Erlent starfsfólk drífur áfram fjölgun á vinnumarkaði

Rúmlega 75 pró­sent af fjölgun starf­andi ein­stak­linga á vinnu­mark­aði á milli ára er til­komin vegna fjölg­unar erlends starfs­fólks. Kröftug við­spyrna ferða­þjón­ust­unnar hefur þar mikið að segja.

Erlent starfsfólk drífur áfram fjölgun á vinnumarkaði
Ferða­þjón­usta Fjölgun starfs­fólks í ferða­þjón­ustu stendur undir stórum hluta þeirrar fjölg­unar sem orðið hefur á starf­andi fólki á íslenskum vinnu­mark­aði á síð­asta ári. Mynd: Heiða Helgadóttir

Starf­andi ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði fjölg­aði um 10.200 á milli ára. Rúmlega þrír af hverjum fjórum í þeim hópi eru inn­flytj­endur. Fjölgun starf­andi inn­flytj­enda nam 7.900 á milli ára. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Samkvæmt skrám voru alls 219.300 ein­stak­lingar á íslenskum vinnu­mark­aði í maí síð­ast­liðnum, sam­an­borið við rúm­lega 209 þús­und í sama mán­uði í fyrra. Af þeim voru tæp­lega 168.900 með íslenskan bak­grunn en 50.400 inn­flytj­endur. Fjöldi vinn­andi fólks nær að jafn­aði hámarki í júlí og 

Kröftug við­reisn ferða­þjón­ust­unnar hefur mikil áhrif á þessa fjölgun. Gert er ráð fyrir að í ár muni um eða yfir tvær millj­ónir erlendra ferða­manna sækja landið heim, sam­kvæmt spám grein­ing­ar­að­ila. Allt útlit er fyrir að spárnar muni stand­ast ef marka má orð Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, sem var í við­tali í kvöld­fréttum RÚV á þriðju­dag. Gerði hann ráð fyrir að fjöld­inn næmi um 2,1 til 2,2 …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár