Verð ég að hætta að labba?

Guðbjörg Bjarna­dóttir hafði reykt í ára­tugi þegar hún ákvað að venda sínu kvæði í kross og fór hún að fitna í kjöl­farið. Hún fór að ganga með göngu­hópi og smátt og smátt fékk hún meira þol og fór í lengri göngur. Hún greind­ist síðar með krabba­mein og segir að það fyrsta sem hún hafi spurt lækn­inn um hafi verið hvort hún þyrfti að hætta að ganga. Hún fór í létt­ari göngur meðan á með­ferð­inni stóð og byrj­aði svo aftur í göngu­hópnum; byrj­aði smátt og er nú farin að fara í lengri göngur þótt þolið sé ekki orðið eins og það var.

Verð ég að hætta að labba?
Líðanin breytt­ist Guðbjörg segir að hún hafi fengið trú á sjálfa sig þegar hún fór að ganga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðbjörg Bjarna­dóttir byrj­aði að ganga með göngu­klúbbnum Veseni og ver­gangi árið 2017. „Ég byrj­aði að reykja 17 ára gömul og var í raun­inni stór­reyk­inga­mann­eskja. Ég hætti svo að reykja árið 2013 og svo fór ég að fitna smátt og smátt og ætl­aði að ná því af mér og fór að ganga. Ég rakst svo á aug­lýs­ingu frá Veseni og ver­gangi á Facebook og skráði mig í byrj­enda­hóp. Þetta var dálítið erfitt; maður þurfti að reyna dálítið á sig en mér fannst þetta strax vera skemmti­legt. Ég fór svo önn­ina á eftir í þyngri hóp á vegum Vesens og ver­gangs og þá fórum við í hrað­ari göngur og svo fór ég í auka­göngur þess á milli á eigin vegum.“

Það var svo í hitti­fyra sem Guðbjörg greind­ist með fjórða stigs eitilfrumu­krabba­mein sem hafði dreift sér. „Það fyrsta sem ég spurði lækn­inn var: „Verð ég að hætta að labba?“ Það var …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár