Halla Signý Kristjánsdóttir: „Jón þarf ekki að yfirfæra sínar skoðanir yfir á Framsóknarmenn“

Vara­þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Halla Signý Krist­jáns­dóttir, segir nauð­syn­legt að búa til kerfi sem sé skil­virkt fyrir þá sem sæki um vernd á hér á landi. Að því vinni rík­is­stjórnin í breið­fylk­ingu og ef Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, geti ekki gengið í takt við þá vinnu þurfi hann að end­ur­skoða stöðu sína.

<span>Halla Signý Kristjánsdóttir:</span> „Jón þarf ekki að yfirfæra sínar skoðanir yfir á Framsóknarmenn“
Ekkert breytt Halla Signý segir að unnið sé eftir sam­komu­lagi innan rík­is­stjórn­ar­innar og engin breyt­ing hafi orðið á hvað varðar útlend­inga­mál í því sam­starfi. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunn­ars­son verður að eiga það við sig ef hann getur ekki gengið í takt við rík­is­stjórn­ina, að sögn vara­for­manns þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.

„Rík­is­stjórnin er breið­fylk­ing, við höfum komið okkur saman um ákveðin efni og það er engin breyt­ing hvað varðar útlend­inga­málin í því sam­starfi,“ segir Halla Signý Krist­jáns­dóttir, vara­þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Jón Gunn­ars­son, sem vék úr stóli dóms­mála­ráð­herra í gær og er nú óbreyttur þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fór mik­inn í við­tali í Dagmálum Morg­un­blaðs­ins í dag og lýsti því þar að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið væri ekki á vetur setj­andi. Sagði hann að ágrein­ingur innan rík­is­stjórn­ar­innar hefði orðið til þess að ekki hefði náðst að klára stór mál og nefndi sér­stak­lega að and­staða Vinstri grænna við frum­varp um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu, sem Jón hafði talað stíft fyrir, hefði valdið því að ekki yrði lengra kom­ist með þing­störf í vor. „Þing­lokin voru sem sagt vegna ágrein­ings í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum en ekki við stjórn­ar­and­stöð­una,“ sagði Jón.

Vinstri græn komi í veg fyrir að hægt sé að „keyra þetta í gegn“

Jóni varð þá tíð­rætt um mál­efni hæl­is­leit­enda, sem hann tal­aði þó iðu­lega um sem útlend­inga­mál, og að þau væru að sliga sam­fé­lagið. „Þol­in­mæði fólks er að bresta, útgjöldin eru að verða alltof mikil,“ sagði Jón og bætti við að það væri vegna and­stöðu Vinstri grænna og bak­lands flokks­ins að ekki næð­ist að „keyra þetta í gegn eins og þarf að gera.“ Hvað það er sem þarf að keyra í gegn að mati Jóns var ekki alveg skýrt, en þó var ljóst á orðum hans að hann vill koma í veg fyrir að fólk sæki um vernd hér á landi í eins miklum mæli og nú er.

„Það er sam­hljómur milli okkar og Fram­sóknar í þessu, það hefur á engan hátt hallað þar“
Jón Gunn­ars­son
um ágrein­ing í rík­is­stjórn­inni

Í þessu sam­hengi sagði Jón að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið gæti ekki haldið áfram með sama hætti og var nú í vor. Það væri farið að verða þjóð­inni „dýr­keypt“. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þyrfti að setja niður hæl­ana í útlend­inga­mál­unum en í því bryti á Vinstri grænum. „Það er sam­hljómur milli okkar og Fram­sóknar í þessu, það hefur á engan hátt hallað þar. Ég hef fengið hvatn­ingu frá ráð­herrum og þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins til að standa í lapp­irnar og reyna að keyra þetta áfram.“

Gefur lítið fyrir málflutning Jóns

Heim­ildin gerði til­raun til að ná í þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins til að fá þeirra afstöðu til orða Jóns, um það að ríks­stjórn­ar­sam­starfið stæði á brauð­fótum. Halla Signý Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður þing­flokks Fram­sóknar, var eini þing­mað­ur­inn sem náð­ist í og hún gefur lítið fyrir yfir­lýs­ingar ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

„Hann verður að eiga sínar skoð­anir fyrir sig“
Halla Signý Krist­jáns­dóttir
um yfir­lýs­ingar Jóns Gunn­ars­sonar

„Ég segi bara að Jón verður að taka þetta til sín og end­ur­skoða sína stöðu. Rík­is­stjórnin er breið­fylk­ing, við höfum komið okkur saman um ákveðin efni og það er engin breyt­ing hvað varðar útlend­inga­málin í því sam­starfi. Við náðum fram útlend­inga­frum­varp­inu í sátt, ég var sam­þykk því. Við þurfum að búa til kerfi sem er skil­virkt, þeirra vegna sem eru að sækja hér um vernd, og það er okkar verk­efni að gera það. Ef Jón Gunn­ars­son er ekki fús í það sam­starf, ef hann er ekki til­bú­inn til að ganga í takt við okkur, þarf hann að eiga það við sig. Hann verður að eiga sínar skoð­anir fyrir sig, Jón þarf ekki að yfir­færa sínar skoð­anir yfir á Fram­sókn­ar­menn. Við erum áfram um að vinna í góðu sam­komu­lagi, eins og við höfum gert fram til þessa.“

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár