Hreinn Loftsson aðstoðar Guðrúnu í dómsmálaráðuneytinu

Hreinn Loftsson, sem hætti óvænt sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra eftir ein­ungis um hálfan mánuð í starfi í des­em­ber 2021, hefur nú verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Guðrúnar Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

Hreinn Loftsson aðstoðar Guðrúnu í dómsmálaráðuneytinu

Hreinn Loftsson hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Guðrúnar Haf­steins­dóttur, sem tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra á mánu­dag­inn. Frá þessu segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Hreinn er ekki ókunn­ugur því að vera dóms­mála­ráð­herra til aðstoðar. Hann var aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur í emb­ætt­inu á árunum 2019-2021 og tók einnig við starfi aðstoð­ar­manns Jóns Gunn­ars­sonar þegar Jón tók við dóms­mál­unum í upp­hafi kjör­tíma­bils. 

Samstarf Hreins og Jóns varði hins vegar aðeins í tvær vikur, en dag­inn eftir að Hreinn tók við aðstoð­ar­manns­starf­inu var til­kynnt að hinn aðstoð­ar­maður Jóns yrði Brynjar Níelsson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Jón og GuðrúnFrá lykla­skiptum í dóms­mála­ráðu­neyt­inu á mánu­dag­inn.

Hreinn tjáði sig um brott­hvarf sitt frá Jóni á sínum tíma og sagð­ist hrein­lega hafa verið of fljótur að segja já við því að taka að sér starfið. 

„Þegar ég tók við starfi sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, fyrir rétt rúmum tveimur árum lét ég þau orð falla að ég liti á það sem mik­inn heiður og fag­lega áskorun að taka að mér þetta verk­efni. Árin hafa svo sann­ar­lega verið við­burða­rík. Málefni ráðu­neyt­is­ins eru fjöl­mörg og spenn­andi. Ég tók því boði Jóns Gunn­ars­sonar þegar hann bauð mér að halda áfram störfum við ráð­herra­skiptin í byrjun mán­að­ar­ins. Fljót­lega komst ég þó að raun um að ég hafði verið of fljótur á mér og hef nú afráðið að láta af störfum,“ sagði Hreinn í Facebook-færslu við það til­efni.

Hreinn lauk laga­­­námi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðl­að­ist rétt­indi til mál­­­flutn­ings fyrir Hæsta­rétti árið 1993. Hann á að baki fjöl­breyttan feril í lög­­­­­mennsku, atvinn­u­lífi, stjórn­­­­­sýslu og sem aðstoð­­­ar­­­maður ráð­herra í nokkrum ráðu­­­neytum frá árinu 1985 til 1992.

Hann var meðal ann­­ars aðstoð­­ar­­maður Dav­­íðs Odds­­sonar þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra og var for­­maður fram­­kvæmda­­nefndar um einka­væð­ingu um nokk­­urt skeið í kringum síð­­­ustu alda­­mót. Hreinn gegndi einnig stjórn­­­ar­­for­­mennsku í fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lag­inu Baugi um tíma og sat líka sem óbreyttur stjórn­­­ar­­maður þar, en það fór í þrot eftir banka­hrun­ið.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár