Gagnrýnir skamman umsagnartíma í samráðsgátt um hásumar

Fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Amnesty segir að sam­ráðs­gátt stjórn­valda þjóni ekki sínum til­gangi þegar umsagn­ar­tími er jafn skammur og raun ber vitni í júlí.

Framkvæmdastjóri
Fram­kvæmda­stjóri Anna Lúð­víks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Amnesty International, setti fram gagn­rýni sína á skamman umsagn­ar­tíma í umsögn við drög að breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga.

„Ef stjórn­völd vilja tryggja það að mark­mið um sam­ráðs­gátt­ina sé upp­fyllt sem er það að fá hags­muna­að­ila og almenn­ing til að taka þátt í stefnu­mótun og reglu­setn­ingu og heyra álit almenn­ings, og ekki bara almenn­ings heldur einmitt líka sér­fræð­ing­anna sem eru að vinna að mál­unum á hverjum degi, þá myndi maður halda að þau vildu fá fleiri umsagnir og þá þyrftu þau að setja þetta inn á öðrum tíma.“ Þetta segir Anna Lúð­víks­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Amnesty International, í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Anna er gagn­rýnin á það að mál sem eru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda um miðjan júlí, á þeim tíma þegar margir lands­menn eru í sum­ar­fríi, fái ekki lengri tíma til umsagnar. Hún kom þeim athuga­semdum á fram­færi inni í sam­ráðs­gátt­inni í gær þegar hún skil­aði inn umsögn Íslands­deild­ar­innar við drög að breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga nr. 540/2017. Þá rann umsagn­ar­frestur út en drögin höfðu verið birt …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Sigurðsson skrifaði
    Sýndar samráð er verra en ekkert samráð :( Tek undir þessa gagnrýni 100%
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár