Dæmi um að lóðarhafar hafi dregið uppbyggingu í áratugi

Óeðli­legar tafir hafa orðið á upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í ein­hverjum til­vikum sökum þess að lóð­ar­hafar hafa beðið í áraraðir með að hefja fram­kvæmdir. Þörf er á að sveit­ar­fé­lög fái heim­ildir til að setja tímara­mma varð­andi upp­bygg­ing­ar­heim­ildir.

Dæmi um að lóðarhafar hafi dregið uppbyggingu í áratugi
Upp­bygg­ing dregst Þörf er á að koma á sól­ar­lags­á­kvæðum varð­andi upp­bygg­ing­ar­heim­ildir. Mynd: Shutterstock

Dæmi eru um að heim­ildir vegna upp­bygg­ingar íbúð­ar­hús­næðis hafi verið ónýttar svo ára­tugum skiptir eftir að deiliskipu­lag hefur verið sam­þykkt. Sökum þess hafa orðið óeðli­legar tafir á upp­bygg­ingu hús­næðis enda hafa sveit­ar­fé­lög ekki úrræði í skipu­lags­lög­gjöf til að þrýsta á um að lóð­ar­hafar hefji fram­kvæmdir. Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra áformar nú breyt­ingar á skipu­lags­lögum til að koma í veg fyrir að upp­bygg­ing drag­ist úr hófi.

Invið­a­ráðu­neytið hefur lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda áform um breyt­ingu á skipu­lags­lögum sem byggir á til­lögum átaks­hóps um aðgerðir í hús­næð­is­málum, sem skip­aður var í tengslum við kjara­við­ræður á almennum vinnu­mark­aði á síð­asta ári. Þær til­lögur voru síðan útfærðar í ramma­samn­ingi ríkis og sveit­ar­fé­laga í júlí sama ár. Í ramma­samn­ingnum er kveðið á um að ráð­herra leggi fram frum­varp um að tíma­binda upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á grund­velli sam­þykkts deiliskipu­lags.

Í grein­ingu sem Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu létu fram­kvæma kom í ljós að eftir að deiliskipu­lag hefur verið sam­þykkt gerir skipu­lags­lög­gjöf ekki ráð fyrir tíma­mörkum á því hvenær lóð­ar­hafi þurfi að hefja upp­bygg­ingu, né hvenær henni skuli lokið. Slík sól­ar­lags­á­kvæði er hins vegar almennt að finna í lög­gjöf nágranna­ríkja.

Óheppi­legt þykir að lóð­ar­hafar sem aðhaf­ist ekk­ert í fram­kvæmdum árum saman geti byggt rétt sinn á því, jafn­vel í ára­tugi, að í skipu­lagi hafi verið gert ráð fyrir upp­bygg­ing­ar­heim­ildum á landi sem þeir hafi umráð yfir. Því er stefnt að því að skoða hvort rétt sé að setja almenna reglu um gild­is­tíma bygg­ing­ar­heim­ilda, sem og hvort rétt sé að setja sól­ar­lags­á­kvæði í skipu­lags­lög­gjöf sem til að mynda væri þess efnis að upp­bygg­ing­ar­heim­ildir falli úr gildi að ákveðnum tíma liðnum. Yrði þá horft bæði til sam­þykkts deiliskipu­lags en jafn­framt einnig mögu­lega til aðal­skipu­lags sveit­ar­fé­laga. Verði ekk­ert aðhafst má telja líkur á að áfram verði óeðli­legar tafir á upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis.

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Audunsson skrifaði
    Þess vegna á borgin að byggja sjálf!
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar 3 Framsóknarflokkar stjórna landi og þjóð, Mammon sér um sína. Ps. svíður alltaf þegar bókaþjóðin gleypir lygarnar umyrðalaust.
    0
  • GHA
    Guðmundur H Arngrímsson skrifaði
    Sá húsnæðisskortur sem við búum við er heimatilbúin og skipulega viðhaldið. Það hefur verið farið að flestum kröfum Samtaka Iðnaðarins og Samtaka Atvinnulífsins um einföldun á byggingareglugerð á undanförnum 8 árum. Þær áttu allar að draga úr byggingakostnaði og flýta framkvæmdum og auka þannig framleiðsluna. Að sama skapi hefur öllum kröfum þeirra um skattalega ívilnun verið mætt, þ.e. endurgreiðsla á virðisaukaskatti og 50 afslátt af skatti vegna leigutekna.

    Þrátt fyrir að álagning á húsbyggingamarkaði hér á landi sé margföld á við það sem þekkist í okkar heimshluta og nánast fullkomnar markaðsaðstæður séu fyrir hendi þá hefur skapast fordæmalaus húsnæðisskortur. Hann birtist til að mynda einmitt í þessari staðreynd að það er enginn hvati fyrir fjárfesta á húsnæðismarkaði að auka framboð og því sitja þeir oft á byggingaréttum út í hið óendanlega. Svo er hitt ekki síðri ástæða fyrir tregðu fjárfesta við að nýta byggingarétti sú staðreynd að verið er að braska með þessar lóðir og þær byggingaheimildir sem þeim fylgja. Dæmi er um að í viðskiptum með þær hafi verðið jafnvel sexfaldast. Með slíku braski er verið að auka kostnað og taka út mikinn hagnað sem svo seinna notað sem ástæða fyrir háu söluverði á íbúðum.

    Aðstæður í byggingageiranum hafa verið betri undanfarin áratug en oftast í sögunni. Hér eru mjög lág laun hjá verkafólki í byggingaiðnaði og jafnfram er algengt að verktakar hafi stóran hluta launa verkafólksins hreinlega af þeim í gegnum leigusamband sem þeir eiga við launþega sína. Hér eru líka gríðarlega öflug verktakafyrirtæki sem framleiða stærsta hluta íbúða þannig að stærðarhagkvæmni í byggingageiranum hefur margfaldast á síðustu 15-20 árum sem ætti að hafa skilað sér í ódýrari og meiri framleiðslu. Hér er fólksfjölgun og eftirspurn umfram það sem áður hefur þekkst. Við búum einnig við meira landrými en flest önnur lönd í Evrópu og því aðgengileg og byggingartsvæði allt um kring. Hér fádæma góður aðgangur að jarðvegi, sem vegur að einhverju leyti upp á móti þætti kostnaðarsams innflutnings á byggingarefnum. Á undanfarinni hálfri öld hefur húsnæði reglulega hækkað jafnt og þétt umfram almennt verðlag og því engin áhætta af fjárfestingu í uppbyggingu húsnæðis.

    Af hverju skapast þá þessi skortur?
    Það er einfaldlega vegna þess að einkaaðilar hafa tögl og haldir á þessum markaði. Hið opinbera er eiginlega áhorfandi með sín 4-5% af félagslega reknu húsnæði. Einkaaðilar geta mjög einfaldlega ráðið álagningu með því að viðhalda skorti því að það er enginn annar valkostur fyrir almenning en að gangast við þeim skilyrðum sem einka-aðilar á markaði setja.
    Flest öll stærstu greiningafyrirtæki í heiminum telja að hagnaður af fasteignaverkefnum eigi að liggja á bilinu 15-30%. Savills sem er eitt það stærsta í heimi skilaði skýrslu til borgarstjórna London um efnið og sagði að til að tryggja ásókn fjárfesta inn á húsbyggingamarkað þar þá þyrfti hagnaðurinn að liggja á milli 22-28%. https://www.london.gov.uk/.../app17_savills_residential...
    Hér á landi er álagning yfir 100% skv skýrslu frá hagfræðingi BHM https://www.visir.is/g/20232409002d.... Margar vísbendingar eru um að álagning sé hinsvegar í kringum 200%. Skv reiknivél hagstofunnar um byggingakostnað og reiknivél um gatnagerðagerðagjald (líkt byggt á byggingakostnaði) þá er byggingakostnaður við hvern fermeter í "vísitöluíbúð" í kringum 300.000 kr. Brunatryggingareiknivél VÍS sem tryggir miðað við byggingakostnað metur Byggingakostnað í kringum 400.000 kr (en telur hann geta verið bæði lægri eða hærri og er mismunandi á milli svæða). Kostnaður við fermeter í fjölbýlishúsi var metin 260.000 kr í skýrslu í skýrslu Fasteignaskrár um Brunabótamat árið 2018, uppreiknup er upphæðin 339.000 kr. Söluverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu er hinsvegar í kringum 900.000 - 1.000.000 kr þ.e. allt að þrisvar sinnum hærra en byggingakostnaður.

    Skorturinn er þess vegna skipulagður, og honum er viðhaldið. Það sem verra er að stjórnvöld styðja þessa framvindu og hafa byggt undir hana og slegið þannig skjaldborg um fjármagnið.
    Það er ekkert í kortunum um að það fari að breytast. Ef lífeyrissjóðirnir eiga að koma að uppbyggingu á húsnæði þarf það að vera á allt öðrum forsendum en sem ríkja núna og hafa ríkt undanfarna tvo áratugi.
    8
  • ÞS
    Þór Skjaldberg skrifaði
    XB fer ekki að stoppa braskara í íbúðarbyggingum, það vita allir. Það hefði verið hægt að útríma svona lóðar raski fyrir mörgum árum.
    4
  • Kári Jónsson skrifaði
    Bæjarfélögin verða að geta tekið til baka lóðir, þegar lóðaeigendur þverskallast við að byggja og nota lóðirnar í braski 1-ár eru hæfileg tímamörk, þegar bæjarfélögin hafa unnið sína vinnu = aðalskipulag/deiliskipulag, kannski verður þetta samþykkt þegar nýr borgarstjóri tekur við, enda skiptir öllu máli fyrir xB að byggingar áform þeirra gangi eftir, en að sjálfsögðu mest fyrir leigjendur og húsnæðislausa.
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár