Segist hafa fengið afdráttarlausa heimild til að kaupa í bankanum

Stjórn­ar­maður í Íslands­banka, sem er til umfjöll­unar í nýbirtri skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins um lög­brot bank­ans, segir að upp­lýs­ingar um sam­skipti hans við reglu­vörð hafi verið í frum­drögum skýrsl­unnar. Þau sé hins vegar ekki að finna í loka­út­gáfu sátt­ar­innar.

Segist hafa fengið afdráttarlausa heimild til að kaupa í bankanum
Stjórn­ar­maður Ari Dan­í­els­son sett­ist í stjórn Íslands­banka stuttu áður en hið lok­aða útboð fór fram. Íslands­banki hefur sam­þykkt að greiða næstum 1,2 millj­arða króna í sekt vegna lög­brota sem framin voru innan bank­ans í tengslum við útboðið. Mynd: Íslandsbanki

Ari Dan­í­els­son, stjórn­ar­maður í Íslands­banka, segir að það sé efn­is­lega rangt að engin gögn séu til staðar um heim­ild sem reglu­vörður bank­ans hafi veitt honum til að taka þátt í útboði þar sem hlutur rík­is­ins í bank­anum var seldur í mars í fyrra. Í tölvu­pósti til Heim­ild­ar­innar segir Ari að hann vilji árétta að hann fékk „skýra og afdrátt­ar­lausa heim­ild reglu­varðar bank­ans fyrir þessum við­skiptum áður en þau fóru fram og við fram­kvæmd þeirra fylgdi ég leið­bein­ingum reglu­varðar í einu og öllu.“

Líkt og Heim­ildin greindi frá fyrr í dag var fjallað um við­skipti félags í eigu Ara í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins um sátt vegna lög­brota sem Íslands­banki framdi við sölu­með­ferð­ina á sjálfum sér, sem birt var í morgun. Í skýrsl­unni sagði Íslands­banki það rétt að „engin skrif­leg gögn séu til um beiðni hans um und­an­þágu frá banni eða jákvætt svar reglu­varðar þess efnis. En hvort tveggja hafi verið gert munn­lega og í vitna við­ur­vist og stað­fest skrif­lega af reglu­verði, í tölvu­póst­sam­skiptum að morgni næsta dags.“

Ari hefur sent Heim­ild­inni afrit af þeim tölvu­póst­sam­skiptum þar sem hann vís­aði í gefna heim­ild og óskaði eftir stað­fest­ingu þáver­andi reglu­varðar á næstu skrefum. Í tölvu­póst­inum leggur hann áherslu á mik­il­vægi þess að allt fari fram sam­kvæmt reglum bank­ans. „Hún svarar mér afdrátt­ar­laust að svo sé og stað­festir að við­skiptin séu gerð með hennar sam­þykki.“ Í nið­ur­lagi tölvu­pósts sem þáver­andi reglu­vörður Íslands­banka sendi Ara 23. mars í fyrra segir: „Allt í ordn­ung og sam­kvæmt bók­inni :)“

Ari segir að í frum­drögum að sátt Íslands­banka og Fjár­mála­eft­ir­lits, sem barst um ára­mótin, hafi komið fram upp­lýs­ingar um þessi sam­skipti en að þau sé ekki að finna í loka­út­gáfu sátt­ar­innar.

Fékk undanþágu munnlega á fræðslufundi

Í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem var birt í morgun, segir að Ari hafi fengið und­an­þág­una munn­lega á fræðslu­fundi sem hald­inn var fyrir nýja stjórn­ar­menn, eftir að yfir­lög­fræð­ingur Íslands­banka kom inn á fund­inn og til­kynnti um að útboðið væri hafið. Und­an­þágan var hins vegar ekki skráð fyrr en tveimur dögum síðar, eftir að útboðið var um garð gengið. 

Í skýrsl­unni segir orð­rétt: „Þegar útboðið hófst kl. 16:11 hafi staðið yfir fræðsla reglu­varðar fyrir nýja stjórn­ar­menn. Á fræðslu­fund­inum voru reglu­vörður, stjórn­ar­for­maður, umræddur stjórn­ar­maður og vara­maður í stjórn. Yfir­lög­fræð­ingur máls­að­ila kom inn á fræðslu­fund­inn til að upp­lýsa um að útboðið væri hafið. Varpaði umræddur stjórn­ar­maður m.a. fram þeirri spurn­ingu hvort hann mætti sem stjórn­ar­maður taka þátt í útboð­inu þó svo að lokað tíma­bil stæði yfir hjá máls­að­ila.“

Reglu­vörður hafi metið það sem svo að þar sem engar inn­herj­a­upp­lýs­ingar hefðu legið fyrir á þessum tíma væri hægt að beita und­an­þágu­á­kvæði 5. kafla regln­anna enda slíkt ekki í ósam­ræmi við lög og reglur. „Reglu­gerð ESB nr. 596/2014 um mark­aðs­svik (MAR) kveður ein­ungis á um að við­skipti stjórn­enda með bréf í útgef­and­anum séu óheimil í 30 daga fyrir birt­ingu upp­gjörs, sbr. 11. tölul. 19. gr. reglu­gerð­ar­innar. Með vísan til þessa fékk stjórn­ar­mað­ur­inn skýrt og afdrátt­ar­laust svar reglu­varðar þess efnis að honum væri heim­ilt að taka þátt í útboð­inu og að frek­ari aðgerða væri ekki þörf.“

Í loka­skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að því hafi ekki borist gögn sem stað­festa að send hafi verið skrif­leg beiðni um und­an­þágu frá regl­unum, þrátt fyrir beiðni þar um. „Ekki verður litið á umrætt sam­tal sem veitta und­an­þágu, enda gera reglur máls­að­ila ráð fyrir að beiðnir um und­an­þágu ber­ist skrif­lega. [...] For­sendur til að taka ákvörðun um hvort starfs­mönnum væri heim­ilt að taka þátt í útboð­inu á grund­velli reglna máls­að­ila um ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum voru ekki til staðar vegna skorts á grein­ingu hags­muna­á­rekstra.“

Íslands­banki við­ur­kenndi í andsvörum sínum til eft­ir­lits­ins að það hefði verið í betra sam­ræmi við þær form­kröfur sem gerðar eru í áður­nefndum reglum að skrá atburða­rás­ina skrif­lega.

Ari er fyrr­ver­andi starfs­maður Glitnis banka og og fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Reviva Capital SA. Ari situr einnig í áhættu- og end­ur­skoð­un­ar­nefnd Íslands­banka. Félag í eigu Ara, sem skráð er í Lúx­em­borg, keypti fyrir tæpar 55 millj­ónir króna í útboð­inu, en hann hafði komið inn í stjórn Íslands­banka nokkrum dögum áður en útboðið fór fram.

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Nei Ari Daníelsson þú fékkst EKKI afdráttarlaust svar um að þú gætir keypt hlutabréf í Íslandsbanka, þú fékkst munnlegt svar sem er ekki samkvæmt lögum um fjármála-fyrirtæki, þú áttir að senda skriflega fyrirspurn og fá hana staðfesta af regluverði, það var ekki gert. Regluvörðurinn sagði af sér fyrir tæplega ári síðan, note bene vegna vanhæfni í störfum sínum. Það á að fara að lögum það gerðir þú ekki og í öllum bænum segðu af þér.
    8
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Ari lattu ekki gera þig ad fifli fyrir svona upphæð.
    Segðu þig ur stjorninni skilaðu hagnaðnum vertu öðrum
    til fyrirmyndar.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár