Þingmenn VG: Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af orðum óbreytts þingmanns

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sér ekki ástæðu til að bregð­ast sér­stak­lega við orðum Jóns Gunn­ars­sonar um að ágrein­ingur milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé orð­inn íslensku sam­fé­lagi dýr. Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn vera að velta sér upp úr rasískum drullu­polli.

<span>Þingmenn VG: </span>Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af orðum óbreytts þingmanns
Óbreyttur þing­maður Ráðherra og þing­menn Vinstri grænna hafa ólíkar skoð­anir á orðum Jóns Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, um að núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf geti ekki gengið áfram eins og það end­aði í vor, með ágrein­ingi milli Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þingmenn Vinstri grænna bregð­ast við orðum Jóns Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, um ágrein­ing á milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna, með mis­mun­andi hætti. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra vill ekki bregð­ast sér­stak­lega við orðum hans og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, vara­for­maður þing­flokks Vinstri grænna, seg­ist ekki hafa áhyggjur af orðum óbreytts þing­manns. 

Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir sam­starfs­fólk sitt í hinum rík­is­stjórn­ar­flokk­unum hins vegar „velta sér upp úr rasíska drullu­poll­inum í von um að geta kroppað inn ein­hver pró­sent frá syst­ur­flokkum sínum í útlend­inga­málum, Mið­flokki og Flokki fólks­ins“. 

Í við­tali í Dagmálum Morg­un­blaðs­ins í dag full­yrðir Jón að sam­starf rík­is­stjórn­ar­flokk­anna geti ekki haldið áfram eins og þetta end­aði í vor. Jón segir stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins ekki fara saman við stefnu Vinstri grænna, sem birt­ist meðal ann­ars í því að þing­lok voru, að hans sögn, vegna ágrein­ings í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum en ekki við stjórn­ar­and­stöð­una. „Mitt mat er það að í dag sé þetta farið að verða þjóð­inni dýr­keypt, í formi þess að við erum ekki að ná árangri í málum sem skipta okkur gríð­ar­lega miklu máli,“ segir Jón í Dagmálum. 

Svandís um Jón: „Hann talar bara fyrir sig“

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra vill ekki tjá sig sér­stak­lega um orð fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra um erf­ið­leika í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. „Hann talar bara fyrir sig og ég ætla ekki að bregð­ast sér­stak­lega við þessum orðum hans,“ segir Svandís í sam­tali við Heim­ild­ina.

Í við­tal­inu gerir Jón upp ráð­herra­tíð sína í löngu máli og ræðir ágrein­ing sem hann segir ríkja milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ýmsum mála­flokkum, svo sem um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­regl­unnar og mál­efni flótta­manna. Að mati Jóns er það erfitt fyrir Vinstri græn að sitja í rík­is­stjórn þegar aug­ljóst er að huga þarf að öryggis- og varn­ar­málum, orku­málum og breyt­ingum í mál­efnum útlend­inga. 

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, vara­for­maður þing­flokks Vinstri grænna, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að ekki sé sér­stök ástæða til að hafa áhyggjur af því hvað óbreyttur þing­maður segi, þó að hann hafi verið að koma úr ráð­herra­stól. „Ég get ekki endi­lega tjáð mig um það nákvæm­lega hvað hann er að tala um annað en að hann heldur því fram að við séum að stoppa þarna mál og við auð­vitað stoppum ekki mál nema að við teljum þau ekki nógu vel und­ir­búin. Kannski hefðum við bara þurft viku í við­bót á þing­inu. Eða ekki,“ segir Bjarkey, sem telur Vinstri græn hafa unnið að heil­indum að öllum málum á nýliðnum þing­vetri. „Stundum tekst það, stundum ekki.“

Alltaf legið fyrir að nálgun flokkanna er ólík

Að mati Jóns er það erfitt fyrir Vinstri græn að sitja í rík­is­stjórn þegar aug­ljóst er að huga þarf að öryggis- og varn­ar­málum, orku­málum og breyt­ingum í mál­efnum útlend­inga. Ágrein­ing­ur­inn ein­skorð­ist við Vinstri græn en ekki Fram­sókn­ar­flokk­inn. Aðspurð hvort mál­efna­á­herslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna séu of ólíkar segir Bjarkey að það hafi alltaf legið fyrir að nálgun flokk­anna í mál­efnum inn­flytj­enda og fólks á flótta er ólík. „Það er ekk­ert nýtt undir sól­inni þar. En okkur hefur tek­ist að landa ákveðnum hlutum í því og varð­andi mörg önnur mál viljum við reyna að nálg­ast þau þannig að allir aðilar geti verið sáttir við það hvernig þau enda, það náð­ist ekki að klára ákveðin mál núna, ekki bara hjá honum, það var líka hjá öðrum ráð­herrum.“ 

Fjármála- og efna­hags­ráð­herraBjarni Bene­dikts­son segir þingið hafa brugð­ist í mál­efnum útlend­inga.

„Við höfum misst tökin á þessum mála­flokki,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við ráð­herra­skiptin í gær og telur hann þingið hafa brugð­ist í mál­efnum útlend­inga. Því er Bjarkey ósam­mála. „Eins og minn for­maður sagði í gær, þetta er rosa­legt álag á kerfið, það fer ekki á milli mála, en við getum alveg tekið utan um það og eigum að gera það að mínu mati. Það liggur alveg fyrir og við vitum alveg að þetta kostar. Það hefur aldrei verið jafn margt fólk á flótta eins og akkúrat núna. Ég tel að við þurfum að horfa vel ofan í þennan mála­flokk og taka utan um hann eins og við höfum verið að gera.“ 

 „Hádramatískur tangó Jóns og Gunnu“

Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, bregst við orðum Jóns í færslu á Facebook þar sem hún segir átak­an­legt að horfa á inn­an­mein Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Hádramat­ískur tangó Jóns og Gunnu hefur verið frekar takt­laus og feil­sporin stigin á sárar tærnar aftur og aftur enda virð­ist hljóm­sveit­ar­stjór­inn Bjarni Ben ekki alveg ráða við svona flókið tón­verk.“

Ráð­herra­skiptiJón Gunn­ars­son afhenti Guðrúnu Haf­steins­dóttur lyklana að dóms­mála­ráðu­neyt­inu í gær, á sjálfan kven­rétt­inda­dag­inn.

Jódís heldur áfram: „Til að víkja athygli þjóð­ar­innar frá þessum darraða­dansi og til að bregð­ast við fylgis­tapi, sam­ein­ast þau nú öll í að velta sér upp úr rasíska drullu­poll­inum í von um að geta kroppað inn ein­hver pró­sent frá syst­ur­flokkum sínum í útlend­inga­málum, Mið­flokki og Flokki fólks­ins.“

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins kann ekki við að vera kenndur við rasisma

Segir færslu þing­manns VG van­stilltaFriðjón R. Frið­jóns­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­dlokks­ins.

Friðjón R. Frið­jóns­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í sam­tali við Heim­ild­ina fyrr í dag að færsla Jódísar sé frekar van­stillt. „Ég kann ekki við að vera kenndur við ras­isma og finnst það ógeð­fellt. Ég tel mig hafa talað með þeim hætti, og sýnt það, að ég hef enga þol­in­mæði fyrir svo­leiðis hugs­un­ar­hætti. Mér finnst þetta vera ómál­efna­legt. En það geta allir gert mis­tök og ég er mjög umburð­ar­lyndur maður. Þannig að ég ætla ekki að erfa þetta við hana, ekki að svo stöddu.“

En merki­leg­ast við þetta allt saman, að mati Jódísar, er að allt sem miður hefur farið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum virð­ist vera Vinstri grænum að kenna að mati fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. „Hann opnar ekki á sér þver­rif­una nema koma því að hvernig Vinstri græn stoppa góðu málin hans. Þetta er sér­lega áhuga­vert í því ljósi að ítrekað fæ ég að heyra hvernig VG lætur íhaldið teyma sig yfir öll mörk og við séum vilja­laus verk­færi Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ skrifar Jódís, sem sér sig knúna til að leið­rétta Jón um þing­lega með­ferð mála. 

Segir hún til að mynda að Vinstri græn hafi ekki talað fyrir opnum landa­mærum heldur vilji flokk­ur­inn skil­virkt kerfi sem tryggi öllum sem hingað leita rétt­láta máls­með­ferð. Nið­ur­stöðu máls­með­ferðar beri svo að virða. Jódís segir þing­lega með­ferð útlend­inga­frum­varps­ins hafa verið erf­iða en hún er stolt af þeim „mik­il­vægu breyt­ingum sem frum­varpið tók og tryggðu mann­rétt­indi fólks á flótta“. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár