IKEA á Íslandi fylgir fordæmi Svía og losar sig við Marabou

Súkkulaði sænska sæl­gæt­is­fram­leið­and­ans Marabou er brátt á þrotum í verslun IKEA á Íslandi. Í sumar var ákveðið að hætta sölu á súkkulað­inu sem er orðið að eins konar tákn­mynd í Svíþjóð fyrir snið­göngu á vörum sem tengj­ast við­skiptaum­svifum í Rúss­landi.

IKEA
IKEA Við Kauptún stendur eina IKEA verslun lands­ins. Þar fæst brátt ekk­ert Marabou súkkulaði lengur. Mynd: Flickr

IKEA á Íslandi er langt komið með að klára sínar birgðir af Marabou súkkulaði en ákvörðun var tekin um það fyrr á þessu ári af IKEA í Svíþjóð að sölu á Marabou súkkulaði skyldi hætt í versl­unum sænska hús­gagna­ris­ans. „Þau lögðu það til við alla mark­aði að fasa út birgð­irnar,“ segir Stefán Rúnar Dagsson, fram­kvæmda­stjóri IKEA á Íslandi, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Spurður að því hvort hann hafi ein­hverja skoðun á aðgerðum sem þessum seg­ist Stefán sýna þeim fullan skiln­ing. „Þetta er nátt­úr­lega ósann­gjarnt stríð og við eigum ekki að vera að hvetja til þess eða ýta undir með við­skiptum. Það er í raun­inni það eina sem ég hef að segja um það.“

Líkt og Heim­ildin hefur fjallað um þá er Marabou súkkulaði orðið að eins konar tákn­mynd í Svíþjóð fyrir snið­göngu á vörum sem tengdar eru við­skiptaum­svifum í Rúss­landi. Sífellt fleiri Svíar sneiða hjá súkkulað­inu jafn­vel þó að allt Marabou súkkulaði sé fram­leitt í Svíþjóð. Ástæðan er sú að umsvif móð­ur­fyr­ir­tækis Marabou, Mondelēz, eru mikil í Rúss­landi og Mondelēz er þar af leið­andi komið á svartan lista úkra­ínskra yfir­valda sem hvetja til snið­göngu fyr­ir­tæk­is­ins og vörum þess.

Slitu á öll tengsl við Rússland

Nýjar teg­undir af súkkulaði munu koma í stað Marabou súkkulað­is­ins í hillum IKEA en að sögn Stefáns Rúnars mun það taka þónokkurn tíma að fá inn nýjar teg­undir eða allt upp undir ár. „Sér­stak­lega ef að IKEA ætlar að láta fram­leiða eitt­hvað fyrir sig. Við erum með ákveðnar teg­undir af súkkulaði sem eru fram­leiddar fyrir IKEA ein­göngu. Þannig að ég hef ekk­ert heyrt að utan hvað þetta varðar annað en það að við kaupum ekki inn þessa súkkulaði­teg­und sem við vorum með þarna frá Marabou lengur,“ segir Stefán. 

Sölu­stopp á Marabou súkkulaði er ekki það eina sem inn­rás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér fyrir rekstur IKEA um víða ver­öld, líkt og Stefán bendir á. „Í upp­hafi, fljót­lega eftir að stríðið hófst, ákvað IKEA að loka öllum versl­unum í Rúss­landi. Sama var með fram­leiðslu á vörum, IKEA hætti allri fram­leiðslu á vörum í Rúss­landi. Vörur IKEA eru fram­leiddar um allan heim og oft á tíðum sama varan hjá mörgum fram­leið­endum, að hætta fram­leiðslu í Rúss­landi hafði þau áhrif að eitt­hvað varð um vöru­skort, en það er komið að mestu leyti í lag í dag.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár