Brottrekstur þriggja stjórnenda gæti kostað Íslandsbanka um 140 milljónir

Íslands­banki greiddi íslenska rík­inu næstum 1,2 millj­arða króna í sekt vegna lög­brota sem framin voru innan bank­ans í fyrra. Starfs­lok banka­stjóra, fram­kvæmda­stjóra og for­stöðu­manns, sem eru með sex til tólf mán­aða upp­sagn­ar­fresti, gætu kostað að minnsta kosti 138,3 millj­ónir króna.

Brottrekstur þriggja stjórnenda gæti kostað Íslandsbanka um 140 milljónir
Sagt upp Ásmundur Tryggva­son, Birna Ein­ars­dóttir og Atli Rafn Björns­son hafa misst störf sín í Íslands­banka á síð­ustu dögum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þrír stjórn­endur hjá Íslands­banka sem hafa verið reknir úr störfum sínum á síð­ustu dögum eru annað hvort með sex eða tólf mán­aða upp­sagn­ar­fresti. Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um launa­kjör þeirra mun Íslands­banki þurfa að greiða hátt í 140 millj­ónir króna vegna starfs­loka þeirra fái allir þrír greitt út upp­sagn­ar­frest sinn. Íslands­banki hefur ekki viljað birta starfs­loka­samn­inga stjórn­end­anna en fjár­laga­nefnd Alþingis hefur kallað eftir samn­ingnum sem gerður var við banka­stjóra bank­ans, og ætlar sér að birta hann í heild.

Ástæða þess að stjórn­end­urnir voru reknir er opin­berun sáttar sem Íslands­banki gerði við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands um að greiða næstum 1,2 millj­arð króna í sekt. Með því ját­aði bank­inn að stjórn­endur og starfs­menn hans hefðu framið marg­háttuð lög­brot þegar þeir komu að sölu­ferli á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka í mars í fyrra. Salan fór fram í lok­uðu útboði og átti ein­ungis að vera til fag­fjár­festa. Á meðal þess sem …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Hjartarson skrifaði
    Hélt að það mætti reka fólk án uppsagnarfrests hafi þeir brotið af sér. Hvernig eru þessir ráðningarsamningar eiginldga
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár