Efstu tíu prósentin juku auð sinn um 739 milljarða króna í fyrra

Eigið fé íslenskra heim­ila heldur áfram að hækka og er nú orðið 7.748 millj­arðar króna. Tíu pró­sent fjöl­skyldna í land­inu tekur nú að jafn­aði til sín um helm­ing alls nýs auðs sem verður til í land­inu á ári. Sá hópur átti eigið fé upp á 3.983 millj­arð króna í lok síð­asta árs.

Efstu tíu prósentin juku auð sinn um 739 milljarða króna í fyrra
Eigið fé íslenskra heim­ila hefur tvö­fald­ast í krónum talið síðan að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum. Af þeim nýja auð sem orðið hefur til, 3.646 millj­örðum króna, hafa 1.727 millj­arðar króna, eða rúm­lega 47 pró­sent, lent hjá efstu tekju­tí­und­inni. Mynd: Eyþór Árnason

Eigið fé er sá auður sem stendur eftir þegar búið er að draga skuldir frá eignum. Íslensk heim­ili hafa séð þennan auð rísa hratt á síð­ustu árum, sam­hliða því að eigna­bólur, sér­stak­lega á fast­eigna- og hluta­bréfa­mark­aði, hafa verið blásnar upp. Frá árinu 2017 og til loka síð­asta árs nán­ast tvö­fald­að­ist eigið fé ein­stak­linga á Íslandi. Upphæðin fór úr 4.102 millj­örðum króna í 7.748 millj­arða króna. Þegar búið er að leið­rétta fyrir verð­bólgu er raunaukn­ingin á eigin fénu á þessu fimm ára tíma­bili 2.569 millj­arðar króna.

Á síð­asta ári jókst eigið féð í krónum talið meira en nokkru sinni áður. Alls bættu íslensk heim­ili 1.624 nýjum millj­örðum króna við auð sinn á árinu 2022. Þar af fóru 739 millj­arðar króna til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur, eða 46 pró­sent alls þess auðs sem varð til, og rataði til ein­stak­linga, í fyrra. Sá hópur átti alls 3.982 millj­arða …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár