Zuckerberg vill kæfa Twitter með vinsemdina að vopni

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Threads hefur á örskots­stund náð sér í tugi millj­óna not­enda en mið­ill­inn er sam­tvinn­aður Instagram. Óánægja í garð Elon Musk hefur gert það að verkum að Twitter- not­endur leita á önnur mið til að skipt­ast á skoð­unum. Óvíst er hvort Threads muni standa evr­ópskum not­endum til boða vegna per­sónu­vernd­ar­lög­gjafar en miðl­inum er lýst sem „martröð“ í þeim efnum.

Zuckerberg vill kæfa Twitter með vinsemdina að vopni
Nýr sam­fé­lags­mið­ill Mark Zuckerberg og Meta vilja hnýta snöru um Twitter með nýstofn­aða sam­fé­lags­miðl­inum Threads. Mynd: AFP

Í síð­ustu viku bætti tækniris­inn Meta enn einum sam­fé­lags­miðl­inum við vöru­línu sína, Threads, mið­ill sem er sam­bæri­legur við Twitter og gefur not­endum sínum færi á að senda frá sér færslur sem geta ekki verið lengri 500 stafa­bil. Nýi sam­fé­lags­mið­ill­inn er sam­tvinn­aður við annað gíf­ur­lega vin­sælt for­rit í eigu Meta, Instagram, en krúnu­djá­snið í vöru­fram­boði Meta er vita­skuld Facebook. 

Íslend­ingum, og raunar Evr­ópu­búum öllum, stendur ekki til boða að skrá sig á sam­fé­lags­mið­il­inn því hann stenst ekki kröfur sem evr­ópska per­sónu­vernd­ar­lög­gjöfin, GDPR, setur smá­forritum. Engu að síður fer mið­ill­inn vel af stað ef litið er til talna um nýskráða not­endur, þeir voru yfir 70 millj­ónir á fyrstu tveimur sól­ar­hring­unum eftir að mið­ill­inn fór í loftið. Þar skipti höf­uð­máli teng­ing hins nýja mið­ils við Instagram en um það bil tveir millj­arðar nota sam­fé­lags­mið­il­inn reglu­lega.

Threads langvinsælasta Twitter-hliðstæðan

Threads varð því á örskots­stund lang­vin­sæl­asti sam­fé­lags­mið­ill­inn af þeim sem róa á sömu mið og …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár