Leyndarmálið um Lindarhvol

Skýrsla setts rík­is­end­ur­skoð­anda um Lind­ar­hvol hefur verið birt eftir að hafa legið undir leynd­ar­hjúp síðan árið 2018. Félagið Lind­ar­hvoll var stofnað í apríl 2016 til að ann­ast umsýslu og sölu eigna sem ríkið fékk afhent vegna sam­komu­lags við kröfu­hafa gömlu bank­anna. Eign­irnar voru mörg hund­ruð millj­arða króna virði.

Leyndarmálið um Lindarhvol
Leyni­skýrsla Sigurður Þórð­ar­son, settur rík­is­end­ur­skoð­anda sem gerði skýrsl­una um Lind­ar­hvol, hefur lengi beðið eftir að hún verði gerð opin­ber.

Grein­ar­gerð Sigurðar Þórð­ars­sonar, setts rík­is­end­ur­skoð­anda, um Lind­ar­hvol er komin fram. Henni hefur verið haldið frá almenn­ingi, þrátt fyrir ítrekuð lög­fræði­leg álit um að birta eigi skýrsl­una. Skýrslan var birt rétt um klukkan tvö í dag og hér fyrir neðan birt­ast lif­andi upp­færslur með fréttum úr skýrsl­unni.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata og full­trúi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, var sú sem fyrst birti skýrsl­una. Það gerði hún á vef flokks­ins. Heim­ildin nálg­að­ist ein­tak af skýrsl­unni þar. Hægt er að nálg­ast ein­tak af skýrsl­unni hér.

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það liggur við að (greindar) vísitala þeirra sem hilma yfir í þessu máli sé tiltölulega lág.
    2
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Allir mega stiga sinn dans í kringum gullkálfinn sinn eins og þá lystir mín vegna annarser mér alveg slétt sama og er alveg hlut laus um þessi mál
    -3
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALVEG HLUTLAUS UM SVONA MÁL SEM MER KEMUR HELDUR EKKERT VIÐ
    -3
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hverjir eru tilbúnir til að halda áfram vörnum fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Flokkurinn sem segir að honum einum sé treystandi fyrir ríkisfjármálum? Þvílíkir melir þessi fjárans ríkisstjórn. Er hægt að fara í mál við hana?
    8
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég spái því að það verði gert að aðalatriði hjá sumum( þið vitið örugglega hverja ég tala um) að þetta sé leki og trúnaðarbrot og allt það bla bla. Sömu aðilar liggja örugglega á bæn núna og biðja þess að það fari að gjósa.
    9
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Protokól og trúnaður eru lýsingarorð kurteisa nauðgarans yfir yfirhilmingu.

    Spurningin er ekki hvort keisarinn er berassaður heldur hvort þjóðin vilji að henni sé stjórnað og beri skilyrðislaust traust.... til kurteisra nauðgara ?
    5
    • Ingibjörg Ottesen skrifaði
      Hvað skyldi forseti Alþingis fá í vasann fyrir trúnaðinn við Bjarna Benediktsson
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lindarhvoll

Ríkisendurskoðandi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“
FréttirLindarhvoll

Rík­is­end­ur­skoð­andi: „Sigurður hafði ekki umboð til að hafa afskipti af málum“

Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi segir dreif­ingu grein­ar­gerðar Sigurðar Þórð­ar­sonar, setts rík­is­end­ur­koð­anda með Lind­ar­hvoli, vera lög­brot. Grein­ar­gerðin hafi ekk­ert erindi átt út úr húsi Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þá hafi Sigurður alls ekki haft fullar heim­ildir rík­is­end­ur­skoð­anda í störfum sínum, ólíkt því sem haldið hafi verið fram.
Sigurður Þórðarson: „Vegið alvarlega að starfsheiðri mínum“
FréttirLindarhvoll

Sigurður Þórð­ar­son: „Vegið alvar­lega að starfs­heiðri mínum“

Settur rík­is­end­ur­skoð­andi vegna Lind­ar­hvols, Sigurður Þórð­ar­son, gerði margar og harð­orðar athuga­semdir við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í bréfi sem hann sendi Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis í febr­úar 2021. Sagði hann meðal ann­ars að Rík­is­end­ur­skoðun rang­túlk­aði bæði gögn um virð­is­aukn­ingu stöð­ug­leika­eigna, sem og skrif hans sjálfs um stjórn­skipu­lag félags­ins.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár