inn mun ein­ungis auka á gagn­rýn­ina frá flokk­unum á hægri vængnum. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    If you can't beat them, then join them.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár