Samskipti sakborninga og verjenda ekki verið hleruð síðastliðin fimm ár

Hleranir á sam­skiptum sak­born­inga og verj­enda komu nokkuð við sögu í málum sem fóru fyrir dóm­stóla í kjöl­far hruns­ins. Samkvæmt svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá þing­manni Pírata hafa slíkar hler­anir ekki átt sér stað á síð­ustu árum.

Fyrirspurn
Fyr­ir­spurn Langt er um liðið síðan hler­anir lög­reglu á sam­skiptum sak­born­inga og verj­enda áttu sér síð­ast stað, sam­kvæmt svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Arndísi Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur. Svarinu var skilað í ráð­herra­tíð Jóns Gunn­ars­sonar en Guðrún Haf­steins­dóttir gegnir í dag emb­ætti ráð­herra.

Lög­reglan hefur ekki hlustað á sam­töl eða önnur sam­skipti á milli sak­born­inga og verj­enda þeirra á síð­ast­liðnum fimm árum. Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Arndísar Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur, þing­konu Pírata, um hlustun sam­skipta á milli sak­born­inga og verj­enda þeirra. Fram kemur í svari ráð­herra að óskað hafi verið eftir upp­lýs­ingum frá öllum lög­reglu­emb­ættum lands­ins sem og frá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

Fyr­ir­spurn Arndísar Önnu var í þremur liðum, sá fyrsti sneri að fjölda þeirra skipta sem lög­regla hefur hlustað á sam­töl eða önnur sam­skipti milli sak­born­inga og verj­enda þeirra á síð­ast­liðnum fimm árum. Í öðrum lið spurði hún að því hversu fljótt upp­tökum hafi verið eytt og í þeim þriðja hvort hlut­að­eig­andi hafi verið til­kynnt um slíkar aðgerðir.

„Við vinnslu fyr­ir­spurn­ar­innar var óskað eftir upp­lýs­ingum frá öllum lög­reglu­emb­ættum lands­ins og emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu og hér­aðs­sak­sókn­ara hefur ekki komið til þess á síð­ast­liðnum fimm árum …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér skýtur skelkur í bringu. Að mínu áliti eru hleranir samtala milli sakbornings og verjanda brot á einföldum mannréttindum og meiga aldrei eiga sér stað. Ég tel að ríki sem misvirðir þetta fyrirgeri réttinum að kallast réttarríki.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Je dúdda mia,,, lögreglan hefur ekki neinar skráðar ólögmætar hleranir ? Kannski af því þær eru ólöglegar ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár