Linda Jónsdóttir er nýr stjórnarformaður Íslandsbanka

Auk Lindu koma þau Stefán Pét­urs­son, Haukur Örn Birg­is­son og Helga Hlín Hákon­ar­dóttir ný inn í stjórn. Frá­far­andi stjórn­ar­for­maður bað alla hlut­hafa afsök­unar á fund­inum vegna slakrar fram­kvæmdar við sölu á hlut í bank­anum.

Nýr stjórnarformaður
Nýr stjórn­ar­for­maður Linda Jóns­dóttir er nýr stjórn­ar­for­maður Íslands­banka. Hún er í dag fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá Marel. Mynd: Marel

Linda Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá Marel er nýkjör­inn stjórn­ar­for­maður Íslands­banka. Til­nefn­ing­ar­nefnd í sam­ráði við Banka­sýslu rík­is­ins lagði til fyrir hlut­hafa­fund bank­ans sem hald­inn var í dag að Linda tæki við for­mennsku af Finni Árnasyni sem gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu en hann var ekki meðal þeirra sem til­nefndir voru í stjórn bank­ans. Alls gáfu ell­efu kost á sér til setu í stjórn Íslands­banka en í stjórn­inni sitja sjö.

Auk Finns Árna­sonar viku úr stjórn þau Guðrún Þor­geirs­dóttir sem var vara­for­maður og Ari Dan­í­els­son. Þau gáfu ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu í stjórn­inni. Val­gerður Skúla­dóttir var hins vegar felld á fund­inum. 

Mætt var fyrir 79,25 pró­sent atkvæða á fund­inn sem er það mesta sem sést hefur á hlut­hafa­fundi Íslands­banka eftir að núver­andi eig­anda­fyr­ir­komu­lag kom til.

Líkt og áður segir er Linda fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá Marel en hún hefur áður starfað fyrir Eimskip, Buðrarás og Straum fjár­fest­inga­banka. Þá hefur hún setið í stjórn Við­skipta­ráðs og Fram­taks­sjóðs Íslands.

Helga Hlín inn í stjórn fyrir Gildi

Nið­ur­staða stjórn­ar­kjörs­ins er nokkurn veg­inn í sam­ræmi við til­lögur til­nefn­ing­ar­nefndar ef frá er talið kjör Helgu Hlínar en hún var ekki í hópi til­nefndra. Hún gaf kost á sér fyrir hönd Gildis líf­eyr­is­sjóðs sem er næst­stærsti hlut­hafi bank­ans. Helga Hlín er með­eig­andi og ráð­gjafi hjá ráð­gjafa­fyri­tæk­inu Stra­tegíu. Það vekur hins vegar athygli að með kjöri Helgu Hlínar var Val­gerður Skúla­dóttir, sem sat í stjórn bank­ans, felld úr stjórn, og það þrátt fyrir að hafa verið tilnend til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu af til­nefn­ing­ar­nefnd Íslands­banka. 

Til við­bótar koma þeir Haukur Örn Birg­is­son og Stefán Pét­urs­son nýir inn í stjórn bank­ans. Haukur Örn er eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Íslensku lög­fræði­stof­unnar. Stefán var til­nefndur af til­nefn­ing­ar­nefnd í stað Ara Dan­í­els­sonar. Stefán er fjár­mála­stjóri hjá EpiEndo.

Aðrir stjórn­ar­menn eru: Agnar Tómas Möller, Anna Þórð­ar­dóttir og Frosti Ólafsson.

Nýr stjórn­ar­maðurHelga Hlín Hákon­ar­dóttir kemur ný inn í stjórn Íslands­banka. Hún situr þar fyrir hönd næst­stærsta hlut­hafans, Gildis líf­eyr­is­sjóðs.

Fráfarandi stjórnarformaður baðst afsökunar

Áður en til stjórn­ar­kjörs kom var eitt annað mál á dag­skrá fund­ar­ins, umfjöllun um sátt Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands og við­brögð bank­ans við sátt­inni. Undir þeim lið fór frá­far­andi for­maður yfir sam­an­tekt og sjón­ar­mið bank­ans vegna sátt­ar­innar.

Finnur sagði það sorg­legt að verk­efnið, þ.e. sala bank­ans á hlut í sjálfum sér, hefði skyggt á þann góða árangur sem unnin hafði verið innan bank­ans. Hann bað alla hlut­hafa bank­ans afsök­unar fyrir slaka fram­kvæmd við söl­una á hlut í bank­anum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Hvað er rétt gert?

    ,,Við munum tryggja að hlutirnir séu gerðir eins og á að gera þá“ segir hinn nýi formaður.

    En enginn veit hvað hún á við. Það er reyndar staðreynd að almenningur sem á þennan banka að mestu í gegnum ríkissjóð og í gegnum lífeyrissjóðina þekkir ekki þessa konu.

    Fulltrúi hverra er hún í þessari bankastjórn? Mér finnst að hún sé i raun bara fulltrúi þeirra sömu afla og hafa alltaf haft öll tök á þessum banka. Bæði fyrir og eftir hrun. M.ö.o. algjörlega fjarstýrt val fjármálaráðherra.

    Það virðist einnig vera staðreynd nema að bent verði á annað að fólkið sem á að stýra bankanum séu allt for-ráðafólk úr mörgum helstu fyrirtækjum landsins.

    M.ö.o. fólk úr sama ranni og setti íslenskt samfélag á hliðina fyrir „hrun“ alveg ábyrgðarlaust.

    Ég reikna fastlega með því að sömu viðhorf verði um stjórnun bankans og áður, en með eitthvað örlítið öðrum aðferðum.

    Þótt almenningur í landinu eigi meira en helming í bankanum munu viðhorf almennings ekki komast að um stjórn bankans frekar en áður.

    Sárast af öllu er að gamli „Alþýðubankinn“ var á árum áður gerður að engu í mulningsvél nýfrjálshyggjunnar í bankanum. Eitt er þó mikilvægt að muna, að nýr formaður sagði að bankinn hafi brotið lög.

    Þá er það auðvitað alrangt, því það voru auðvitað stjórn-endur hans sem það gerðu og ættu að sæta ábyrgð gjörða sinna.

    Í stað þess skal enn eina ferðina varpa ábyrgðinni almenn-ing í landinu. Á launafólk sem eru hinir raunverulegu skattgreiðendur á Íslandi og þeir sem greiða vextina.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Sé þessi dama með flokksskírteini í stærstu skipulögðu glæpasamtöku Íslands, sjálfstæðisflokknum.
    Þá verður engin breyting á spillinguni hjá þessum skíta banka.
    0
  • Ætli þetta sé sæmilega heiðarlegur hópur?
    0
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Nei Hann hefur sama heiðarleika og aðrir. Vandinn er að það er verið að skifta út vanhæfum aðilum og fá aðra ... líklega jafn vanhæfa og leysa þá fyrrnefndu út með gjöfum. Kerfið ennþá handónýtt og engin umræða um að laga það né setja sjálvirkar refsiaðgerðir sem bíta þegar menn misnota kerfið ( og komast yfirleitt upp með það ). Þess í stað eru vinsældarveiðar á fullu með the usual suspects sem miðpunktinn. Engin breyting á Íslandsbanka.

      Það sem sannar HEIS eiginleika íslendinga og algert getuleysi rannsóknaraðila, framkvæmdaraðila og fjölmiðlanna er að enginn virðist taka eftir að leikreglurnar eru ennþá þær sömu... ábyrgðin ennþá engin og í raun sama kerfi og um aldarmótin sem sannaðist að var bara sýndarmennska þegar 2008 kom. Og enn eina ferðina... ef þið sjáið ekki aðkomu Deutsche Bank að 2008 hruninu þá sannið þið enn eina ferðina með þessum endalokum Íslandsbankamálsins að þið eruð fávitar. Rannsóknarskýrslan var fræðilegt mat aðila sem bókstafinn kunnu en höfðu hvorki getu, áhuga né þekkinguna sem þurfti til að sjá hvað í raun gerðist. Ef ekki fyrir DB væru föllnu bankarnir líklega enn á lífi í upprunarlegu myndinni... með gamla gengið við stýrið... í stað nýja gengisins.... sem er að sýna sitt sanna andlit enn og aftur.

      Og það er staðan á Íslandsbanka í dag... nýtt makeup en sama innrætið.

      Og Davidson Kempner voru sjóðstýrendur Burlington Loan Man. ... sem var í raun stofnað af Deutsche Bank og í eigu þeirra allan tímann. OG þetta liggur allt við hendina... það eina sem fólk þarf að gera er að kveikja á tölvunni og hætta að hlusta á "ekki hægt" yfirlýsingar fúskaranna á milljónalaununum. Því öll gögn má finna og sækja.. en kerfið bannar í raun að þeir sem eiga gera það.... fái að gera það. Enda ekki gott ef þið samlandar mínir uppgötvuðu hversu svakalega vanmetið svindlið og svíneríið er.

      Og enginn þriggja bankanna okkar þolir nána skoðun hæfra aðila... ekki frekar en Seðló.. sem var ein stærsta peningarþvottavél Evrópu um skamman tíma.. og sumur þvotturinn var ansi skítugur.

      Og hvernig væri Heimildin snéri sér að regluvörðunum.. en ekki bara langlokudæmum ? Því það eru jú þar sem keðjan er ekki til staðar.

      Þjóffélagið er eins og dópistinn.. þú getur ekki hjálpað honum... ef hann vill í raun ekki taka sig á.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár