Ráðstöfunartekjur ríkustu tíu prósent landsmanna jukust um 157 milljarða á tveimur árum

Á tveimur árum juk­ust ráð­stöf­un­ar­tekjur Íslend­inga um 425 millj­arða króna. Rúmlega helm­ingur þeirrar aukn­ingar var hjá þeim fimmt­ungi þjóð­ar­innar sem hefur hæstar tekjur.

Ráðstöfunartekjur ríkustu tíu prósent landsmanna jukust um 157 milljarða á tveimur árum
Aðgerðir Stjórn­völd gripu til marg­hátt­aðra efna­hags­legra aðgerða til að takast á við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þær örv­uðu eign­ar­mark­aði, sem skil­aði sér vel til efstu tekju­hópa sam­fé­lags­ins.

Frá lokum árs 2019, skömmu áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og rík­is­stjórnin greip til marg­hátt­aðra aðgerða til að örva atvinnu­lífið, og út síð­asta ár juk­ust ráð­stöf­un­ar­tekjur allra Íslend­inga sam­tals um 425 millj­arða króna, eða um 31 pró­sent. Af þeirri tölu lentu 157 millj­arðar króna hjá efstu tekju­tí­und þjóð­ar­innar, þeirra tíu pró­sent heim­ila sem þén­uðu mest á tíma­bil­inu. Það þýðir að sá hópur, sem telur 24.243 fjöl­skyldur, tók til sín 37 pró­sent af allri aukn­ingu sem varð á ráð­stöf­un­ar­tekjum á umræddu tíma­bili. 

Ef þau 20 pró­sent sem höfðu hæstu tekj­urnar eru skoðuð kemur í ljós að sá hópur tók til sín alls 52,3 pró­sent af allri aukn­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum sem átti sér stað frá lokum árs 2019 og fram til síð­ustu ára­móta. Það þýðir að 80 pró­sent þjóð­ar­innar …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Svona er Ísland í dag. Bjadddni vinnur vel fyrir sitt fólk😈
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár